Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1903, Síða 33

Eimreiðin - 01.09.1903, Síða 33
193 unum, þangað til sólarlag kom og hann sneri aftur heim til jötu sinnar. »Ef þú vilt ekki vinna, skaltu ekki heldur fá mat«, sagði Chihun reiðulega. »Pú ert viltur fíll og hreint ekki tamið dýr, farðu aftur til heimkynna þinna í frumskógunum«. Litli, móleiti drengurinn haus Chihuns var að skríða á kofagólfinu, og rjetti nú feita handlegginn móti stóra skugganum í dyrunum. Moti Guj vissi vel að Chihun þótti ekki eins vænt um nokkurn hlut í heiminum. Hann teygði út ranann með allra fallegasta krók á endanum og litli drengurinn fleygði sér yfir hann með fagnaðar- ópi. Moti Guj hélt honum föstum og smáteygði nú ranann upp, þangað til litli drengurinn spriklaði uppi í háa lofti, 12 fet yfir höfði föður síns. »Voldugi höfðingi«, hrópaði Chihun, »hveitikökur af beztu tegund, 12 að tölu, 2 fet að þvermáli og vættar í rommi, slcaltu fá á augabragði og 200 pd. af nýslegnum sykurreyr með. Láttu aðeins svo lítið að setja niður ómeiddan þennan litla orm, sem er augasteinninn minn. Moti Guj lagðí barnið gætilega milli framlappanna á sér, sem hefðu getað muhð sundur allan kofann hans Chihuns, og beið svo eftir mat sínum. Síðan át hann og barnið skreið burtu. Svo blundaði Moti Guj og hugsaði um Deesa. Meðal annarra óskilj- anlegra eiginlegleika fílsins er það, að þessi stóri skrokkur þarf minni svefn en nokkur önnur lifandi vera. Fjórir eða fimm tímar á nóttu er nægilegt — tveir fyrir miðnætti á annarri hliðinni og tveir eftir kl. 1 á hinni hliðinni. Hinn tíma næturinnar notar hann til að eta, hreyfa sig og halda hrókaræður við sjálfan sig. Um miðnætti lagði Moti Guj af stað frá jötu sinni, því hon- um hafði komið til hugar, aö Deesa kynni að liggja drukkinn einhverstaðar í skóginum og enginn til að líta eftir honum. Hann leitaði því alla nóttina um skóginn, blásandi, öskrandi og hristandi eyru sín. Hann fór niður til árinnar og sendi drynjandi öskur út yfir grynningarnar, þar sem Deesa var vanur að baða hann, en enginn svaraði. Hann gat ekld fundið Deesa, en hann raskaði ró allra fílanna á búgarðinum og skelkaði ýmsa Zigeunaflokka í skóg- inum, svo þeir vóru nær dauða en lífi. í dögun kom Deesa til búgarðsins. Hann hafði farið á ær- legan túr og bjóst nú við hegningu fyrir að hafa verið lengur, en hann hafði fengið leyfi til. Pað létti steini af honum, þegar hann 13

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.