Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 54
134
Uppgötvanir árið sem leið.1)
Aldrei hafa framfarirnar verið eins óðfluga í heiminum, eins
og á vorum dögum. Hver uppgötvunin rekur nú aðra, svo að
nú eru gerðar fleiri uppgötvanir á einu ári, en áður á heilum öld-
um. Petta sýnir, hve mannsandinn er orðinn miklu fullkomnari,
en hann áður var, og hve þroskahæfileikar hans eru miklir. En
auðsætt er þó, að minst er af því séð enn, hvílík undraverk hann
getur gert, þegar þekking hans á náttúrunni og hinum huldu öfl-
um hennar er orðin enn meiri. Pví sú þekking, sem vér nú höf-
um á náttúrunni, er auðsjáanlega ekki nema örlítið brot af öllum
þeim vísdómi, sem vænta má að verði sameiginleg eign komandi
kynslóða. Pað, sem öllum viröist nú ómögulegt, reynist brátt
mögulegt. Kynjaverk og töframyndir æfintýranna og hugarflugs-
ins verða raungæfar og framkvæmdar í reyndinni.
Dágott sýnishorn af því, hve hraðstígar framfarirnar nú eru
orðnar, má fá með því að líta yfir hinar mörgu þýðingarmiklu upp-
götvanir, sem gerðar hafa verið árið 1907, — ekki aðeins í jörðu
og á, heldur og í loftinu yfir henni.
Loftskeytasambandið hefir á árinu 1907 tekið stórmikl-
um framförum. Marconi hefir tekist að koma á föstu sambandi
yfir Atlanzhafið milli Evrópu og Ameríku, og Valdemar Poulsen
hefir drjúgum fullkomnað hina nýju loftritunaraðferð sína. En auk
þess hefir honum tekist að koma á þráölausu samtali milli Kaup-
mannahafnar og Berlínar, og hefir hermálastjórn Pjóðverja keypt
af honum einkaleyfi til að nota þá uppgötvun á Pýzkalandi.
Kveðst Poulsen hafa góða von um, að innan skams verði unt
að talast við gegnum loftið yfir þvert Atlanzhaf, milli Evrópu og
Ameríku.
En það eru ekki lengur orðin ein, sem nú má senda á vængj-
um rafmagnsins. Pví prófessor Korn í Miinchen hefir nú fundið
áreiðanlega aðferð til að senda líka myndir með síma milli fjar-
lægra staða, borga og landa. Getur það orðið ljótur grikkur fyrir
Meginatriðin í þessu yfirliti eru tekin úr grein, sem blaðið »Heimskringla«
flutti þann 23. jan. þ. á., eftir ameríska blaðinu »Family Herald and Weekly Star«
15. s. m. Framsetningin þó hér öll önnur og ýmsu við bætt.