Eimreiðin - 01.05.1908, Page 55
135
glæpamenn og strokumenn, því nú má senda myndir af þeim út
um allan heim á svipstundu, svo ilt verður að leynast. En ann-
ars getur þessi uppgötvun náttúrlega orðið að miklu liði í ótal
tilfellum.
Pá er það ekki nein smáræðisuppgötvun, sem Louis Brennan
gerði sumarið 1907. En hún er sú, að hægt sé með skoppara-
kringlu-afli að halda járnbrautarvögnum í jafnvægi á einu spori
eða á einum járnteinungi, í stað tveggja, eins og nú á sér stað. Eað
er og einkennilegt við þetta afl, að því meiri þunga, sem hlaðið
er út í aðra hlið vagnanna, því meira hækkar sú hliðin. Er þessi
uppgötvun talin svo áreiðanleg, að vísindamenn, sem skyn bera á
slíka hluti, telja víst, að hún muni verða alment lögð til grund-
vallar fyrir öllum mann- og vöruflutningum á landi innan fárra
ára, og að vagnar með þeim útbúnaði muni geta farið 150 enskar
mílur á klukkustund.
Pá er og uppgötvun sú, er efnafræðingurinn Wiliiam Ramsey
gjörði 1907, taiin stórmerkileg. Hann var áður orðinn heimsfrægur
fyrir uppgötvanir sínar á málmtegundinni »helíum« og auk þess
á fjórum tegundum af loftgasi. En í maí 1907 auglýsti hann, að
fundin væri aðferð til að búa til kopar úr öðrum efnum (»sódí-
um«, »lithíum« og »pótassíum«). Virtist þá ljóst, að ef hægt
væri að framleiða þennan málm úr slíkum efnum, þá mundi að
líkindum einnig mega framleiða aðra málma með samblöndun
einhverra annarra efna, t. d. gull og silfur. En slíkt mundi ekki
þykja ónýt uppgötvun, er birgt gætí mannkynið með nægum
gullbirgðum. En hver veit? Máske draumórar gullgerðarmann-
anna gömlu taki nú að rætast, þó menn hingað til hafi álitið alt
þeirra bjástur æði næst.
Flutningatæki þjóðanna hafa 1907 tekið stórkostlegum um-
bótum. Má þar einkum tilnefna, að farið var að nota »túrbín«-
gangvélar í hafskip, sem gerir þau svo örskreið, að hin stærstu
eimbákn hafa komist yfir Atlanzhaf á 4 sólarhringum og tæpum
20 klukkustundum.
Pá hafa og loftsiglingar tekið afarmiklum framförum 1907,
svo að nú eru búin til öflug loftför, sem hægt er að stýra eftir
vild og knýja með undrahraða í hverja átt, sem vill, jafnvel á
móti stinningsstormi. Og svo föstum tökum eru loftsiglingar og
flugvélar nú búnar að ná, að talið er áreiðanlegt, að hverjum full-
veðja manni verði gert mögulegt að fljúga eftir vild, áður en