Tölvumál - 01.10.1994, Blaðsíða 37
Október 1994
Könnum saman lóð og mó!
Forrit um umhverfið
Eftir Sólrúnu Hardardóttur og Torfa Hjartarson
Þróunarstarf í
gagnasmiðju
Eitt af hlutverkum gagna-
smiðju Kennaraháskóla íslands
er að aðstoða og leiðbeina kenn-
aranemum, kennurum og öðru
starfsliði skólans við gerð náms-
efnis og kennslugagna. Starfs-
mönnum hennar er meðal annars
ætlað að fylgjast með þróun og
nýjungum á sviði námsefnis-
gerðar, kennslutækni og hvernig
hagnýta megi tæknimiðla í skóla-
starfi. Við Kennaraháskólann er
mikill áhugi á hvers konar þróun-
arstarfi og þar eru bundnar tals-
verðar vonir við þá margbrotnu
möguleika sem tölvur veita til
náms og kennslu. A síðasta ári
hófst í gagnasmiðju vinna við
umfangsmikið þróunarverkefni á
sviði gagnagerðar fyrir tölvur.
Um forritið
Um er að ræða efni ætlað 10-
12 ára nemendum í grunnskóla.
Notandinn slæst í för með nem-
endum í Skuggaskóla og fer í
vettvangsferðir um nokkur svæði
af því tagi sem víða má finna í
nágrenni íslenskraskóla. Notand-
inn fikrar sig áfram með músar-
smellum,hanngeturráðiðnokkru
um það hvaða leið hann fer og
með hverjum. Ýmis óvænt atvik
koma upp á, en flest tengjast þau
á einhvern hátt því sem á vegi
nemendanna verður, lífríki og
náttúru. Beitt er Ijósmyndum,
teikningum, texta og hljóðum til
að fjalla um einstakar plöntur,
fugla og dýr, gróðurlendi, fersk-
vatn og fjöru. Því verður einnig
lýst hvernig best er að bera sig að
við náttúruskoðun og úrvinnslu
þegar heim í skólann er kornið.
Efnið ætti því, öðrum þræði, að
verða kennurunt lil leiðbeiningar
um vinnubrögð við umhverfis-
fræðslu. Meginmarkmiðið er þó
að opna augu nemenda fyrir nátt-
úrunni í umhverfinu, veita fræðslu
um útbreiddar íslenskar lífverur,
vekja þá til umhugsunar um nátt-
úruspjöll ogdragafram mikilvægi
náttúruverndar.
Styrkir og höfundar
Pokasjóður Landverndar og
Rannsóknarsjóður Kennara-
háskóla íslands hafa veitt styrki
til verksins. Ennfremur hefur
Apple-untboðið á íslandi lánað
Kennaraháskólanum búnað til
vinnu að verkefnum sem þessum.
Af hálfu gagnasmiðju vinna þau
Sólrún Harðardóttirverkefnastjóri
og Torfi Hjartarson forstöðu-
maður að efninu og hafa samvinnu
viðHrefnuSigurjónsdótturdósent
í líffræði. Jón Agúst Pálmason
teiknari teiknar flestar myndir.
Gagnasmiðja sér þó um liti,
frágang og útlit og ýmsir l'leiri
leggja til teikningarog ljósmyndir.
Fyrsti hluti efnisins nefnist
Könnum santan lóð og ntó. Ef vel
gengur kunna að sigla í kjölfarið
hlutarnir Könnum saman fjöru og
sjó og Könnurn saman vatn og
skóg en þess ber að geta að vegna
anna í sntiðjunni verður tími til
þróunarstarfa oft alltof lítill.
Sólrún Harðardóttir og
Torfi Hjartarson eru starfs-
menn Gagnasmiðju KHl
Punktar...
Öruggari
greiðslukort
Nýlega var í fréttum hér á
landi að töluvert væri unt að
búin væru til fölsuð greiðslu-
kort. En núna stendur til að
bæta úrþessu. Næstakynslóð
greiðsl ukorta verður einfaldari
í nolkun og verður að auki
mun öruggari. Nýlega náðist
samkomulag á milli VISA og
Mastercard um sameiginlegan
staðal sem byggir á notkun
tölvukubbs í kortunum. Þá
verður í stað núverandi segul-
rákar settur í kortið tölvu-
kubbur. Ef einhverjum tekst
að brjóta öryggiskerfi nýju
kortanna þá er hægt að brey ta
hugbúnaðinum í kortinu á
einfaldan hátt og taka þannig
í notkun nýtt öryggiskerfi eftir
þörfum.
37 - Tölvumál