Bókasafnið - 01.06.1996, Page 49
stefnum að því að auka hana og gera markvissari efrir því
sem okkar eigin starfshefðir ná betur að mótast. Af sam-
skiptavettvangi er þess helst að geta að fyrri hluta árs 1995
voru teknar saman Reglur um samskrá og hafin ókeypis
samtímaskráning nýrra aðfanga frá þeim áramótum fyrir
nokkur valin söfn til viðbótar við aðildarsöfn Gegnis og
þau samskrársöfn sem áður höfðu látið skrá ritakost sinn
afturvirkt í kerfið. Samskrá um tímarit var starfrækt á sama
grundvelli sem fyrr. Fyrir aðildarsöfnin var komið upp
tölvupóstmiðli til daglegra samskipta. Ætlunin er að taka
saman handbók/dæmasafn um beitingu flokkunar og
marksniðs, þar sem tekið er á valkostum og vafaatriðum, og
geta þá þau aðildarsöfn sem vilja einnig fengið aðgang að
þessum gögnum.
Framtíð í dag, fortíð á morgun
Þegar litið er til baka nokkur ár aftur í tímann, sést að
margar þær framtíðaráætlanir sem fyrrum var óvissa um
eða endalaus bið virtist eftir, hafa nú orðið að nokkuð sjálf-
sögðum veruleika. Varla gerðu t.d. margir ráð fyrir því á ár-
inu 1990, að skrárnar í gömlu eikarskápunum í þjóðarbók-
hlöðusöfnunum yrðu leitarbærar á alheimsneti svo fljótt
sem raunin varð á. Ekki er þar með sagt að svo hafi farið
um allt sem einu sinni var stefnt að. Ræður þar margt um,
skortur á fjármagni, breytt tækni, áherslur og stefnumið.
Víst er það að við erum alltaf að stefna að einhverju nýju
og lifum í þeirri trú að talsverður hluti drauma okkar í dag
verði að veruleika á morgun.
Ævintýri í aldarlok
Við erum hluti af stærra kerfi og þurfum ávallt að hafa
það í huga, m.a. með samvinnu og samráði við aðra, innan
safns og utan. Alþjóðasamvinna er sífellt að aukast og hún
getur styrkt okkur á ýmsa lund og fengið erlenda aðila til
að skynja nýjan veruleika í samvinnunni við okkur. Tölvu-
tæknin og alnetið færa aðra heimshluta inn á skrifborð til
okkar að því marki sem við viljum eða þurfum. Nú er orð-
ið jafn fyrirhafnarlítið að leita í skrám annarra safna og
gagnabönkum af ýmsu tagi og eigin safnskrám. Erfiðleika
sem tengjast notkun margra ólíkra tungumála, eins og t.d.
í Evrópu, má væntanlega yfirstíga áður en langt um líður
og auðvelda þannig upplýsingaleit. Líta má á marktákn
sem alþjóðlegt tungumál, en fyrir flesta sem leita upplýs-
inga í kerfum er leit eftir orðum miklu eðlilegri. Áætlanir
eru á döfinni um samtengingu milli leitarmáls í gagna-
grunnum á ýmsum tungumálum/málsvæðum, og nái þær
fram að ganga ætti einhvern tíma í framtíðinni að vera
unnt að leita eftir efnisorðum á íslensku í íslenskum eða er-
lendum gagnabönkum og finna þannig fram færslur sem
lyklaðar voru í London á ensku eða þýsku í Þýskalandi. Þá
hafa tölvustýrð bókasafnskerfi gjörbreytt ntöguleikum við
útgáfu bókfræðirita. Með forriti því sem nú er byrjað að
nota til að draga út færslur úr Gegni vegna útgáfu íslenskr-
ar bókaskrár má gefa út margvíslegar skrár úr Gegni og
Greini hvort heldur er í rafrænu eða prentuðu formi.
Mannauður
Okkar kynslóð syngur tækninni mikið lof eins og rétt-
mætt er, en eitt má þó aldrei gleymast: undirstaða hennar
og annarra framfara og velferðar er fyrst og síðast hinn
mannlegi þáttur. Landsbókasafn Islands - Háskólabókasafn
þarf vissulega á fleiri starfsmönnum að halda í framtíðinni
til að glíma við öll þau verkefni sem bíða eða hægar geng-
ur að vinna úr en við viljum. Vinnuálagið á starfsmenn hef-
ur því verið mikið á þessu rúma ári sem liðið er síðan safn-
ið tók til starfa. En öllu þokar áfram og í safninu er einvala
lið. Menntun og reynsla sem þar er saman komin er afar
fjölbreytileg og þekkingarsviðið breitt. Frá upphafi hefur
ríkt samhugur og áhugi og ég held að óhætt sé að segja að
flestir starfsmenn líti björtum augum fram urn ófarinn veg.
