Bókasafnið - 01.06.1996, Page 12
Nákvæmnisstuðull (e. precision ratio) heimildaleitar er
hlutfall gagnlegra heimilda af heildarfjölda þeirra heimilda
sem koma fram við leit. Ef aðeins 6 heimildir eru gagnleg-
ar fyrir notanda í tiltekinni heimildaleit, sem skilaði alls 57
heimildum, þá er nákvæmnishlutfallið 6/57 eða tæplega
10%.
Leitarheimtustuðull (e. recall ratio) er nefnt það hlut-
fall gagnlegra heimilda, sem kemur fram í tiltekinni heim-
ildaleit, af öllum mögulegum gagnlegum heimildum í til-
teknum gagnabanka. Ef 6 af 11 mögulegum gagnlegum
heimildum koma fram við leit þá er hlutfallið 6/11 eða um
54%.
Hækkaður leitarheimtustuðull er oftast óhjákvæmilega á
kostnað nákvæmnisstuðulsins, því leitarforsendur eru víkk-
aðar þannig að útkast verður hlutfallslega meira.
Til að tryggja sem nákvæmastar leitarheimtur er þannig
nauðsynlegt að gæta nákvæmni við lyklun heimilda og
gaumgæfa að valorð lýsi innihaldi heimilda á markvissan og
hnitmiðaðan hátt.
Lokaorð
Kerfisbundin efnisorðaskrá er, eins og áður hefur kom-
ið fram, n.k. staðlaður listi viðurkenndra heita sem nota má
til að lýsa efnisinntaki heimilda. Slík skrá er mikilvægt
hjálpartæki bæði fyrir þá sem lykla og þá sem leita heimilda
því hún stuðlar að samkvæmni við lyklun, bæði innan
sömu stofnunar og milli einstakra stofnana. Samkvæmni í
lyklun tryggir aftur á móti öruggari og markvissari leitar-
heimtur þeirra sem þurfa að leita sér upplýsinga um til-
tekna efnisflokka, hvort sem er fyrir leik eða starf.
Tiltölulega stutt er síðan farið var að lykla heimildir og
gefa þeim efnisorð í tölvum á bókasöfnum hérlendis. Til
að stuðla að samkvæmni í lyklun bókasafna á milli væri
æskilegt að íslensk bókasöfn stæðu sameiginlega að
stefnumörkun um efnisorðagjöf, t.d. með því að stofna
virka Efnisorðanefnd bókasafna þar sem fulltrúar allra
safnategunda ættu sæti. Nefndin setti síðan fram stefnu-
markandi reglur um lyklun sem samstaða myndaðist um
meðal bókasafna að fylgja.
Höfimdur er bókasafiisfrœðingur meðframhaldspróf (M.L.S.)
frá háskólanum í Albany, NY. Starfar nú sem forstöðumaður
Bókasafhs Menntaskólans við Sund.
HEIMILDIR:
Aitchison, Jean og Alan Gilchrist. 1987. Thesaurus construction : a pract-
ical manual. 2nd ed. London : Aslib.
Aitchison, Jean. 1991. Subject control: thesaurus construction standards.
Standards for the international exchange of bibliographic information :
papers presented at a course held at the School ofLibrary, Archive and In-
formation Studies, University College London, 3-18August 1990. Ed. by
I.C. Mcllwaine. London : Library Association. S. 128-136.
Chan, Lois Mai. 1989. Inter-indexer consistency in subject cataloging.
Information technology and libraries 8(4) Dec.: 349-358.
Dewey, Melvil. 1976. A classification and subject index for cataloguing and
arranging the books and pamphlets of a library. Albany, NY : Forest
Press (ljóspr. eftir 1. útg. 1876).
Fugmann, Robert. 1993. Subject analysis and indexing: theoreticalfounda-
tion andpractical advice. Frankfurt/Main : Indeks Verlag.
Heimildaskráning - aðferðir við athugun heimilda, greiningu á efnipeirra og
val efriisorða = Documentation - Methods for examining documents, det-
ermining their subjects, and selecting indexing terms. 1994. Flokkunar-
nefnd þýddi. Reykjavík : Staðlaráð íslands. (ÍST ISO 5963:1985).
Heimildaskráning - leiðbeiningar um gerð og próun kerfisbundinna efnis-
orðaskráa á einu tungumáli = Documentation - Guidelines for the esta-
blishment and development of monolingual thesauri. 1991. Flokkunar-
nefnd þýddi. Reykjavík : Iðntæknistofnun íslands. (ÍST 90).
