Tölvumál - 01.10.1994, Page 35
Október 1994
Poulsen reit árið 1992 um reynslu
NKI af fjarkennslu um tölvur,
segir hann:
". ..nemendurnir hafa náð betri
einkunnum en hvort heldur nem-
endur bréfaskóla eða þeir nemend-
ur, senr sækja kennslustundir.
Kannanir sýna, að nemendur hafa
jákvætt viðhorf til námsefnisins
og The Electronic College."
Fjarkennsla um
tölvur á íslandi
Nokkur hreyfing hefur verið
hér á landi í fjarkennslumálum
um tölvur. Þar er fyrst að nefna
viðamikið nánr, sem boðið er á
vegum íslenska menntanetsins í
ýmsum þáttum tölvusamskipta.
Þá hafa Armúlaskólinn í Reykja-
vík og Fjölbrautaskólinn á Akra-
nesi unnið nokkuð á þessu sviði.
Einnig hafa aðrarkennslustofnanir
reynt fyrir sér, svo sem Kennara-
háskóli Islands.
Þegar farið var af stað með
fjarnám við Verkmenntaskólann
á Akureyri á vorönn þessa árs, var
því ekki um að ræða algert braut-
ryðjendastarf. Grundvöllurinn
hafði verið lagður og þá fyrst og
fremst í Islenska menntanetinu,
en einnig í verkum þeirra sem
franr til þessa hafa verið að feta
sig eftir braut fjarkennslumála um
tölvur og munu vonandi halda
því áfram.
Viðmiðfjarkennslu
um tölvur við
Verkmenntaskólann á
Akureyri
í undirbúningi fjarkennslunnar
við Verkmenntaskólann á Akur-
eyri settu þeir, senr að honunr
stóðu, undirritaðurog Adam Osk-
arsson, tölvukennari og tölvu-
umsjónarmaður skólans, nokkur
ákveðin viðnrið þegar í upphafi.
Þau voru sett til þess að reyna að
tryggja það, að jákvæð viðhorf
yrðu til þess starfs, sem jafnt
kennarar sem nemendur inntu af
hendi, og að árangur, svo sem á
prófum, yrði sem óumdeildastur
og raunhæfastur.
I fyrsta lagi var ákveðið, að
nemendur í fjarnáminu skyldu
teljast nemendur skólans á sarna
grunni og þeir nemendur, sem til
dæmis stunda nám við öldunga-
deildir hans. Þeiryrðu þvískráðir
og stunduðu nám sitt á sörnu
forsendum og aðrir nemendur
stofnunarinnar; námsárangur
þeirra yrði færður til bókar jafnt
sem annarra nemenda og þeir
fengju ferilskrár jafngildar þeim,
sem aðrir nemendur fá í hendur.
Við teljurn þessi atriði skipta
miklu nráli. Þau gefa nemendum
skilgreinda stöðu, en það getur
haft veruleg, jákvæð áhrif jafnt
fyrir nemendur sjálfa sem aðra.
Þetta rennir líka stoðurn undir
það, að nám nemandans verði
skoðað semjafngiltþví, sem aðrir
stunda við stofnunina.
Þá var ákveðið, að kennslan
skyldi rniðast við þá áfanga, sent
kenndir eru við skólann, þannig
að nemendur færu yfir franrhalds-
skólanánrsefni í hlutaðeigandi
greinum á sama tíma og aðrir
nemendur við skólann og sem
mest samstiga þeirn. Því yrði
námsefninu skipt í hluta, sem
gengju upp í viðmiðunarönn fram-
haldsskólans og að þeir lægju fyrir
að fullu við upphaf náms sem
kennsluáætlun.
Þetta þykir okkur skipta miklu.
I því felst fast skipulag, sem gerir
það meðal annars að verkum að
nemendur hafa þegar í upphafi
yfirsýn yfir það, sem gera á, og
einnig þann tíma, sem fara á í
verkið. Þessir þættir eru kennslu-
fræðilega veigamiklir, þar sem
miklu skiptir fyriralla, sem í verki
eru, að hafa vitund um umfang
þess. Slík yfirsýn verkar sem
beinn hvati til verka og er þekkt
fyrirbæri á öllum sviðurn mann-
legra athafna.
Einnig var ákveðið í upphafi,
að föst skilaskylda yrði á verk-
efnum. Sé tekið dæmi af ensku,
var námsefninu skipt í tólf hluta
eitt á hverja af tólf vikum. A
vorönn var verkefni sett fyrir
hvern laugardag. Skil áttu að
hafa borist laugardaginn viku
síðar. Þá var lagt fyrir næsta verk-
efni, hvað sem leið skilum nem-
enda. Nemendurhöfðu þó í reynd
hálfan nránuð sem hámarkstíma
til skila, en ef skil drógust lengur
en svo, strikaðist nemandi sjálf-
krafa út af nemendaskrá, nema til
kæmu sérstök afbrigði.
Þessi skilyrði voru skýrð fyrir
nemendum þegar í upphafi. Til
þess kom aldrei, að nemandi skil-
aði ekki innan tilsetts tíma. Hins
vegarkom skilaskyldan í veg fyrir
það, að nemendur drægju námið
á langinn og gufuðu síðan upp.
Enginn kvartaði undan þessari
kvöð, heldur töldu ýmsir hana
einn traustasta þáttinn í kennsl-
unni, af því að hún hélt þeim við
efnið og krafði þá til vinnu.
Einmitt þessi atriði liggja að baki
hugmyndinni um skilaskylduna.
Fjórða viðmiðið, sem ákveðið
var þegar í upphafi, var, að aldrei
skyldi lagt fyrir sem verkefni
nokkuð það, sem ekki væri unnt
að vinna á tölvur og senda í gegn-
um ismennt-netið. Hérerekki átt
við til dæmis ítarefni, kennslu-
bækur og segulbandsspólur, sem
nemendur hafa eins og aðrir
nemendur við skólann. Þau eru
send út fyrir námsbyrjun í pósti
frá skólanum eða fyrir nrilligöngu
bókaverslunar.
Hér er ekki verið að hafna
þeim boðleiðum, sem fyrir hendi
eru. Póstur er notaður, eins og
þegar hefur komið fram. Einnig
verður notaður sími, þegar kanna
þarf til dæmis framburð nemenda
og önnur alriði. Hins vegar hafa
35 - Tölvumál