Bókasafnið - 01.02.1988, Blaðsíða 13
BÓKASAFNIÐ
Hótel Saga og umhverti.'í nýju álmunni, næst á myndinni, var ráöstefnan haldin. (Ljósm. Gunnar V. Andrésson)
16. ráðstefna Alþjóðlegu
skólasafnasamtakanna
haldin í Reykjavík 26. -31. júlí 1987
Ingibjörg
Sverrisdóttir
bókavöröur
Fjðlbrautaskólans
íBreiðholtl
Dagana 26.-31. júlí 1987 var haldin á Hótel
Sögu í Reykjavík árleg ráðstefna Alþjóðlegu
skólasafnasamtakanna (International Associa-
tion of School Librarianship = LASL). Undir-
búningur hafði þá staðið í nær tvö ár, en í undir-
búningsnefnd sátu: Dr. Sigrún Klara Hannes-
dóttir, HÍ, formaður, Ragnheiður Heiðreks-
dóttir, HÍK, ritari, Halldóra Kristbergsdóttir,
Skólavörðunni, gjaldkeri, Bjarni Ólafsson,
HÍK, Ingibjörg Sverrisdóttir, Skólavörðunni,
✓
Sólveig Þorsteinsdóttir, Bókavarðafélagi Is-
lands, Þórdís Þórarinsdóttir, Félagi bókasafns-
fræðinga.
Undlrbúnlngur
Forsaga málsins er sú að síðla árs 1985 barst bréf til
Sigrúnar Klöru Hannesdóttur frá Alþjóðasamtökunum
þar sem þess var farið á leit við íslendinga að þeir sæju
um ráðstefnuhaldið 1987. Sigrún Klaraboðaði til fundar
með formönnum Skólavörðunnar, Bókavarðafélagsins,
Félags bókasafnsfræðinga og Félags skólasafnvarða,
þar sem málin voru rædd og ákveðið að félögin yrðu við
þessari ósk og svar var sent til baka. Málin þróuðust þó
á þann veg að Félag skólasafnvarða dró sig út úr undir-
búningi en hins vegar urðu Hið íslenska kennarafélag og
Háskóli íslands aðilar að ráðstefnuhaldinu.
Fljótlega var tekin ákvörðun um að felaFerðaskrif-
stofu ríkisins að sjá um farseðla, hótelpantanir og ýmis
framkvæmdaatriði varðandi ráðstefnuna og létti það
óneitanlega störfin fyrir undirbúningsnefndina.
Ráðstefnan var auglýst bæði innanlands og utan,
m.a. í erlendum bókavarðatímaritum, og Sigrún Klara
sótti ráðstefnuna 1986 í Kanada og auglýsti þá bæði land
og þjóð. Um áramótin 1986-87 fóru fyrstu umsóknimar
að berast, fyrst hægt og rólega, en síðan komu þær jafnt
og þétt. Umsóknarfrestur íslendinga var heldur lengri og
13