Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Page 78

Eimreiðin - 01.05.1908, Page 78
i58 aða fylkingu með hvössum rana eða broddi, í líking við svínsrana. I’ó geti ranarnir verið fleiri en einn. Sú fylking hafi verið löguð og ætluð til árásar, til að brjótast gegnum mikinn fjandmannaher. Hitt, sem menn kölluðu að »fylkja hamalt«, hafi aftur verið kollótt fylking, lokin skjöldum, og verið til þess ætluð, að verjast árásum fjandmanna á her.göngu í óvinalandi. þetta komi líka heim við lýsingu Markúsar Skeggjasonar í Eiríksdrápu: Röndu lauk um rekka kindir hamalt (knáttu hlífar glymja) risnumaðr, svát hver tók aðra; hildingr fylkði liði miklu. Lýsingarorðið »hamall« muni vera skylt orðunum »hamalkyrni«, »hamla« = kollótt kýr og »hamall« = geltur hrútur (tvö síðari orðin koma þó hvergi fyrir í fornmálinu í þessari merkingu, svo vér til vitum), og hljóti því upphaflega að tákna vöntun á einhverju framstandandi; og þegar um fylking sé að ræða, þá tákni það kollótta fylking, sem vanti hina vanalegu rana eða framstandandi horn. V G. VÖI.SUNGA SÖGU og HRAFNKELS SÖGU FREYSGOÐA hefir hinn norski málfræðingur Torleiv Hannaas, sem fyrir skömmu ferðaðist á Islandi, nýlega gefið út fyrir »Landsmaals-Laget« (Oslo 1907), ásamt þýðingu á þeim á norsku sveitarmáli. Er frumtextinn prentaður á annarii blaðsíðunni, en þýðingin á hinni, beint á móti, t. d, þannig: Brimrúnar skaltu gora, ef þú vilt borgit hafa á sundi seglmörum; á stafni skal þær rísta ok á stjórnar blaði, ok leggja eld í ár. Brimruner skal du gjera, um berga du vil seglhestar paa sjo. Paa stammen deim rist og paa styre-bladet, og svid deim i aari inn. Má af þessu dæmi sjá, hve nærri sveitamálið norska getur komist fornmálinu, þegar bezt lætur. Hér mun þó galli á þýðingunni, því »ár« mun hér ekki eiga að tákna skipsár, heldur rúnabókstafinn ár. V. G. ORKNEY AND SHETLAND OLD-LORE. Nr. 1 — 6. 1907—8. Þetta er nafnið á tímarití einu, sem félagið »Viking Club« gefur út í Lundúna- borg, Rit þetta er safn til sögu Orkneyja og Hjaltlands. Þar verður og öllu safnað saman, er snertir sögu Norðmanna bæði í Orkneyjum, Hjaltlandi og Norður-Skotlandi. Efninu er safnað á allan hátt, úr prentuðum bókum, handritum, fornmenjum, þjóð- sögnum o. s. frv. Auk þess flytur tímaritið stuttar greinar, spurningar og svör um alt, er að þessu efni lýtur. Tímarit þetta hóf göngu sína í jan. 1907 (4. hefti á ári) og hefir flutt margar góðar og fróðlegar ritgerðir. Landi vor, dr. Jón Stefansson, hefir t. d. ritað um Bjarna biskup Kolbeinsson og höfund Orkneyingasögu. í^ar er og tekinn upp úr Eljótsdæla sögu kafli sá, sem á að hafa farið fram á Hjaltlandi. I hverju hefti er kafli at »Fornbréfasafni Orkneyinga og Hjaltlendinga« (Diplomatarium Orcadense et Hjaltlandense). Titill safnsins er á þremur málum: latínu, íslenzku og ensku. Forn- bréf þau, sem ekki eru á enskri tungu, eru þýdd á ensku. Þýðingarnar eru prent- aðar við hliðina á frumritunum. Dr. Jón Stefánsson, sem er einn af varaforsetum félagsins, annast þýðingar þessar. Bréfin í síðasta heftinu eru frá 16. öld. Þau af þeim, sem eru rituð í Orkneyjum og Hjaltlandi, eru á enskri tungu. í þessum ensku

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.