Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Page 54

Bókasafnið - 01.06.1996, Page 54
Stefanía Júlíusdóttir Tölvuvæðing íslenskra bókasafna Könnun á stefnumörkun og stöðu mála Fjallað er um aðdraganda og upphaf tölvuvæðingar á ís- lenskum bókasöfnum, kynntar helstu niðurstöður könn- unar sem gerð var 1994 á stefnumörkun og stöðu tölvu- væðingar bókasafna og framtíðarhorfur í tölvunotkun bókasafna hér á landi eru ræddar. I Inngangur Aðdragandi og upphaf Tölvuvæðing íslenskra bókasafna fór fremur hægt og seint af stað, miðað við nágrannalöndin. Upphafið var notkun tölva við útgáfu skráa, þær fyrstu voru Bókaskrá 1944-73, sem kom út 1978 á vegum Þjónustumiðstöðvar bókasafna og íslensk bókaskrá fyrir árið 1979, sem kom út 1980 hjá Landsbókasafni íslands. Árið 1979 fengu Há- skólabókasafn og Landsbókasafn hingað til lands fmnskan ráðgjafa, Seppo Vuorinen, sem var forstöðumaður tölvu- væðingar rannsóknarbókasafna í Finnlandi. Ferðin var kostuð af Nordinfo. Vuorinen lagði til að fyrst yrði sam- skrárefni tölvuvætt, fengið yrði til þess erlent kerfi og vinnuhópur yrði settur á fót til að annast mál varðandi tölvuvæðingu bókasafna (Vuorinen, 1980, s. 15). Fyrsta bókasafnstölvukerfið var tekið í notkun á íslensku bóka- safni árið 1982. Það var þróað sérstaklega fyrir Bókasafn Kópavogs og síðar nefnt Bókver. Upphafið að samstarfi um tölvuvæðingu var skipan Samstarfsnefndar um upplýsingamál árið 1979 (Einar, 1990, s. 27), en að tilhlutan hennar var Tölvunefnd rann- sóknarbókasafna stofnuð árið 1981 (Einar, 1990, s. 32). I tillögum nefndarinnar frá 1981 er m.a. gert ráð fyrir: • að myndað verði eitt kerfi fyrir bókasöfnin; • að tölvuvinnsla hefjist í hinum stærstu þeirra og önnur söfn bætist við síðar; • að fyrsti áfangi tölvuvinnslu taki til skráningar” (Tölvunefnd, 1981, s. 1) Tölvunefnd rannsóknarbókasafna var síðar stækkuð þannig að í henni áttu sæti fulltrúar fleiri bókasafnategunda og bókafulltrúi ríkisins. Þá var nafni nefndarinnar breytt í Tölvunefnd bókasafna. Næstu ár voru þessar tillögur mótaðar nánar. Lagt var til að á fót yrði settur svokallaður Gagnabanki bókasafna, sem rekinn yrði sem samstarfsverkefni þriggja stærstu bókasafna landsins. En þau voru þá Borgarbókasafn, Háskólabóka- safn og Landsbókasafn fslands, og voru forstöðumenn hlutaðeigandi bókasafna samþykkir tillögunum (Stefanía, 1986, s. 12). Hlutverk Gagnabanka bókasafna sem síðar var nefndur Gagnabrunnur bókasafna skyldi verða: • að stuðla að sem mestum vinnusparnaði við skráningu í íslenskum bókasöfnum með því að veita afnot af þeim skráningartextum sem til eru í gagnabankanum, í því formi sem hentar; • að geyma og láta í té upplýsingar um íslenska bókaútgáfu; • að efla millisafnalán og samvinnu um aðföng með því að hafa að- gengilegar upplýsingar um hvaða efni er til í þeim bókasöfnum sem senda skráningartexta til gagnabankans; • að láta í té úrtak í tölvutæku formi sem notað er við tölvuvinnslu annarra starfsþátta (t.d. útlána) (Gagnabanki, 