Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 61
þó stundum sé teflt á fremsta hlunn með sannanir, þar sem efnið
er jafnörðugt viðfangs, en höf. hins vegar sannfærður um, að hann
hafi rétt fyrir sér í aðalatriðunum. Og á því er heldur enginn
vafi, að fjölmargar af sönnunum hans fyrir vestrænum áhrifum
muni verða framvegis viðurkendar, og sakar þá lítt, þótt nokkrar
falli úr tölunni sem miður traustar eða með öllu ónýtar. Aðrar
bætast þá við í staðinn með tímanum.
Höf. sýnir fram á, að Haraldur hárfagri hafi mjög sniðið stjórn
sína, skattálögur o. fl. eftir útlendum fyrirmyndum, og virðist margt
af því, sem hann tilfærir í því efni, mjög svo sennilegt. En sumt
af því er þó næsta hæpið, t. d. þar sem hann heldur því fram,
að þá hafi menn farið að nota orðið »hirö« og »hirðmenn« um
fylgdarlið konungs (bls. 61), og er helzt á því, að þrískifting þess
í hirðmenn, gesti og húskarla stafi líka frá þeim tíma (bls. 70—72).
Vér álítum að hvorugt af þessu geti verið rétt. Orðin »hirð«
og »hirðmenn« hafa vafalaust verið ókunn á dögum Haralds hár-
fagra, og því síður er þrískifting hirðarinnar svo gömul. Porbjörn
hornklofi kallar heldur ekki fylgdarsveit Haralds »hirð« í Haralds-
kvæði sínu, heldur »inndrótt«. Oss er næst að halda, að hvorki
nafnið »hirð«, sem löghelgað nafn, né skifting hennar í 3 flokka
(hirðmenn, gesti og húskarla) sé eldra en frá dögum Ólafs kyrra,
þegar svo mikil breyting varð á hirðsiðunum í öðrum efnum og
tala hirðmanna eða alls fylgdarliðs konungs var aukin unt helming.
Pá mun og konungsstofan fyrst hafa fengið nafnið »höll« og mörg
breyting á henni gerð frá því sem áður var, eins og sjá má af
frásögn Snorra og annarra um það. Að vísu talar Snorri um
hirðmenn, gesti og húskarla hjá Ólafi helga, en vér efumst um,
að það sé rétt, að sú skifting sé svo gömul. Ef »hirð« og »hirð-
menn« hefði verið títt á dögum Ólafs helga og þrískiftingin þá á
komin, þá mundu menn konungs ekki hafa kallað kvæði það
(Bjarkamál in fornu), er Pormóður Kolbrúnarskáld kvað fyrir þeim
á undan Stiklastaðabardaga, »Húskarlahvöt«, því varla mun hann
það kveðið hafa sérstaklega fyrir hinn lægsta flokk konungsmanna,
verkamenn hans, heldur fyrir hina beztu menn hans, »handgengna
menn«. Ekki er heldur líklegt, að Sigvatur skáld hefði kallað
sjálfan sig »húskarl«, er hann gerðist sverðtakari Ólafs konungs
(»hirðmaður« hans kallar Snorri það), því varla mun hann hafa
talið sig né verið í þeim flokki starfsmanna konungs, e^húskarlar
nefndust, eftir að þrískiftingin komst á, heldur í þeim flokkinum,