Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Page 50

Eimreiðin - 01.09.1904, Page 50
210 þvo þá í vatni þessu þegar í staö, svo að þeir verði hreinir, og ef þeir gerast öðru sinni sekir um hið sama, skal ég gera þá hreina aftur, ef þeir berja sér á brjóst og reita hár sitt. Hjá honum sezt Konstantínus að og tekur sonu sína til sín. Enn þá heyrast ómarnir af dunum bardagans í skýringum Simplikíusar á Aristóteles, en á þeim tíma, er menn hafa beðið ósigur í orrustunni. Hann var einn þeirra heimspekisprófessora, er fór af landi brott til Persalands, þegar Jústinían lokaði háskól- anum í Aþenu, síðasta hæli heiðindómsins, 529. I æði örvænt- ingarinnar gerir hann allmikla útúrdúra og ræðst þar á »kristna guðleysingja«, af því að þeir neiti guðdómi himinhnattanna og haldi fram upprisu líkamans. Hann hamast, sem óður væri, gegn öðrum ritskýranda, Jóhannesi Fílóponos, af því að hann hafði tekið kristna trú og trúði því, að heimurinn ætti að farast, gagn- stætt því sem Aristóteles hélt fram. Eftir því ætti sá heimur að týna tilveru sinni, er kristnir menn kalla sjálfir fótskör guðsl Pað er í rauninni nógu gaman að virða fyrir sér, hversu margar mótbárur gegn kristninni er komið upp með í þessum gömlu deiluritum. Ein altíð nútíðarmótbára finsthvergi: að krafta- verk geti ekki átt sér stað. Ásækendurnir trúðu sjálfir á krafta- verk, og það verður varla sagt, að rökræður þessar bíði halla við, að þetta atriði kemur ekki til greina. Af árásum þessum er auð- séð, hversu kristinni trú hafði hepnast að verða að heimsku einni fyrir sjónum Grikkja. En það var einmitt það, sem hún vildi líka, og talsmenn hennar spara ekki heldur að hafa þann flötinn uppi. Pað sem mér þykir þó langmerkilegast, er bjarmi sá, er bregður á forngrískan anda af kenningum þeim, er þeir einkum hneykslast á. I fyrsta lagi er það trúin án sannana. Pví að Grikkir vóru hugspekingar. Pessu næst er það skrælingjalegur uppruni kristin- dómsins og lélegur söfnuður. Forn-Grikkir vóru stórmenni í anda, gengu beinir og brattir, og lét ekki að engjast sundur og saman af iðrun og angri, sem tollheimtumönnum og bersyndugum. Enn fremur er það kenningin um upprisu holdsins og fæðing guðs af jarðneskri konu. Heimspeki Platóninga hafði kent mentuðum mönnum, að þeir skyldu aðeins hugsa um sálina og komið inn hjá þeim andlegu og háleitu guðshugtaki. Loks er það endir

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.