Eimreiðin - 01.01.1906, Qupperneq 24
24
suma vetur. Handrit skortir eigi. því nokkuð ritfærir menn eru
þar á hverjum bæ og hagyrðingar á öðrumhvorum, eða vel það.
Sú sveit er einna bezt mönnuð. Par er prófastur og þingmaður,
Jón Hinriksson og Porgils gjallandi, Jón Porsteinsson og Sigurður
Jónsson og fleiri, sem vit hafa í kolli. Par eru og íþróttamenn
mestir: skíðamenn og skauta og göngugarpar, glímumenn og
sundmenn og dorgarmenn.
Mývatnssveit. Mývatnssveit er »gersemi sem mest« eins og
sagt er um Götu í Færeyjum. Par eru andavörp mikil. Par eru
húsandir, sem hvergi munu til vera annarstaðar í víðri veröld og
jafnvel fleiri andir. Silungur er í vatninu og er hann allra silunga-
tegunda feitastur. Mér var sagt í bernsku, að logaði á sporði
hans, hráblautum upp úr vatninu, ef kveykt væri í, og má vera,
að svo hafi verið, áður en það hnignunarskeið hófst, sem Jón
gamli Tómasson hafði af að segja. En líklega sviðnar hann n ú.
en logar ekki. Margir menn hafa verið einkennilegir í sveitinni
og eru enn til og víst er sú bygð merkileg fyrir margra hluta
sakir. Álftir eru á Mývatni vetur hvern, en hverfa á sumrin.
Pær eru alt að 200 og hafa þar vetursetugrið nokkurn veginn,
hvort sem því veldur landslag eða mannræna, nema hvort um sig
valdi. Par er jarðylur og. frýs aldrei á sumum stöðum, þótt alt
frjósi annarstaðar, sem frosið getur. Mývetningar unna mjög
sveitinni og er' það eigi kynlegt; því að hún hefir margar náttúrur
og er »fegurst allra bygða«.
Húsavík. Eldsími liggur frá Mývatnssveit neðanjarðar norður
að Húsavík á Tjörnesi. t’ær hvíslast á, þegar landskjálftar ganga,
og þó ekki blíðumálum, heldur heitum heiftaryrðum. Húsavík
hefir vaxið mjög í seinni tíð og er sá vöxtur kominn framan úr
héraðinu. Par eru fiskiveiðar á báta og fjárrækt á landi. Par er
trésmíðaverkstofa með vélum og ullarvélar eru að komast þar á
fót. Brauðgerðarhús er þar og skóarasmiðja, en engin vínsala,
kornmylnur 2 eða 3 mjög miklar og er þar alt sem sálin þarfnast:
lögspeki og guðfræði og læknislist, fyrir utan sölutorg alls konar
vörutegunda. Alt fæst á Víkinni, sem líkami og sál þurfa, og
fer sú sæla vaxandi, en þverrar hvergi, því að smásalar þjóta
upp á hverju misseri og selur sá jafnan við lægsta verði, sem þá
er yngstur í embættinu. Par er sauðfé gott. Pað er alið á fisk-
úrgangi og lifur og eru ær tvílembdar og leggja sig þá á 30 kr.,