Höfimdnr er bókasafhs- og íslenskufnzÓingur með framhalds-
menntun frá Strathclyde háskólanum í Glasgow. Starfar nú
sem forstöðumaður skráningardeildar Landsbókasafns íslands
- Háskólabókasafns
Viðauki:
Sjá einnig eftirtaldar heimildir:
Einar Sigurðsson. 1990. Háskólabókasafn 50 ára. Bókasafnið 14: 56.
Einar Sigurðsson. 1995. Miðsvetrarævintýri: Landsbókasafn Íslands-Há-
skólabókasafn tekur til starfa. Bókasafnið 19: 44-48
Finnbogi Guðmundsson. 1980. Úr sögu Safnahússins við Hverfisgötu.
Landsbókasajh íslands - Árbók, nýr flokkur 6: 5-23.
Finnbogi Guðmundsson. 1993. Þjóðarbókhlaða : aðdragandi og fram-
kvæmdir. Landsbókasafn íslands - Árbók, nýrflokkur 19: 19-48.
Finnbogi Guðmundsson. 1981.[ásamt Einari Sigurðssyni] Þjóðarbók-
hlaða : viðbúnaður og framkvæmdir frá upphafi til haustsins 1981.
Landsbókasafii íslands - Árbók, nýr flokkur 7: 81-88.
Gegnismál 1 -3, 1991-1995.
Guðrún Karlsdóttir. 1992. Beinlínutenging við OCLC - notkun í Há-
skólabókasafni. Blöðungur 11(2): 7-9.
Guðrún Karlsdóttir. 1994. Greinasafnið í Gegni II. Fregnir 19(2): 3-5; sjá
og leiðrctcingu í næsta tbl.
Guðrún Karlsdóttir. 1994. Samskrá Gegnis. Fregnir 20(3-4): 6-8.
Guðrún Karlsdóttir. 1994. Skráning tímarits- og blaðagreina í Gegni.
Fréttabréf Háskóla íslands 16(5): 11-13.
Heimildarmyndir Háskóla íslands. [Myndband] 3. 1988. Dr. BjörnSigfús-
son fyrrverandi háskólabókavörður [Reykjavík] : Háskóli íslands. Að
meginhluta viðtal Einars Sigurðssonar við Björn Sigfússon.
ívar Brynjólfsson ásamt Regínu Eiríksdóttur. 1994. Landsbókasafn ís-
lands : myndasyrpa. Bókasafnið 18: 13-15.
Háskólabókasafii - Árskýrsla. Kaflar 7.0-9.0: Tölvuvæðing, Flokkun og
skráning og Samskrá: Árið 1986, s. 16-17; 1988, s. 17-20; 1989, s.
18-21; 1990, s. 22-23; 1991, s. 16-17; 1992, s. 16-20; 1993, s. 14-18.
Landsbókasafn íslands - Árbók. Kaflarnir Þjóðdeild og Deild erlendra rita:
Árið 1979, s. 83-84; 1980, s. 80-81; 1981, s. 101-102; 1992, s. 91-
93; 1993, s. 152-153.
SUMMARY
Forrner card catalogues ofThe University and National Libr-
ary of Iceland available on the Internet
On Dec. lst 1994 the University Library and the National Library
were amalgamated and moved into new premises on the University cam-
pus. The name of the new library is the National and University Library
of Iceland, and it is the largest library in the country. Extensive planning
concerning the amalgamation had taken place years beforehand. Two
major steps taken were the selection of a powerful automated library sy-
stem, and the retrospective conversion of the library card catalogues.
Through a contract (signed 1988), a great part of the retrospective con-
version for foreign holdings was done by the British firm Saztec, which
also undertook the production of smart, e.g. precoordinated barcode
labels for the stock corresponding this share and some older automated
files. Marc was first used in Iceland in 1980 for the production of the
Icelandic National Bibliography 1979, and copy cataloguing, as well as
original cataloguing, had started in 1986 (BiblioFile). Precoordinated bar-
codes were delivered in classified sequences within categories by library
branches, carrying to some extent bibliographic information leading to
the items on the shelves. In 1989 the two libraries made the decision to
select the British library system Libertas as their library system. The con-
tract was signed in 1990, and the library system (Gegnir in Icelandic) was
shortly after that made accessible to users through the University LAN, al-
ready then reflecting most of the library holdings. Since late in 1993
OCLC has been used to retrieve and download into Gegnir entries for
foreign acquisitions. Eight Icelandic libraries use Gegnir at present as their
own library system. Gegnir also houses the Union Catalogue for Period-
icals and a Union Catalogue for Monographs for a smaller number of libr-
aries. Gegnir’s Article Index is housed by Greinir (another Libertas sy-
stem). The first year in the new library has been demanding but fruitful,
its human resources being characterized by good qualities, however still
lacking somewhat in quantity. - GK
Bókasafnið 20. árg. 1996 49