Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Qupperneq 29

Eimreiðin - 01.05.1908, Qupperneq 29
109 skáld heimsins (Shakespeare, Goethe, Byron, Schiller o. s. frv.), sem mjög hafa notað ljóðaformið. En hvað kemur það þessu máli við? I’ eir þurftu ekki að nota »rím« til að hylja tómleika eða misfellur! Hjá þeim (og þeirra líkum) er það aðeins »viðbót«, list á list ofan — því að enginn neitar því, að það er list fyrir sig að viðhafa fagurlega bundið mál. En hver dirfist á hinn bóginn að bera á móti, að í því sé og fólgin list eigi lítil, að rita vel óbundið mál? Skáldkonungurinn Henrik Ibsen skáldaði í ljóðum framan af — samdi listaverk í ljóðum. En er á leið, hætti hann þó algerlega að viðhafa það form, er hann taldi sig nógu þroskaðan til þess að búa til listaverk í óbundnu máli. Honum tókst það og ekki síður, en ekki er það á allra færi. — Nýlega hefi ég séð bréf eitt frá Ibsen (ég var ekki svo heppinn að vita af því, er ég samdi áðurnefnda grein), þar sem hann víkur að þessu efni. Bréfið skrifaði hann (25. maí 1883) frægri leikkonu, Lucie Wolf, við Kristjaníu-leikhús; svo stóð á, að hún bað hann yrkja fyrir sig hátíðarljóð, sem hún ætlaði svo að flytja í leikhúsinu (á listar-afmæli sínu), en Ibsen kvaðst ekki geta orðið við bón hennar og kemst svo að orði í bréfinu: . . . »Ljóðaformið mun ekki verða notað að neinum mun í leik- ritum hins komandi tíma; skáldskaparstefna framtíðarinnar mun sem sé áreiðanlega ekki geta samrýmst því formi. I’að mun þess vegna leggjast fyrir óðal. Listarbúningunum er það áskapað að hverfa úr heiminum, á sama hátt og hinir kynlegu dýraskapnaðir frumtímans liðu undir lok, er dagar þeirra vóru taldir.« — — »Sjálfur hefi ég síðustu 7—8 árin varla ort eitt vísuorð; hefi ég einvörðungu stundað þá list, er langt um er torveldari: Að skálda á máli raunveruleikans, eins og það er blátt áfram og falslaust! í*að er á þessu máli, sem þér (o: leikkonan) hafið náð þeirri listarfullkomnun, er þér nú hafið til að bera. Áferð- arfagurt »rím« hefir aldrei verið yður verkfæri til að stinga dóm- greind manna svefnþorn.« — Framangreind atriði stóðu nú óhögguð af andmælum Guðm. Frið- jónssonar; ekki varð það heldur af skafið, að óskaplega mikið hefir verið kveðið á íslandi í samanburði við skáldsagnagerð. En það, sem Guðm. aðallega réðist á, var tilraunin til að kippa þessu í annað horf: Hana taldi hann allskostar þýðingarlausa og jafnvel óviðurkvæmilega, eins og nú til hagaði með skáldunum íslenzku. Það væri ekkert vit í að heimta af þeim, að þau semdu skáldsögur, er mikinn tíma og yfir- legu þyrfti til — yfirleitt gott næði og áhyggjulítið líf fyrir daglegu brauði. íslenzku skáldin ættu við svo þröngan kost að búa, svo erfitt uppdráttar að öllu leyti, svo lítinn tíma aflögum frá matarstritinu, þar sem að þeim væri ekkert hlúð, að skáldskapnum gætu þau ekki gefið sig við nema á hlaupum og hugsanir þeirra yrðu því að birtast í mol- um, kvæðum og stökum, en engin tök væru á að semja heildarverk: sögur. — I’annig líta og margir á málið, aðrir en Guðm. Ef svara ætti stutt og laggott þessum eilífa barlóm hinnar kveð- andi kynslóðar, barlóm, sem ávalt er tjaldað til afsökunar, og vitan- lega er ekkert annað en ein grein af hinu íslenzka þjóðarvíli, ves- aldarhugsunarhættinum, — þá yrði það á þessa leið: Skoðunin er á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.