Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 1

Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 1
Sjálfstæðismálið 1907. í*að virðist ekki illa viðeigandi um þetta skeið, er sjálfstæðis- mál íslands er og hlýtur að verða — hver veit hve lengi — efst á dagskrá þjóðarinnar, að gera sér nokkra grein fyrir aðaldráttunum í hreyfingu þeirri, sem fram hefir farið á síðasta ári — árinu 1907, er talið mun verða merkisár í íslenzku þjóðlífi, þar eð á því hefir þessu máli fleytt mest fram um langan aldur. Stendur nú til af okkar hálfu að gera enn eina atrennu, vonandi þá síðustu, til þess að ná samkomulagi um viðurkenningu á okkar rétti við þann aðilann, er við eigum í höggi við í þessu efni, Dani; en þeim mönnum, er koma fram sem gerðir út af þjóðinni, þarf að vera sem allra ljósastur vilji hennar, og er því ekki rétt að láta undir höfuð leggjast að skýra kröfurnar sem bezt að unt er; eigi sízt vegna þess, að bólað hefir á nokkrum misskilningi hjá ýmsum, þegar málið hefir borið á góma. — Tvö orð, framar öðrum, vóru allan fyrri helming ársins 1907 { hvers manns munni, þeirra er um stjórnmál ræddu. Pað vóru orðin: Frjálst sambandsland. Fau vóru þó komin frá árinu 1906 og áttu upptök sín í »ávarpi« því um sambandsmálið, er ritstjórar flestra ísl. blaða sendu út seint á því ári; en orsökin til þess, að þetta ávarp kom út, var, auk annars, ráðagerðin um samningaleitun við Dani, er fæðst hafði í þingmannaförinni þá um sumarið. Ávarpið var leiðbeining til þjóðarinnar um það, hverju bæri að halda fram í sjálfstæðismálinu, og jafnframt heit undir- skrifenda um að berjast fyrir þessum kröfum. Þessi tvö orð eru nú reyndar að hugmyndinni til miklu eldri í frelsispólitík íslend- inga, eldri en þessi síðasta samningahugmynd, og eldri en ávarpið þar af leiðandi. Sama hugmyndin kemur fram um þjóðfundinn 1851 og undir 1870 (sbr. Jón Sigurðsson). En að þessu sinni, á 6

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.