Lancaster, F.W. 1985. Thesaurus construction and use: a condensed course.
Paris : Unesco.
Lancaster, F.W. 1986. Vocabulary controlfor information retrieval. 2nd ed.
Arlington, VA : Information Resources Press.
Lancaster, F.W. 1991. Indexing and abstracting in theory and practice.
London : Library Association.
Library of Congress Subject Headings. 1989. 12th ed. Prepared by Subject
Cataloging Division Processing Services. Washington, DC : Catalog-
ing Distribution Service.
Margrét Loftsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. 1992. Kerfisbundin efiiis-
orðaskrá (thesaurus) jyrir bókasöfn. Reykjavík : Höf.
Margrét Loftsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. 1996. Kerfisbundinn efn-
isorðalykill (thesaurus) fyrir bókasöfh. 2. útg., aukin og endurskoðuð.
Reykjavík : Höf.
Medical Subject Headings. 1975-. Bethesda : US Dept. Of Health and
Human Services.
Orna, Elizabeth. 1983. Build yourself a thesaurus : a step by step guide.
Norwich : Running Angel.
Ólafur F. Hjartar. 1967. Orðasafhsskrá (dictionary catalogue) - tugaskrá eða
flokkuð skrá (classified catalogue). Reykjavík : Höf.
Piternick, Anne B. 1990. Vocabularies for online subject searching : in-
troduction. Encyclopedia of library and information science: supplement
10. New York : Marcel Dekker. 45 b.: 399-420.
Reich, Phyllis og Erik J. Biever. 1991. Indexing consistency : the in-
put/output function of thesauri. College & research libraries 52 (July)
4: 336-342.
Sears, Minnie Earl. 1994. Sears List of Subject Headings. 15th ed. Ed. by
Joseph Miller. New York : Wilson.
Sweeney, Russel. 1991. Dewey Decimal ClassiFication : an international
standard. Standards for the international exchange of bibliographic in-
formation : papers presented at a course held at the School of Library,
Archive and Information Studies, University College London, 3-18 Aug-
ust 1990. Ed. by I.C. Mcllwaine. London : Library Association. S.
146-150.
Townley, Helen M. og Ralph D. Gee. 1980. Thesaurus-making : grow
your own word-stock. London : Deutsch.
Williamson, Nancy J. 1991. Subject cataloguing and LCSH. Standards
for the intemational exchange of bibliographic information : papers pres-
ented at a course held at the School of Library, Archive and Information
Studies, University College London, 3-18 August 1990. Ed. by I.C.
Mcllwaine. London : Library Association. S. 137-145.
Þórdís T. Þórarinsdóttir. 1992. Efnisgreining gagna og heimildaleitir í
tölvuumhverfi. Bókasafiiið 16: 13-16.
Þórdís T. Þórarinsdóttir. 1992. íslensk efnisorðaskrá. íslensk bókfraði í
nútíð ogframtíð: ráðstefha haldin á Akureyri 20.-21. september 1990.
Ritstjóri Sigrún Magnúsdóttir. Akureyri : Háskólinn á Akureyri. S.
23-34.
SUMMARY
Thesauri : their construction and utility value in indexing
Discusses the construction and use of thesauri in indexing. Defines
the term indexing. Compares classification vs. indexing in content analys-
is and delinates the advantages and disadvantages of both methods. Traces
in brief the history and development of thesauri. Compares natural and
controlled indexing language and lis'ts the strengths and weeknesses of
both methods. Discusses post-coordinate and pre-coordinate indexing
languages, further the international standard on the establishment and
development of monolingual thesauri (ISO 2788) as well, e.g. preferred
and non-preferred terms, the abbreviations and symbols and the cate-
gories of data for which standardized terms are needed. Reports on the
2nd edition of a general thesaurus in Icelandic and shows entry examples.
Describes the international standard ISO 5963 on methods for examing
documents, determining their subjects and selecting index terms. Makes
suggestions for an indexing policy and depicts the utility value of thesauri.
Discusses quality control in indexing and the problem of indexing con-
sistency. Concludes by discussing precision and recall ratio in information
retrieval and encouraging a cooperative Icelandic indexing policy, e.g. by
establishing a Subject Indexing Committee on national level.
Þjoðskjalasafn
íslands
Laugavegi 162 * 105 Reykjavík
Lestrarsalur, Hverfisgötu eropinn kl. 10-18.
12 Bókasafhið 20. árg. 1996