Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 22

Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 22
102 og ýtarlega lýsingu landsins, aðallega bygða á eigin rannsóknum, en þó með aðstoð annarra manna í hinu einstaka. Petta var stórt fyrirtæki, sem hlaut að kosta mikið fé og mikla vinnu. Til þess að slíkt áform gæti komist til framkvæmdar, þurfti langt líf, góða heilsu og nóg þrek, líkamlegt þrek til að þola vosbúð á ferðum og andlegt þrek til þess mánuðum og árum saman að fást við leiðinlega hluti og lesa leiðinlegar bækur; og það þótti Jónasi bágt, þessvegna andvarpur hann í bréfi til Jóns Sigurðssonar og segir: sHamingjan veit, hversvegna það stendur í spánni, að hávaðinn af öllu, sem við verðum að kynna okkur, er svo dauft og leiðinlegt.« Eins og allir vita, verða þeir sem semja stór vís- indaleg rit að kynna sér alt, sem ritað hefir verið um sama efni, og er það oft leiðinlegt verk. Sumarið 1837 brá Jónas sér til Islands og dvaldi um tíma í Vestmanneyjum og ferðaðist nokkuð um Suðurland; þá gjörði hann allmargar þýðingarmiklar vísindalegar athuganir, og eftir þessa ferð þóttist hann hafa fundið köllun sína, og afréð að hefja rannsókn um land alt. Pað er einkennilegt, að vísindalegur af- rakstur þessarar fyrstu ferðar varð meiri en af öllum hinum seinni ferðum hans. Jónas var í vísindastörfum sprettharður, og tilþrifin oft glæsileg, en svo dettur botninn úr; á ferðum sínum ritar hann fyrstu dagana ýtarlegar skýrslur í dagbækur sínar, en svo gefst hann upp, og ritar ekkert upp frá því; eins er til eftir hann fjöldi af upphöfum ritgjörða og brot af ýmsu tægi; hann byrjar og hættir jafnóðum við. Petta hviklyndi hefir nú líklega með fram stafað af líkamlegum lasleika, en annars hefir það verið talið þjóðareinkenni íslenzkt, að áformin í fyrstu eru stór og glæsileg, en framkvæmdin minni þegar á á að herða. Pegar Jónas kom heim úr þessari ferð 1837 var ban fjörug- astur og duglegastur og afkastar miklu þá um veturinn. Pá kemur hann því til leiðar, að Bókmentafélagið tekst á hendur að safna gögnum til stórrar Islandslýsingar, og átti lýsingin að standajafn- hliða Uppdrætti Islands. Pá var farið að safna sóknalýsingum, veðurbókum og skýrslum um fiskiveiðar, alt eftir uppástungum Jónasar Hallgrímssonar, og varð það mikið safn, sem enn er til. Petta átti að vera fyrsti undirbúningur lýsingarinnar; svo ætlaði Jónas að lokum að setjast í helgan stein, til þess að rita bókina, sem átti að verða stórt verk, líklega í mörgum bindum. Á árunum 1839—42 ferðaðist Jónas með stjórnarstyrk um

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.