Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1903, Qupperneq 67

Eimreiðin - 01.09.1903, Qupperneq 67
227 margir þykjast ekkert mega heyra nema (ó)siðferðilegt skinhelgiraul. þeim skilst ekki að það eru einmitt sjálfra þeirra hræsniskreddur, sem eru fram settar »fígúrulega« og svo átakanlega að þeim sárnar það, því »sannleikanum verður hver sárreiðastur« — en þeir hneykslast ekki á rógburðinum, slettirekuskapnum, níði um náungann og fleiru þess konar: fað er alt tekið gott og gilt, eða að minsta kosti hneykslast enginn á því. Ég get nú ekki neitað því, að mér finst ekki jafnmikið koma til þessara »Sigrúnarljóða« eins og hins á undan, en það getur komið til af því að slíkt á ekki eins við mitt skap; mörg af kvæðun- um eru ljómandi falleg, en þar sem »tímans andi« er nú einu sinni þannig, að flestir vilja hafa þessa sorg og eymd, og þykir nautn f henni, þá er ekkert um að tala — en fyrstu kvæðin! Við gömlu karlarnir verðum ungir aftur af að lesa þessa fjörkippi — þar sem alt lífið leikur dansandi og syngjandi »yfir dal, yfir grund« — Gvendur er ekki að »kókettera« við kvæðadísina og fá hana nauðuga til að líta við sér; hún kemur sjálfkrafa og kallar, og sama er að segja um smákvæðin sem eru aftar ( bókinni; þar er hann eins og Róbert Burns eða þess konar náttúruskáld, þeim verður skáldskapur úr öllu, eða úr mörgu sem aðrir ekki líta við. Ég gæti hugsað mér að Sigrúnar-kvæð- in mundu hafa einnig getað framleiðst sem skáldsaga, en þá hefði höfundurinn ekki haft tækifæri til að segja margt, sem ekki verður sagt nema í kvæði. »Ich ehre den Rhythmus wie den Reim, wodurch Poesie erst zur Poesie wird,« segir Goethe, en hvað sem um þetta er, þá eru þessi Ijóðmæli vel ort og tilkomumikil, og ég verð að leyfa. mér að setja hér það sem Jón Ólafsson hefir sagt um þau í Nýju Öld- inni (III, 234), því Jón er frjálslyndur í skoðunum og ekki fjötraður í vanakreddum1 — hann segir svo: »það hefir verið fundið skáldinu' til foráttu, að hann í »Sigrúnu í Hvammi« kvæði um »ást í meinum«. En er ekki fult svo mikið til af henni í heiminum eins og af ævarandr ást í meinlausum hjúskap? Og eru. ekki þær tilfinningar, sem ást. í meinum eru samfara, bæði sælan og bölið, eins sterkar og nokkrar aðrar tilfinningar í mannlegri sál? Og sé svo, er þá ekki ást í mein- um eins réttmætt og skáldlegt yrkisefni, eins og hverjar aðrar mann- legar tilfinningar? 1 kvæði þessu er hvorki verið að lofa né fegra á- stríðurnar, sem lýst er, né heldur að ámæla þeim beinlínis; það er að- eins verið að lýsa, skýra. Og það er hverju skáldi réttmætt viðfangs- efni. Vilji skáldið endilega vera siðalögmálspostuli um leið, er sízt út á það að setja, ef hann gerir það ekki á kostnað skáldskaparins. En engin nauðsyn er á því, til þess að verk hans sé skáldskapur. Skáld- skapurinn er hagleg endurspeglun mynda og tilfinninga mannlífsins. Mannlegar ástríður eru stórveldi, sem hafa margt fyrir stafni, stórvaxin menningar-fyrirtæki, hrikalegar styrjaldir, ýmist við ofurefli, ýmist við- lítilmagna, ýmist við jafningja; stundum réttlátar styrjaldir, stundum ranglátar, stundum beggja blands. En snild og skilningsgáfa sögu- 1 Nýja Öldin varð að hætta eins og fleira hjá okkur. Pað er skömrn fyrir alla að nenna ekki að njóta þess sem þar er ritað, t. a. m. um »breytiþróunina« (Darwin) og margt fleira. Sama er að segja um ritgerðir dr. P. ThorOddsens urn þessa hluti (í Tímariti Bmfél.). 15'
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.