Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Qupperneq 52

Eimreiðin - 01.05.1908, Qupperneq 52
132 eða nál. iooo kr. í samskotasjóð ekkna og munaðarleysingja við Faxaflóa 1906. í skoðunum sínum á trúmálum er Baldwinsson mjög frjálslyndur, einkum í seinni tíð, enda hefur hann staðið sem vörður fyrir fólkið, og djarflega andmælt, þegar honum hefur þótt íslenzka kirkjufélagið ganga of langt í heimtufrekju við Vestur-íslendinga, og naumast getur mér komið til hugar, að forkólfar þess félags vilji góðfúslega kannast við, að Baldwinsson hafi þar talað máli fjöldans. Hins vegar er rétt að geta þess, að hann hefur haft mjög marga sér fylgjandi í þessu efni. í pólitiskum málum hefur hann altaf fylgt íhaldsmönnum (Con- servative), sem svo eru nefndir, að málum. I raun og veru mætti kalla þennan flokk umbótaflokk, því allar helztu umbætur og framfarir í þessu fylki eru gjörðar undir stjórn hans. Ég hygg, að Baldwinsson hafi fljótt séð, að þessi stefna var ríkjandi hjá þessum flokk, og því hafi hann hallast að honum, því hann hefur ævinlega, og þó sér- staklega á síðari árum, fylgt þeim flokkum að málum, sem hann hefur séð að eitthvað vildu í framfara og menningaráttina, en eigi þrælbinda sig á klafa fornrar venju, eða þá móka hálfdottandi í aðgjörðaleysi. Síðan hann gjörðist ritstjóri hefur hann býsna mikið skrifað urn við- hald íslenzks þjóðernis og íslenzkrar tungu hér í landi, þegar tímar líða; og þó ég sé ekki með öllu samdóma honum í skoðunum á þess- um málum, þá er enginn efi á því, að í mörgu því viðvíkjandi hefur hann rétt fyrir sér; og þessar ritgiörðir sýna, að hann hefur mikið um þessi málefni hugsað; þó hann hafi því miður kornist að þeirri niður- stöðu, að íslendingar hér muni með tímanum alveg hverfa sem þjóð- flokkur. Ritstjórnin hefur honum farist prýðisvel úr hendi, og má full- yrða, að lærðir menn, sem svo eru kallaðir, hefðu mátt gæta sín, að verða ekki í því tilliti eftirbátar hans, enda hefur blaðið »Heimskringla« aldrei átt eins miklurn vinsældum að fagna og undir stjórn hans. í efnalegu tilliti stendur Baldwinsson mjög vel. Mun nú óhætt að telja hann einn með efnaðri íslendingum í þessari borg. Gæti ég vel trúað, að hann ætti nál. 75,000 króna virði af eignum, ef það væri lagt út í krónutali. Einungis með iðjusemi, reglusemi og fádæma hagsýni í fjármálum, hefur honum tekist að safna auð. Hann hefur aldrei um dagana dottið ofan í neinn »lukkupott« í fjárhagslegu tilliti, heldur smáþokað sér áfram í því sem öðru. Starfsmaður er hann hinn mesti. Fellur honum aldrei verk úr hendi, og brúkar engan tepruskap við nein verk sín. Hann gengur eins rösklega að því að kljúfa eldivið í stóna sína, og að halda ræðu á þingi. Ritstjórn og ráðsmensku blaðsins hefur hann að öllu leyti á hendi, nema þann tíma sem hann situr á þingi, og er það meira verk, en nokkur blaðamaður í þessu ríki mun leggja á sig. Yegna þess að efnalegar kringumstæður hans eru góðar, mætti ef til vill segja, að hann legði vinnu of hart að sér, en náttúru- far hans er það, að vera sívinnandi. í viðmóti er hann kátur og fjörugur, og er oft til með að láta spaugsyrði fljúga. Sama er að segja um ræður hans. Hann er án efa einn hinn allra fremsti ræðu- maður meðal Vestur-íslendinga. Þó engan veginn sé hægt að segja, að Baldwinsson hafi eigi verið á réttri hillu í lífinu, þá hefur hann samt sjálfur sagt, að ævinlega sjái hann eftir, að hafa slept af rausn-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.