Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Page 24

Eimreiðin - 01.05.1910, Page 24
IOO tilraunir, má nefna Moritz Wagner, Nágeli, Karl E. von Baer, A. v. Kölliker, August Weissmann, Julius Sachs o. fl.; en vér verðum að leiða þá hjá oss, þó þeir hafi margt merkilegt ritað. Margir þeirra, sem algerlega hafna Darwínskenningu, hafa þó á ýmsan hátt reynt að gera sér grein fyrir framþróun tegundanna; en tilraunir þeirra og tilgátur hafa enn að svo komnu ekki leitt til neinnar þeirrar niðurstöðu, sem aðrir náttúrufræðingar alment gætu felt sig við. Margir hafa aftur tekið upp skoðanir Jean La■ marcks (1744—-1829); hann ætlaði, sem kunnugt er, að mismun- andi lífsskilyrði kæmu breytingunum til leiðar, og mismunandi notkun líffæra og lima; dýr og jurtir mundu þannig smátt og smátt aðlagast umhverfinu; Darwín kannaðist við, að þessi atriði hefðu töluverða þýðingu, en hann áleit náttúruval í lífsbaráttunni vera aðalorsök breytinganna. Mikill flokkur náttúrufræðinga fylgir kenningum Lamarcks í þessu (Neó-Lamarckismus) og bætir ýmsu við. Peir gera ráð fyrir því, að aðalorsök breytiþróunar sé bein áhrif hinnar ytri náttúru, enda sýnir það sig, að náttúran getur oft ótrúlega fljótt breytt hinu ytra útliti tegundanna. Peir ætla ennfremur, að smábreytingar hlaðist saman ósjálfrátt, sem hent- ugar eru, og að þær gangi að erfðum. Pessu mótmæla margir aðrir; þeir sjá enga ástæðu til, að hentugir eiginleikar safnist saman, nema einhver óskiljanleg innri hvöt reki þá til þess, og menn hafa reynslu fyrir því, að flestir eiginleikar, sem af áhrifum umhverfis stafa, hverfa aftur í næstu ættliðum, ef umhverfið breyt- ist. Lamarcks-sinnum veitir alveg eins örðugt eins og Darwíns- mönnum, að gera skiljanlegar orsakir framþróunarinnar og hið insta eðli lífsins. Ný-Lamarckingar þeir, sem dýpra hafa leitað, hafa ekki getað komist hjá því, að hugsa sér hulinn tilgang í náttúrunni, sem kemur í stað hins knýjandi náttúruvals í Darwínskenningunni; og út af því hafa svo hjá mörgum spunnist hugrenningar, sem meir virðast snerta heimspeki, dulspeki og guðfræði, heldur en náttúru- vísindi. Sumir hugsa sér lífskraft, ólíkan öllum öðrum kröftum, gangandi gegnum og viðhaldandi öllum lifandi verum (Neó-vítah's- mus); þar er framþróunareðlið þegar frá upphafi lagt í hinn minsta dropa af lifandi frymi. Aðrir segja, að lífið alt, frá því lægsta til hins hæsta, sé eiginlega sálarlíf, utan að komandi, yfirnáttúrlegur (transscendental) kraftur, sem lagar hið efnislega eftir því, sem hentugast er fyrir umhverfið (Psýkó-bíólógí). Aðallcjarninn í kenn-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.