Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1903, Side 64

Eimreiðin - 01.09.1903, Side 64
224 kemur úr prentsmiðjunni. En samt sem áður verður að misbjóða þess- um ritdómurum með því, að minnast lítið eitt á þessa Ijóðabók, þótt hún hafi ekki fundið náð fyrir þeirra augum. Guðmundur er einn af þeim, sem ekki hafa fundið náð hjá skáld- dómurum vorum og blaðamönnum. Jón Olafsson er sá einasti, sem minst hefir á Guðmund (í Nýju Öldinni), stuttlega, en vel. Annars hefir enginn gefið honum gaum. Það er eins og með Magnús Gríms- son, hann er aldrei nefndur, ekki einu sinni talinn með íslenzkum skáld- um, en þótt söngmenn vorir hafi látið svo lítið að syngja einstöku vísur eftir hann. Þó að lítið liggi eftir Magnús Grímsson, og þótt hann ekki væri stórskáld, þá eru smákvæði hans svo lipur og Ijúf bæði að formi og efni, að þau jafnast fullkomlega við margt hvað, sem allir hafa í hávegum. Andinn í kvæðum Magnúsar er rómantiskur, eins og hjá Bjarna Thórarensen, Jónasi Hallgrímssyni og Steingrxmi Thorsteins- son, og það er einmitt þetta, sem gefur kvæðum þessara skálda sitt eiginlega skáldlega gildi. Og Guðmundur er hárómantiskt skáld. Annars er ekki auðvelt að segja í hveiju þessi rómantiski andi sé inni- falinn, eða hvað hann sé — þessi »rómantík« hófst fyrst hjá fjjóð- vexjum, og var þá eins og ljósglæta eða hrævareldur úr dularfullu mið- aldamyrkri, og var þá misbrúkuð, svo skáldskapurinn varð einmitt ó- skáldlegur. Pó að dönsku skáldin fengi keim af þessu, þá komust þau aldrei í annað eins moldviðri eins og Þjóðverjar eftir Goethe. íslendingar heldur ekki. Skáldskapur Eggerts er langt frá því að vera »rómantiskur«, hann er þvert á móti »prósaiskur« — málfræðislegt og »patríótiskt« »rímerí«, en glætt og lífgað af þeirri ættjarðarást, sem gekk í gegnum alt líf og alla tilveru Eggerts. Seinni skáldin hafa lagt út á alt annan veg. Það hefir farið fyrir »rómantíkinni« eins og fyrir rímunum. Ef eitthvað var ort sem hét »rímur«, þá var það fyrirlitið ; öllu þess konar átti að útrýma og það var (og er enn af mörgum) skoðað sem þjóðarskömm — þeir hlökkuðu yfir að nú væri þetta dautt og grafið — en þeim hefir ekki orðið kápan úr því klæðinu, því rím- ur lifa enn, Ég er ekki að verja allar rímur; allir vita að þær eru fullar af smekkleysum, en það er skáldunum að kenna, en ekki rím- unum. Eins hefir farið með »rómantíkina«: Af því hún var mis- brúkuð komst svo mikið óorð á hana sem kunnugt er. En »róman- tík« er í öllum verulegum skáldskap, því að í öllu lífi er eitthvað dul- arfult, eitthvað sem menn ekki skilja og aldrei fá skiiið; en af því tíminn hefir orðið meira og meira verklegur (materíalistiskur), þá hefir alt hneigst að því, og hér um bil allur skáldskapur orðið verklegur og pólitiskur, eða með öðrum orðum: Lækkað úr hinu eiginlega skáld- lega veldi. fví fór sem fór, þegar Holgeir Drachmann þoldi ekki lengur við, þá varð hann »renegat« og fór aftur inn á rómantiska veg- inn. En nú er hér ýmislegt, sem stendur hvað á móti öðru. Því hefir verið haldið fram, að í skáldskapnum eigi hugsjónaflug og hug- myndaríki (fantasi) ekki að eiga sér stað, menn eigi ckki að yrkja um annað en »það sem ert; en samt er ekki unt að útrýma »rómantík- inni« alveg, því að þótt nú sé einna mest (og ekki sízt í söguformi) ort um sálarástand manna, þá liggur í því dularfult eðli, sem alt af er verið að fást við, og þar af leiðir, að þessir menn em í rauninni »ró-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.