Bókasafnið - 01.06.1996, Page 14
Dr. Laurel A. Clyde
Heimasíða bókasafna
íslendingar hafa verið mjög fljótir að tileinka sér verald-
arvefinn Internetið. Netið er orðið mikilvægur miðill fyrir
samskipti, endursköpun og framleiðslu upplýsinga. Bóka-
söfnin í landinu endurspegla þessa þróun og sífellt fleiri
bókasöfn hafa komið sér upp heimasíðu á Internetinu.
Virkan lista yfir íslensk bókasöfn með heimasíðu má
finna á síðu minni „Libraries in Iceland on the Inter-
net“(http://www.rhi.hi.is/-anne/icelib.html) á vefsíðu
Bókasafns- og upplýsingafræðinnar við Háskóla íslands.
Þessi síða bíður upp á tengingu við heimasíður bókasafna
af öllum tegundum, þar á meðal Landsbókasafns fslands -
Háskólabókasafns, sérfræðisafna eins og RALA, Háskólans
á Akureyri, almenningsbókasafna og skólasafna (Granda-
skóli í Reykjavík). Fleiri bókasöfn eru með áform um að
setja upp heimasíðu á þessu ári, eins og fram kemur í ný-
legri könnun um bókasöfn á íslandi (rannsókn um upplýs-
ingatækni á bókasöfnum State of the Art 1995/96) fyrir
NORDINFO.
Eftir að spurt hefur verið: „Eigum við að setja upp
heimasíðu?", þá koma næstu spurningar: „Hver getur
hannað síðuna?" og „Hvað ætti að vera á heimasíðunni ?“.
Þróunin gæti jafnvel orðið sú að bókasafnið tæki þá
ákvörðun að setja ekki einungis upp heimasíðu um þjón-
ustu safnsins, heldur heilan upplýsingavef (information
server) með mörgum síðum á Internetinu. Grunnatriðin
eru samt sem áður mjög svipuð.
Við hönnun heimasíðunnar er annað hvort hægt að leita
aðstoðar utanaðkomandi sérfræðings í hönnun heimasíðna
eða þá að starfsmenn safnsins geri hana sjálfir. Sérfræðing-
urinn hefur menntun í að hanna og setja fram upplýsingar
sem bókaverðir hafa ekki. Hins vegar er mjög líklegt að
starfsmenn vilji, fyrr eða seinna, vera með m.a. vegna þess
að fljótlegra er fyrir þá að uppfæra síðuna sjálfir og gera
nauðsynlegar breytingar. Jafnvel þó að ráðinn sé sérfræð-
ingur þá er það starfsfólk bókasafnsins sem þarf að ákveða
hvaða efni á að fara á heimsíðuna. Það eru þeir, eftir allt
saman, sem eru upplýsingafræðingar og þekkja sína not-
endur og sitt samfélag.
Heimasíðan þarfstöðugt viðhald
Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að setja upp
heimasíðu er ekki eitthvað sem gert er einu sinni, heldur er
það stöðug vinna. Það er byrjun á ferli sem varir meðan
heimasíðan er opin fyrir almenning. Þess vegna þarf að
tryggja þegar veittir eru fjármunir í þetta verkefni að það er
ekki bara í eitt skipti heldur til lengri tíma.
Heimasíðunni verður að viðhalda og uppfæra reglulega.
Athuga verður allar tengingar við aðrar síður, til að ganga
úr skugga um að þær séu enn virkar, og að upplýsingar um
safnið séu réttar. Allt þetta tekur tíma. Að auki er tæknilega
hliðin á Internetinu síbreytileg. Með hverri nýrri útgáfu af
hugbúnaði fyrir Internetið, eins og Netscape, opnast nýir
möguleikar á framsetningu upplýsinga, möguleikar sem
stofnanir á íslandi verða fljótar að nýta sér. Ef bókasöfn
fylgjast ekki vel með og uppfæra framsetningu og uppsetn-
ingu gagna á heimasíðu í takt við nýjustu forrit verður hún
fljótt lítið spennandi eða áhugaverð í samanburði við aðrar
síður.
Undirbúningur að hönnun heimasíðu
Besti undirbúningur fyrir hönnun á heimasíðu er að
eyða nokkrum tíma í að skoða heimasíður annarra bóka-
safna (og stofnana með svipaða starfsemi, eins og safna og
lista-gallería). Þetta gefur bókavörðum m.a. innsýn í hvað
er áhugavert fyrir notandann, hvað ekki og hvaða þættir
það eru sem gera heimasíðuna auðvelda í notkun og
skemmtilega. Einnig gæti Ieitin gefið hugmyndir um hvað
mætti vera á heimasíðum íslenskra bókasafna.
Annað mikilvægt atriði við undirbúning heimasíðunnar
er að skilgreina markhópinn og þarfir hans. Á meðan sum-
ir þættir eru nauðsynlegir á heimasíðum opinberra stofn-
anna þá þurfa bókasöfn að vissu marki að ákveða hvað fer
inn á heimasíðuna eftir því hverjir muni væntanlega nota
hana. Undirstöðu spurningarnar eru:
• Hverjum er heimasíðan ætluð?
• Er heimasíðan sett upp til að leiðbeina notendum
hvernig þeir geti nýtt sér gagnasöfn og þjónustu Inter-
netsins?
• Er heimasíðan sett upp til að þjóna stofnuninni, sem
safnið er hluti af, t.d. skóli eða rannsóknarstofnun, hjál-
pa starfsfólki að nýta sér sitt bókasafn og að afla sér upp-
lýsinga utan þess?
• Er heimasíðan notuð sem hjálpartæki í almannatengsl-
um, ná til almennings, bókasafnsnotenda og annarra? Á
heimasíðan að hafa víðtækara hlutverk, t.d. að kynna
bæinn og hvað hann hefur upp á að bjóða?
• Hvert svo sem markmið síðunnar er, er nauðsynlegt að
hafa í huga að allt sem er á Internetinu er opið „heimin-
um„ og notendur geta verið staðsettir hvar sem er í álf-
unni? Því getur skýringa verið þörf á einhverju sem er
mjög augljóst fyrir okkur sem störfum á bókasafninu, en
aftur á móti ekki fyrir utanaðkomandi.
Óháð því hver tilgangur bókasafnsins er með heimasíð-
unni þá eru eftirfarandi atriði nauðsynleg ef hún á að vera
gagnleg væntanlegum notendum.
• Heimasíðan þarf að bera lýsandi titil sem birtist efst á
skjánum, þessi titill er jafnframt leitarhæfur. Flest
Internet leitartæki, eins og Yahoo eða WebCrawler,
reiða sig á þennann dtil sem megin leitarorð. í þessu
samhengi er titillinn á síðunni mikilvægari en fyrirsögn
á skjalinu sjálfu. Titill og fyrirsögn geta verið þau sömu.
• Grafík og ljósmyndir geta gert heimasíðuna mjög að-
laðandi, sérstaklega ef þær eru valdar vandlega með til-
liti til upplýsingagildis og hönnunar. Ef myndir eru of
stórar, flóknar eða margar þá hægir það mjög á birtingu
síðunnar á skjánum. Fyrir notendur, sem eru mjög
tímabundnir eða þurfa að borga tengitíma, getur þetta
atriði verið afdrifaríkt. Þar fyrir utan er leiðinlegt að bíða
lengur en 30 til 60 sekúndur eftir því að síða opnist.
• Heimasíðan ætti að gefa gott yfirlit yfir staðsetningu
bókasafnsins, stjórnun, skipulag, o.s.frv. Fyrir notend-
14 Bókasafnið 20. drg. 1996