Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Side 31

Eimreiðin - 01.09.1904, Side 31
menningarstig, að hann taki til máls í bókmentunum — mjög lengi að koma auga á kristindóminn. Það er kunnugt, hvílíkum smánaryrðum Tacítus (Annálar XIV, 44, útgefnir kringum 115) fer um hinn kristna trúflokk út af brunanum í Róm á dögum Nerós, sem lítilmótlegt og viðbjóðslegt fyrirbrigði, snokkra menn, sem séu mjög óþokkaðir sökum lasta þeirra og kallist kristnir«. »Nafnið er dregið af Kristi nokkrum«, segir hann enn fremur, »er aftekinn var á stjórnarárum Tíberíusar af Pontíus Pílatus landsstjóra, en þessi skaðvæna hjátrú, er tekist hafði að bæla niður í bili, gaus upp aftur, ekki aðeins í Gyðingalandi, þaðan sem þetta fár er runnið, heldur líka í höfuðstaðnum, þar sem allir glæpir og svívirðingar safnast saman úr öllum áttum og berast út«. Raunar telur hann, ósannað, að þeir hafi átt sök á brunan- um, en þykir auðsjáanlega eðlilegt, að þeim sé kent um hann sökum »haturs þeirra á mannkyninu«. Vinur Tacítusar, Pliníus yngri, er vægari í dómi sínum um þá. Pegar hann var jarl í Biþyníu, varð hann að yfirheyra nokkra kristna menn, er ákærðir vóru fyrir brot á banni gegn leynifélögum. Hann spyr keisara að því í bréfi til Trajans (96. br. frá árinu 112), »hvort nafnið kristinn varði við lög, jafnvel þótt engin afbrot fylgi því, eða aðeins þeir glæpir, er séu því samfara«, og skýrir þar næst frá aðferð sinni. Hann heimti af hinum ákærðu, að þeir ákalli guðina, ef þeir vilji firra sig hegningu, fórni mynd keisarans reykelsi og víni og for- mæli Kristi, »og til þess á ekki að vera hægt að kúga þá, sem kristnir eru í raun og veru«. Við yfirheyrsluna skýrðu nokkrir menn frá því, er fyrir eina tíð höfðu verið kristnir, að afbrot eða villa þeirra hefði verið fólgin í því, að þeir hefðu verið vanir að koma saman fyrir dögun á ákveðnum degi, syngja sálma Kristi til dýrðar, eins og hann væri guð, og skuldbundið sig með eiði — ekki til að fremja neina glæpi, heldur hins, að þeir skyldu hvorki ræna né stela né drýgja hór né rjúfa orð sín né synja fyrir fé, er þeim væri trúað fyrir, er það væri heimt aftur. Pegar þessu væri lokið, væru þeir vanir að skiljast og hittast aftur heima til þess að eta saman, en ekki nema óbrotinn og saklausan mat«. Pynt- ingar á tveim vinnukonum hefðu ekki heldur leitt annað í ljós en »gegndarlausa hjátrú og heimsku«. Petta hneyksli virtist að vísu þó nokkuð alment, en Pliníus heldur þó, að stemma megi stigu fyrir því, ef ofmikilli hörku sé ekki beitt. Þannig leit mentalýður í Róm enn á þetta á 2. öld. Af þessu

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.