Bókasafnið - 01.06.1996, Side 53
er mjög ódýrt hér og sem dæmi má nefna að ráðsmaðurinn
minn fær mánaðarlega sem svarar 3000 íslenskum krónum
auk 10 kg af maísmjöli og eru þessi laun þó í hærri kantin-
um. Mánaðarlaun verkamanns eru sem svarar 1200 ís-
lenskum krónum og laun malawísks bókasafnsfræðings um
10.000 krónur. Þrátt íyrir þessi lágu laun eru nauðsynja-
vörur dýrar og því á almenningur erfitt með að láta launin
duga út mánuðinn, til samanburðar má nefna að einn líter
af mjólk kostar 44 krónur og brauðhleifur 32 krónur.
Það sem hefur verið hvað erfiðast að sætta sig við hér í
Malawí er að sjá örbirgð íbúanna. Fólk á öllum aldri betlar
á götum úti. Til þess að geta búið hér verður maður að
brynja sig gagnvart því sem fyrir augu ber og sætta sig við
að að ekki er hægt að hjálpa öllum. Hins vegar starfa hér
alls konar góðgerðafélög og sjálf er ég félagi í vinafélagi
Kamuzu sjúkrahússins hér í Lilongwe sem er nokkurs kon-
ar Landspítali þeirra Malawimanna. Aðstaðan á sjúkrahús-
inu eryægast sagt ömurleg; sjúklingar þurfa að sofa á gólf-
inu því ekki eru til nægilega mörg rúm, lyfjaskortur er mik-
ill, rúmföt og teppi eru óhrein og byggingar í mikilli nið-
urníðslu. Hér eru því næg verkefni fyrir hjálpfúst fólk.
Höfmdur er bókasafnsfrœðingur með framhaldsmenntun
M.A. frá háskólanum í Wales í Aberystwyth og starfar nú á
Fiskimálaskrifstofu SADC í Malawi.
HEIMILDIR:
Árni Helgason. 1995. Fiskimálaskrifstofa SADC í Malawi. Fréttabréf um
þróunarmál 10(1): 12-13.
Hulsbömer, A. & P. Belker. 1991. Malawi. Chalfont St. Peter : Bradt
Publications.
Lög um Þróunarsamvinnustofoun íslands nr. 43/1981.
Malawi : EIU country profile 1993/94. 1993. [S.l.] : Economic Intellig-
ence Unit.
National Library : an introduction to the services. 1994. Lilongwe :
National Library Service Board.
Stefoumið Þróunarsamvinnustofounar íslands. 1995. Fréttabréfum próun-
armál 10(1): 16.
Stuart-Mogg, David. 1994. A guidc to Malawi. Blantyre: Ccntral Aíricana
Ltd.
Munnleg heiniild:
Mabomba, Rodrick, landsbókavörður. Viðtal 11. mars 1996.
SUMMARY
Icelandic Development Aid in the Field of Library and In-
formation Science in Malawi
Reports about participation in the development aid programme pro-
vided by the Icelandic International Development Agency in Malawi
which involves her as a consulting librarian within the Inland Fisheries
Sector Technical Coordination Unit (IFSTCU) of the Southern African
Development Community (SADC), which is based in Lilongwe, the capi-
tal of Malawi. The role and aims of the Icelandic International Develop-
ment Agency is described. The Agency operates according to laws passed
in 1981 and places main emphasis on helping people to achieve self-
sufficiency by gaining increased knowledge and practical know-how. A
short description of Malawi’s geography, economy and education level is
given. Malawi is a poor country with just 42% literate rate. Agriculture
is the main industry and 90% of the population lives in rural areas. The
author describes the activities of the IFSTCU and her role in implement-
ing the development programme, firstly as an information and training
adviser, and secondly in building up the Regional Fisheries Information
Programme, e.g. by organising a library in the field of inland fisheries and
aquaculture. Cooperation amoung fisheries libraries within SADC is
described as well as cooperation with three inland Fisheries libraries in
Malawi. Depicts the situation of the three libraries in Malawi. Gives an
account of the situation of public and school libraries in Malawi, where
the National Library, which was founded in 1968, serves as a public and
school library as well. The author expounds the difference in her Iceland-
ic and Malawian lifestyle, where long working hours and travelling
around Africa belongs to the work. Concludes by stating that the most
difficult thing concurrent with the living in Malawi is witnessing the
poverty of the population and not being able to help everyone. - ÁK
Forstöðumenn
bókasafna
Rit Hagstofu íslands höfða
til stórra hópa íþjóðfélaginu
mw!"
Fróðleikur um land og þjóð
Landshagir eru ársrit Hagstofunnar sem hefur að
geyma mikinn fjölda athyglisverðra og aðgengi-
legra upplýsinga um flest svið þjóðfélagsins, svo
sem mannfjölda, laun, verðlag, vinnumarkað,
framleiðslu, heilbrigðismál, menntamál o.fl.
Einnig fáanlegt á disklingum.
Verð kr. 2.200.
Utanríkisverslun Islendinga
I ritinu Utanríkisverslun 1994 eftir tollskrár-
númerum eru upplýsingar um utanríkisviðskipti
Islendinga árið 1994. Handhægt rit fyrir þá sem
stunda innflutning eða útflutning og einnig fyrir
framleiðendur sem eru í samkeppni við innflutning.
Verð kr. 2.200.
Hagtíðindi
Hagtíðindi eru mánaðarrit Hagstofunnar. f þeim
eru birt reglubundið yfirlit um utanríkisverslun,
fiskafla, þróun peningamála, ýmsar vísitölur,
greinar um félagsmál, ferðamenn o.fl.
Ársáskrift kr. 3.500. Einstök liefti kr. 350.
Alþingiskosningar
Alþingiskosningar 1995 greina frá nýafstöðnum
kosningum. Þar eru ítarlegar upplýsingar um
frambjóðendur, kosningaþátttöku, kosningaúrslit
o.fl. Rit fyrir alla áhugamenn um stjómmál.
Verð kr. 300.
Ferðamenn á fslandi
Gistiskýrslur 1994 greina frá fjölda gististaða,
herbergja og rúma, gistinátta og nýtingu gistirýmis
eftir landsvæðum. Rit fyrir alla þá er tengjast
ferðamannaþjónustu.
Verð kr. 700.
Vinnumarkaður
í ritinu Vinnumarkaður 1994 er fjallað um
atvinnumál, atvinnuleysi, vinnustundir o.fl.
Handhægt og greinargott rit um íslenskan
vinnumarkað.
Verð kr. 1.000.
Hringið og fáið sendan útgáfubækling
Hagstofunnar í síma 560 9860.
Hagstofa íslands
Skuggasundi 3 150 Reykjavík S. 560 9800 Bréfas. 562 3312
Bókasafnið 20. árg. 1996 53