Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1903, Page 60

Eimreiðin - 01.09.1903, Page 60
220 Demeas. Gerir ekkert. Pú horfir á þá einhvern tíma seinna. Pað er því betra sem meira er í það borið. — »0g með því að hann enn fremur árið sem leið hefir barist eins og hetja fyrir borgina í bardaganum við Akarnai1 og höggið niður tvær her- sveitir Pelopseyjar-manna« — — 51. Tímon. Hvernig ætti það að vera? ég hefi ekki einú sinni komist á liðsmanna skrána, af því ég hafði engin vopn. Demeas. Pú lætur alténd svo lítið yfir þér, en við værum óþakklátir ef við mintumst ekki afreksverka þinna. — »Sömuleiðis hefir hann með lagafrumvörpum, ráða-tillögum og herforustu unn- ið borginni stórmikið gagn. Sakir alls þessa ályktar hér með ráðið, fólkið og dómþingið með vilja hvers einstaks og allra til samans, að reisa skuli Tímoni standmynd af gulli við hlið Aþenu á háborginni með þrumuflein í hendi og sjö geisla um höfuðið og sæma hann með gullkrönzum; skal með hárri röddu kunngjöra þetta í dag á Díónýsos-hátíðinni, er leiknar verða hinar nýju trage- díur — Díónýsós-hátíðin verður sem sé haldin þennan dag í virð- ingarskyni við Tímon.« Samþykt þessa bar upp Demeas mælsku- maður, hans nánasti ættingi og lærisveinn, því Tímon er einnig afbragðs-mælskumaður eins og yfir höfuð hvað annað, ef hann að eins vill. 52. Svona hljóðar nú frumvarpið. En þá ætlaði ég sömu- leiðis að sýna þér hann son minn, sem ég hefi látið heita Tímon í höfuðið á þér. Tímon. Hvernig stendur á því, Demeas! þú hefir aldrei kvongast það ég til veit. Demeas. Eti ég ætla, ef guð lofar, að kvongast að ári og eignast barn og barnið — því sveinbarn verður það — læt ég þegar í stað heita Tímon. Tí m o n. Eg veit samt ekki nema giftingin farist fyrir, þegar þú fær hjá mér annað eins högg og að tarna. Demeas. Æ, æ! hvað er þetta? Tímon ætlar að brjótast til valda og gerast harðstjóri; Tímon lemur frjálsa borgara og er þó hvorki borgari sjálfur né frjálsborinn. En þú skalt bráðum fá makleg málagjöld bæði fyrir annað og það sérstaklega, að þú hefir lagt eld í borgarkastalann. 1 Akarnai, »demos« í Attíku.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.