Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Blaðsíða 14

Eimreiðin - 01.01.1906, Blaðsíða 14
sem eru að fjádrættinum i réttinni. Þar eru líka ungir menn, sem renna til meyjanna báðum augum, menn sem eru lausir við allan fjárdrátt. Eg á við lausamennina, sem eru »engum háðir.« Nýfermdir strákar, sem eru nýkomnir af hreppnum — í lausa- mensku, eru þar í stígvélum, með hvíta bringu, barðastóra hatta á höfði og í skósíðum vængjakápum, heilsa kurteislega — meðan bændur draga fé sitt kófsveittir, bændurnir, sem goldið hafa til framfæris þeim — með því móti. að vinna sér um megn og spara við sig og sína nauðsynjar og munað. Nú eru þeir stígvéluðu með hvítu bringuna fleygir og frjálsir og lúta engum — nema eigin náttúru sinni og svo örbirgðinni, sem situr fyrir þeim á næstu þúfu. Og víst er það gaman, að til skuli vera sá dagur í árinu, sem næstum hver maðar á það víst, að vera — í sjálfs sín með- vitund — mesti maður, þegar vínið er komið í kollinn. Ungir menn verða mælskir og taka á sig ræðusnið. Og gamlir karlar verða ósigrandi. »þeir mega koma, sem yngri eru«, sagði Jón karlinn Jónsson hér um haustið. »Gamli Jón þorir að sjá framan í þá, sem yngri eru. Gamli Jón hræðist engan í hvað sem fer«. Hann krepti hnefana, baðaði út öngunum, eins og hann ætlaði að taka fangbrögðum og — misti jafnvægið. Og hann mundi hafa steypst á höfuðið, ef eigi hefði viljað svo vel til, að maður var þar nær staddur, sem tók af honum fallið. Annars er nú drykkjaskapurinn orðinn lítill í sýslunni og svo sem enginn í samanburði við það, sem áður var, þegar bændur riðu í kaupstaðinn á laugardögum alt sumarið, til að drekka brennivín, þó æði margir, og óku heyinu á veturna fyrir sopann, drukku á enginu og í fjárhúsunum, sumar og vetur. Petta gerði að eins minni hluti manna, en þó of margir. Nú er orðið erfitt að ná í drykkinn, nema á viðkomustöðum gufudall- anna. Par er brynningin vís og veit ég aldrei, hvort lögin eru þar heilög haldin eða beygð og brotin, nema hvorttveggja sé; því það getur átt sér stað, að þar sé bæði lögmæt vínsala og ólögleg. Það er ekki ný bóla í veröldinni, að rangindin og rétt- lætið vegi salt. Helg'ihald boðorðanna. Ef ég væri spurður um löghlýðni Pingeyinga, mundi mér verða erfitt um svarið, einkum fyrir þá sök, að ég vissi ekki, við hvað væri að miða. En eitthvað get eg þó sagt um þetta efni, undan og ofan af. Ég ætla að leggja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.