Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Page 70

Eimreiðin - 01.05.1908, Page 70
i5o Mér þykir hreinskilnislegra að geta þess, um leið og ég skil við dr. J. f\ og þakka honum alla fræðsluna og fyrirhöfnina, að ég er honum ekki alstaðar samþykkur. t. d. um árfærsluna á Gamla sátt- mála hinum endurnýjaða. Að minni hyggju verður röksemdum Maurers ekki hrundið. Hann er og heldur einstrengingslegur, er hann segir frá viðskiftum vorum við erlent vald, eins og Jóni Sigurðssyni hættir til (t. d. í ritgerð sinni framan við Gamla sáttmála í i. bindi Fornbréfa- safnsins). Hann segir með miklum fróðleik og lærdómi frá misþyrmingum Dana og útlendra konunga á oss og er það ekki nema rétt og sjálfsagt. Hann segir lfka vel frá þvf, er vitsmunum, þjóðrækni og þjóðhollustu góðra Islendinga tekst að stemma stigu við ásælni þeirra og yfirgangi og er það vel. En hann segir ekki frá því, hversu sumir íslendingar hafa brugðist þjóð sinni, frelsi hennar og réttindum, oft og einatt. Verður því þó ekki neitað, að mörgum íslendinga hefir illa farið, alt frá því er »etazráðs«-sálin Guðmundur ríki ætlaði að gína við vinarmálum Olafs helga, og Sturla Sighvatsson, hinn versti maður, tók, ókeyptur og óneyddur, að brjóta landið undir Hákon gamla og allar götur ofan til þessarra allra síðustu tíma. Verður ekki alsögð sagan, ef því er gleymt. Vona ég, að enginn, hvorki hinn háttvirti höf. né aðrir, skilji þetta svo, sem ég vilji halda vörnum uppi fyrir Dani né bera í bætifláka fyrir þeim. Er þeim og engin málsbót í ódrengskap sumra íslendinga gagn- vart þjóð sinni. Þegar dr. J. f\ hefir lagt tólfin á borðið, tekur cand. jur. Einar Arnórsson við og ritar »yfirlit yfir stjórn íslands eftir 1262«. Er þetta »yfirlit« ritað af miklum lærdómi. Er það hvorttveggja, að höf. er mikill gáfumaður og hinn mesti starfsjötunn, enda virðist hann furðulega lærður í þessum vísindum, svo stuttan tíma sem hann hefir iðkað þau. Samt er þó mest um vert, hve alt er skýrt og ljóst í ritgerðinni. Þótt lesandinn sé ekki sérfræðingur, sér hann samt vel, hvers spurt er og hvert rannsóknarefnið (Problemet) er og í hverju skyni höf. telur upp svo mörg lagaboð, úrskurði, tilskipanir og dóma, er gilt hafa og gilda á íslandi. Þótt hann bresti kunnáttu til að skera úr, hvort rétt sé sagt frá öllum þessum gömlu ákvæðum, sér hann þó, að þessu eru ekki sallað saman út í bláinn, heldur til þess að leysa úr þeim spurn- ingum, er svara þarf. En vel hefði farið á því, að höf. hefði vandað meira íslenzkuna á ritgerð sinni. Fyrst er minst á Gamla sáttmála, hversu hann var samþyktur og hversu megi breyta honum. Hann sé í rauninni grundvallarlög. Annað vald samþykki þess konar lög en hið almenna löggjafarvald. Það var líka annað vald en löggjafarvald lýðstjórnartímans, er sór Hákoni gamla trúnaðareiða. En af þessu leiðir það, að annað vald verður að breyta honum. Verður að breyta honum með sömu eða samsvarandi aðferð og hann var samþyktur. Þá ritar höf. um löggjafarvald, dómsvaldið, framkvæmdarvaldið og kirkjustjórnina. Merkustu og skýrustu kaflarnir eru um löggjafar- valdið og réttarstöðu landsins. Þykir mér nægja að minnast á þá. Um löggjafarvaldið kemur fyrst til greina, »hvort konungar hafa getað gefið íslendingum lög, svo að gild væru án samþykkis alþingis*. Það var eitt skilyrði íslendinga í Gamla sáttmála, að »konungur láti

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.