1985, s. 1) Kostir slíks gagnasafns hefðu orðið margir. Það hefði m.a. jafnað aðstöðu landsmanna til öflunar bókfræðilegra upplýsinga, sparað vinnu við skráningu, yfirsýn hefði feng- ist yfir íslenska bókaútgáfu frá upphafi og jafnframt yfirsýn yfir safnkost landsmanna (Stefanía, 1986, s. 12). Sú yfirsýn er forsenda fyrir samnýtingu safnkosts með millisafnalán- um og samvinnu um uppbyggingu safnkosts innanlands. Snemma í starfi Tölvunefndar bókasafna var ákveðið að hanna skráningarhugbúnað í marksniði, svokallaðan ís- mark skráningarhugbúnað, hér á landi til þess að hægt yrði að hefja markskráningu íslensks efnis sem fyrst og einnig til að byggja upp þekkingu og reynslu á sviði markskráningar hér á landi. Ekki tókst að fullgera fsmark hugbúnaðinn og var að lokum horfið frá því ráði. Jafnframt var ákveðið að skoða erlend bókasafnstölvukerfi og velja það sem best hentaði fyrir Gagnabrunn bókasafna. Vorið 1986 var Fengur (Dobis/Libis) skoðaður í boði Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar (Skýrr) af fulltrúum allra bókasafna- tegunda, hann þótti þá koma sterklega til greina fyrir ein- stök bókasöfn og fyrir sameiginlegan gagnabrunrt safn- anna. Til að ganga úr skugga um þetta var kerfið prófað í boði Skýrr í raunumhverfi, um skeið árið 1987, við vinnu í eftirtöldum bókasöfnum: Borgarbókasafni Reykjavíkur, Háskólabókasafni, Landsbókasafni íslands, Læknisfræði- bókasafni Landspítalans, Safnadeild Ríkisútvarpsins, m.a. á Filmusafni Sjónvarpsins. Meginniðurstaða þeirra prófana var sú að Fengur var talinn vel nothæfur sem samskrárkerfi fyrir Gagnabrunn bókasafna og sem bókasafnskerfi fyrir einstök bókasöfn (Dobis, 1987, s. 4-7). Ástæða þótti þó til að skoða fleiri kerfi. Auk Dobis/Libis (Fengs), voru tölvu- kerfin INLEX, Libertas (Gegnir) og VTLS skoðuð, fyrri hluta árs 1988, af tólf manna vinnuhópi. Meiri hlutanum leist best á Feng fyrir Gagnabrunn bókasafna (Greinargerð, 1988, s. [27]). Þegar til kastanna kom urðu bókasöfnin þrjú, sem stefnt höfðu að því að reka Gagnabrunn bókasafna sameiginlega, ekki sammála um val á tölvukerfi. Háskólabókasafn og Landsbókasafn ákváðu í apríl 1988, að velja hvorki Feng sem bókasafnskerfi né sem samskrárkerfi. Að svo komnu máli voru þau ekki reiðubúin til þess að velja bókasafns- kerfi, en voru þó hlynnt hugmyndum um samskrá. (Tölvu- kerfi, 1988, s. 4) Þá ályktaði stjórn Gagnabrunns bókasafna að starf hennar þjónaði ekki lengur tilgangi, þar sem ekki yrði hægt að ná samstöðu um val á tölvukerfi og ákvað að hætta störf- um. (Tölvukerfi, 1988, s. 4). Borgarbókasafn Reykjavíkur gerði 'í júní 1989 verk- samning við Skýrr um notkun á Feng (Dobis/Libis) (Skýrsla ..., 1996, s. [34]), Læknisfræðibókasafn Landspít- alans gerði verksamning við Skýrr um notkun á Feng í árs- lok 1989 (Sólveig, 1996). Á þeim bókasöfnum hafði Feng- ur verið í notkun til reynslu frá 1987. Landsbókasafn ís- 54 Bókasafnið 20. árg. 1996

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.