Bókasafnið - 01.06.1996, Page 56
Þróun tölvuvæðingar bókasafna
Tegund kerfis I upphafi Hlutfall af 72 Árið 1994 Hlutfallaf72
Bókasafnskerfi sem safnið rak sjálft 46 64% 62 86%
Bókasafnskerfi sem annar aðili rak 1 1% 7 10%
Gagnasafnskerfi 13 18% 13 18%
Innlögn í gagnabanka 1 1% 4 5.5%
Beinlínuleidr í innlendum gagnabönkum 6 8.3% 29 40%
Beinlínuleitir í erlendum gagnabönkum 7 10% 15 21%
Notkun efnis á geisladiskum 4 5.5% 19 26%
Bókhaldskerfi 3 4% 7 10%
Annars konar kerfi 7 10% 13 18%
Upphaf tölvuvœðingar bókasafna
Frá 1978 til 1982 tóku 4 bókasöfn tölvutæknina í notk-
un og fram til 1987 höfðu aðeins 20 (28%) bókasöfn
tölvuvæðst. Hin 52 (72%) bókasöfnin, sem þátt tóku í
könnuninni, tölvuvæddust á tímabilinu 1988-1993. Um
10% bókasafnanna hafði skipt um tölvukerfi þegar könn-
unin var gerð. Þau bókasöfn höfðu tölvuvæðst fyrir 1990
og eru tæp 30 % þeirra. Astæður þess að skipt var um kerfi
voru m.a. þær að gamla kerfið þjónaði ekki þörfum safns-
ins, í sumum tilvikum hafði það ekki alla nauðsynlega
þætti, það virkaði ekki sem skyldi, var of lítið eða að ekki
var um eiginlegt bókasafnstölvukerfi að ræða og hafði kerf-
ið, í sumum tilvikum, upphaflega verið tekið í notkun til
bráðabirgða. Eitt bókasafn svaraði ekki þessari spurningu.
Fyrsta tölvukerfi bókasafhsins og próun tölvu-
notkunar fram til 1994
Algengt var að tölvunotkun bókasafns hæfist með notk-
un fleiri en einnar tegundar tölvukerfis, á flestum bóka-
söfnum var merkt við fleiri atriði en eitt. Nolckur bókasöfn
hófu tölvunotkun með öðru en notkun bókasafnstölvu-
kerfis, t.d. með leitum í gagnabönkum eða innlögn efnis í
gagnabanka.
Notkun allra tegunda tölvukerfa, að undanskilinni
notkun gagnasafnskerfa, hafði aukist þegar könnunin var
gerð, í upphafi árs 1994. Eitt(l%) bókasafn svaraði ekki
spurningu um fyrsta tölvukerfi og 1 svaraði ekki spurningu
um tölvunotkun á könnunartíma.
III Samnýting á skráningarvinnu
Skráningfyrir tölvuvœðingu
Fyrir eiginlega tölvuvæðingu með bókasafnstölvukerfi,
var frumskráning algengust. Frumskráð var á alls 58 (81%)
bókasöfnum fyrir tölvuvæðingu: 33 (46%) frumskráðu á
spjaldskrárspjöld og 25 (35%) í tölvu í einhvers konar
kerfi. Afritun skráningarfærslna fór fram á 10 (14%) bóka-
söfnum: á þremur voru færslur afritaðar af prenti og á sjö
úr tölvuskrám. Aðeins 2(3%) höfðu keypt færslur frá
skráningarmiðstöð, 6 (8%) höfðu fengið skráningarfærslur
með öðrum hætti. Sami aðili hafði í mörgum tilvikum afl-
að skráningarfærslna með fleiri en einum hætti. Spurning-
unni svöruðu ekki 6 bókasöfn.
Stefnumörkun við tölvuvœðingu
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar stefndu 29
bókasöfn (rúm 40%) ekki að neinum breytingum á gerð
eða öflun skráningarfærslna við tölvuvæðingu. Það er at-
hyglisvert þegar markmið Gagnabrunns bókasafna, um
vinnusparnað við skráningu í íslenskum bókasöfnum, eru
höfð í huga. Heldur fleiri eða 36 bókasöfn (50%) stefndu
að breytingum í þá veru að nýta færslur frá öðrum: 34
(47%) merktu við þátttöku í skráningarsamvinnu eða skip-
ti á færslum og 14 (19%) merktu við kaup á færslum frá
skráningarmiðstöð. Þar að auki stefndu 10 (14%) að því að
afrita aðfengnar skráningarfærslur. Sami aðilinn stefndi í
mörgum tilvikum að því að nýta fleiri en eina leið við öfl-
un skráningarfærslna. Athyglisvert er að um það bil fjórð-
ungur, 17 (24%), bókasafna stefndi að því að frumskrá
meira, en jafnframt stefndi sami fjöldi að því að frumskrá
minna. Þessari spurningu svöruðu ekki 7 (10%).
Tölvuvæðing skráningarfœrslna
Fjöldi skráningarfærslna sem hafði verið tölvuvæddur, á
könnunartíma, var um 810.000 hjá 64 aðilum. Þá áttu 47
aðilar eftir að tölvuvæða alls tæplega 600.000 færslur aftur
í tímann. Spurningu um árlega viðbót svara 51 (71%), ár-
legur viðauki við safnkost þeirra, sem þarf að skrá, var tæp-
lega 54.000 einingar. Gróflega áætlað eru titlar í bókasöfn-
um á Islandi rúmlega ein miljón. Sennilegt er að sumir þeir
titlar sem bókasöfn eiga eftir að tölvuvæða séu til í rafrænu
formi á öðrum bókasöfnum, en þetta er ekki vitað með
vissu. Ekki er heldur hægt að sjá, í öllum tilvikum, með
hvaða hætti bókasöfn, sem ekki hafa lokið við að tölvuvæða
skrár aftur í tímann, hyggjast gera það. í mörgum tilvikum
munu þau væntanlega fá skráningarfærslur frá þeim bóka-
söfnum, sem þegar hafa tölvuvætt.
Möguleikar í bókasafhstölvukerfunum til sam-
nýtingar á skráningarfierslum
í ljósi þess að stefnt var að því að samnýta skráningar-
færslur á 36 (50%) bókasöfnum er fróðlegt að sjá að hvaða
marki hægt var að flytja skráningarfærslur á milli tölvukerfa
þeirra. Hjá 4 (5.5%) aðilum var merkt við að engir mögu-
leikar væru í töluvkerfinu á samnýtingu skráningarfærslna,
hjá öðrum 4 (5.5%) var merkt við að samnýting eigi að
vera möguleg en virki illa. Hjá 39 (54%) var merkt við að
flytja megi skráningarfærslur úr kerfum sömu tegundar í
magni á milli og hjá 34 (47%) að flytja megi stakar skrán-
ingarfærslur úr kerfum sömu tegundar á milli kerfa. 10
(14%) merktu við að auðvelt væri að flytja skráningarfærsl-
ur úr kerfum annarrar tegundar á milli í magni og 12
(17%) að auðvelt væri að flytja stakar færslur úr kerfum
56 Bókasafhið 20. árg. 1996