Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1994, Qupperneq 39

Tölvumál - 01.10.1994, Qupperneq 39
Október 1994 Kennsluforrit fyrir skóla og heimili Eftir Hönnu Kristínu Stefánsdóttur Eins og flestum er kunnugt er Námsgagnastofnun ætlað sam- kvæmt lögunr að annast náms- gagnagerð fyrir grunnskólann. Með orðinu námsgögn er alls ekki átt við kennslubækur eingöngu, heldur einnig vinnubækur alls konar, kennsluleiðbeiningar, handbækur, fræðslumyndir, skyggnur, kort, glærur, námspil, veggspjöld og síðast en ekki síst kennsluforrit. Það ersameiginlegt með kennsluforritum og fræðslu- myndum að mörg þeirra henta einnig fyrir nenrendur á fram- haldsskólastigi. Útgáfa kennsluforrita hófst árið 1988 með samstarfi Námsgagnastofnunar, Reikni- stofnunar Háskóla Islands og menntamálaráðuney tisins, en árið 1992 fluttist þetta verkefni alfarið til Námsgagnastofnunar, en ráðuneytið veitir fé sérstaklega til þessa verks. Viðamikil útgáfa kennsluforrita Útgáfa kennsluforrita er all- viðamikilhjáNámsgagnastofnun. Gefin hafa verið út nær 90 kennsluforrit til notkunar í skólum ogmörgþeirraeru til sölu íSkóla- vörubúð til almennrar notkunar, - enda eiga þau fullt erindi í heimilstölvuna. Með öllum for- ritunum fylgja handbækur með leiðbeiningum um tækjabúnað, uppsetningu, notkun o.tl. Auk forrita Námsgagnastofnunar eru nokkur íslensk forrit í umboðssölu í Skólavörubúðinni. Bæði íslensk og erlend kennsluforrit Flestkennsluforritineruaferl- endum uppruna, einkurn frá Norðurlöndunum en einnig frá Bandaríkjunum og Bretlandi. íslensku forritin eru urn 17 talsins og eru höfundar í ilestum tilvikum kennarar á ýmsum skólastigum sem jafnframt vita einna best hvar þörfin er mest fyrir viðbótarefni. Forritin frá Norðurlöndunum eru flest frá Dataprogramgruppen semervinnuhópurá vegumNorr- ænu ráðherranefndarinnar. Þessi vinnuhópur var settur á laggirnar 1984 og var tilgangurinn m.a. að stuðla að franrleiðslu kennslu- forrita og forritaskiptum. Og það hefur Dataprogramgruppen svo sannarlega gert. Hvert landanna fimm, ísland, Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð, eiga árlega að leggja fram 4 forrit og fá 16 önnur til baka. Þessurn forritum er dreift endurgjaldslaust milli landanna og þarf hvert land því einungis að greiða þýðingar- og útgáfukostnað af þeim forritum sem valin eru til útgáfu í viðkom- andi landi. Námsgagnastofnun tekur þátt í þessari vinnu l’yrir íslands hönd. Við höfurn fengið um 50 forrit í gegnum þetta sam- starf en Iagt til 10 forrit í staðinn. Við val á þeim forritum sem gefin hafa verið út á þessum vettvangi hefur það sjónarnrið verið haft að leiðarljósi að forritin séu vönduð frá kennslufræðilegu sjónarmiði og á síðustu árum hefur æ meiri áhersla verið lögð áfallega hönnun. Kennsluforrit í flestum námsgreinum Kennsluforritin tengjast mörg- um námsgreinum, flest stærðfræði en einnig lestrarkennslu, málfræði og ritun, ensku, eðlis- og efna- fræði, líffræði, landafræði, heim- ilisfræði, tónmennt o.l'l. Forritin konra ekki í staðinn fyrir svokallað grunnnámsefni heldur eru þau hugsuð sem viðbót við önnur kennslugögn í skólun- um, ýrnist fyrir þá senr þurfa þjálfun í ákveðnum námsþætti eða þá sem þurfa fleiri viðfangsefni að glíma við - eða hreinlega til tilbreytingar. Barn sem þarf t.d. sérstaka þjálfun í reikningi lítur frekar á þjálfunina sem skemmti- legan leik ef það fær að sitja við tölvuna og sýna þar leikni sína heldur en ef það fær blað og blýant í hendur. Kennsluforritin eru ýmist notuð inni í kennslustofu þarsem ein tölva er til reiðu fyrir einn nemanda eða lítinn hóp nemenda í einu. Einnig eru tölvur víða nýttar í sérstökum tölvustofum þar sem margir nemendur koma saman og vinna þá gjarnan tveir við hverja tölvu. 39 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.