Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1994, Síða 17

Tölvumál - 01.10.1994, Síða 17
Október 1994 að stærstum hluta sama fólkið og árið áður en nokkrir nýir bættust í hópinn. A fundunum var áhersla lögð á að kynna vinnuferlið fyrir þátttakendum en skipulag tölvu- samskiptanna og önnur vinna milli fundanna frá hausti til vors var í mun fastara formi en árið áður. Að fundunum loknum var þátttakendum skipt í 7 svokallaða nethópa og var reynt að hafa ein- ungis einn kennara úr hverjum skóla í hverjum nethóp. Þetta var gert til að auka virkni og ábyrgð hvers einstaklings. Þátttakendur unnu síðan til skiptis í nethópum og skólahópum sem myndaðir voru í hverjum skóla fyrir sig. Vinnuferlið var með þeim hætti að kennarar byrjuðu einir hver fyrir sig með athuganir í eigin stofu eða á eigin kennslu. I um- fjöllun um fyrsta þáttinn, náms- umhverfið, veltu þeir fyrir sér hvaða þætti í námsumhverfinu ætti að meta og hvemig. Þar næst hittust skólahópar hvers skóla og unnu áfram og komust að sam- eiginlegri niðurstöðu. Þegar því var lokið tóku nethópamir til starfa og hver kennari skilaði tillögum síns skólahóps út í sinn nethóp og var jafnframt talsmaður síns skóla- hóps þar. Þegarnethóparnirhöfðu komist að sameiginlegri niður- stöðu kynntu þátttakendur þær fyrir skólahópunum sem tóku þær til nánari umfjöllunar. Þetta ferli var endurtekið nokkrum sinnum. Tilgangurinn með þessari endur- tekningu var að nálgast samhljóða tillögur alls hópsins. Að endingu sendi hver nethópur sínar tillögur ápóstlista sem samanstóð af öllum þátttakendum og þar fór fram lokaumræða. Umsjónarmenn söfnuðu síðan niðurstöðum saman og gengu frá þeim til útprentunar og sendu í þátttökuskólana. Allan þennan tíma voru umsjónarmenn í sambandi við þátttakendur bæði sem nethópa og sem einstaklinga. Sendu þeir fræðsluefni til allra þátttakenda, vöipuðu fram spurn- ingum og komu með ábendingar um lesefni. Einnig fór drjúgur tími í tæknilega aðstoð varðandi tölvusamskiptin. Ekki reyndist tími til að fjalla urn samskipta- þáttinn á þennan hátt og því var ákveðið að gera honum skil á sameiginlega fundinum í lokin. Hann var haldinn á Kópaskeri og Elísabet Berta Bjamadóttir var fengin til að fjalla um samskipta- þáttinn og nefndi hún umfjöllun sína Kerfiskenningar og sam- skipti, stofnunin - starfsmaðurinn - barnið. Síðari hluti fundarins Hvaða áhrif hefur það á fræðslufundaþátttöku þína ef fræðslan og samskiptin byggjast að einhverju leyti á tölvusamskiptum? 17 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.