Bókasafnið - 01.06.1996, Side 59
svarenda telur að þjóðbókasafnið eigi að hafa forgang um
samvinnu við millisafnalán.
Hvaða aðili ætti að þínum dómi að bera kostnað sem
millisafnalán hafa í för með sér?
Um þetta atriði var spurt með opinni spurningu. Bóka-
söfnin sjálf sögðu 24 (33%), lánþegar sögðu 17 (24%), rík-
ið sögðu 7 (10%), sveitarfélög sögðu 5 (7%), Þjóðarbók-
hlaða sögðu 12 (17%). Nokkrir nefndu annað. Meirihlut-
inn telur að bókasöfnin sjálf (24) eða notendur þeirra (17)
eigi að bera kostnað af millisafnalánum. Þessari spurningu
svöruðu 47 (65%) og var 1 svar ógilt.
V Skipulögð samvinna um uppbyggingu safnkosts
Skipulögð samvinna um uppbyggingu safnkosts fyrir
tölvuvæðingu
Fyrir tölvuvæðingu tóku aðeins 5 (7%) bókasöfn þátt í
skipulagðri samvinnu um uppbyggingu safnkosts, meiri-
hluti þeirra 58 (81%) gerði það ekki. Spurningunni svör-
uðu ekki 9 (13%). A aðeins 4 (6%) bókasöfnum var merkt
við að breytingar hafi verið fyrirhugaðar í þessum efnum
við tölvuvæðingu, á 12 (17%) þeirra var ekki stefnt að
breytingum. A meirihluta bókasafnanna 42 (58%) var
spurningin talin óviðeigandi og á 14 (19%) bókasöfnum
var henni ekki svarað.
Á helmingi þeirra bókasafna sem hugði á breytingar við
tölvuvæðingu höfðu þær átt sér stað eða hjá 2 (3%). A 7
(10%) bókasöfnum er merkt við að svo hafi ekki verið. Það
er í ósamræmi við fyrra svar þar sem fram kom að aðeins
var hugað að breytingum í 4 bókasöfnum. Skýringin getur
legið í því að á einhverjum af þeim 14 bókasöfnum sem
svöruðu ekki spurningunni urn fyrirhugaðar breytingar,
hafi verið stefnt að breytingum sem ekki höfðu átt sér stað.
Á 27 (38%) bókasöfnum er spurningin talin óviðeigandi
og á 36 (50%) bókasöfnum er henni ekki svarað. Ástæður
þess að fyrirhugaðar breytingar hafa ekki átt sér stað eru: að
svo stutt er síðan tölvuvætt var, að of snemmt er að segja til
um þetta atriði hjá 4 (6%) bókasöfnum og á einu (1%)
bókasafni sú að tölvukerfið virkar ekki sem skyldi. Á einu
bókasafni eru ástæður sagðar vera aðrar.
Breytir tölvuvæðing viðhorfum til samvinnu urn upp-
byggingu safnkosts?
Á aðeins 8 (11%) bókasöfnum var merkt við já, á 2
(3%) þeirra hafði verið tekin upp stefna um samvinnu við
uppbyggingu safnkosts eftir að tölvuvætt var og á einu
(1%) þeirra hafði fyrri stefnu um samvinnu við uppbygg-
ingu safnkosts verið breytt eftir tölvuvæðingu, 5 (7%) þeir-
ra tilgreina ekki hver áhrifin eru. Á meirihluta bókasafna,
47 (65%) var merkt við nei. Spurningunni svöruðu ekki 17
(24%). Aðeins 11% segja að breytingar hafi átt sér stað eft-
ir tölvuvæðingu og minna en helmingur stefnir á breyting-
ar í þessum efnum í framtíðinni. Áhrif tölvuvæðingar á við-
horf til samvinnu um uppbyggingu safnkosts geta því ekki
talist mikil.
Hvað ber framtíðin í skauti sér við samvinnu um upp-
byggingu safnkosts?
Á 31 (43%) bókasafni er merkt við að stefnt sé að mun
meiri samvinnu í framtíðinni. Á 26 (36%) bókasöfnum er
merkt við að svo sé ekki. Spurningunni svöruðu ekki 15
(20%).
I ljósi þeirra viðhorfa sem koma fram í svörum bóka-
safnanna má gera ráð fyrir því að skipulögð samvinna um
uppbyggingu safnkosts aukist að einhverju marki í framtíð-
inni. Þar er þó lögð mismunandi áhersla á hvernig sam-
vinnunni verði best háttað. Á 24 (33%) þeirra er merkt við
að æskilegt sé að skipulögð samvinna verði milli bókasafna
sömu tegundar (t.d. milli rannsóknarbókasafna), á 23
(32%) þeirra að æskilegt sé að skipuleggja erlend aðföng til
landsins í heild, þannig að sem fjölbreyttastur safnkostur
verði til í landinu aðgengilegur fyrir alla Iandsmenn í gegn-
um samskrá og millisafnalán, á 15 (21%) þeirra að skipu-
lögð samvinna sé æskileg um innkaup á dýrum sérfræðirit-
um til þess að tryggja meira framboð slíkra rita innanlands,
á 10 (14%) þeirra að skipulögð samvinna um uppbyggingu
safnkosts sé aðeins æskileg milli bókasafna á sama sérsviði
og á 3 (4%) bókasöfnum er merkt við liðinn annað. Á að-
eins einu (1%) bókasafni er talið að skipulögð samvinna
um uppbyggingu safnkosts sé óraunhæf og því óæskileg. Á
suinum bókasöfnunum var merkt við fleiri en einn kost.
Spurningunni svöruðu ekki 8 (11%).
Hvaða aðili ætti að þínum dómi að hafa forgang um
samvinnu urn uppbyggingu safnkosts?
Um þetta atriði var spurt með opinni spurningu. Svör
eru 51 (71%), þar af eru 2 svör ógild. 21 (29%) nefndi
samstarfssöfn sömu tegundar, 16 (22%) nefndu Þjóðar-
bókhlöðu, 12 (17%) nefndu stjórnsýsluembætti svo sem
bókafulltrúa ríkisins eða ríkið, 2 (3%) nefndu Bókavarða-
félag íslands. Nokkrir nefndu annað. Surnir nefndu fleiri
en einn aðila. Þeir aðilar sem flestir telja að eigi að hafa for-
gang um samvinnu við uppbyggingu safnkosts eru sam-
starfssöfn sörnu tegundar og Þjóðarbókltlaða.
Hvaða aðili ætti að þínum dómi að bera kostnað við
samvinnu um uppbyggingu safnkosts?
Um þetta atriði er spurt með opinni spurningu. Svör
eru 46 (64%). Þau eru á þessa leið: bókasöfnin sjálf að
dómi 24 (33%), ríkið að dómi 10 (14%), Þjóðarbókhlað-
an að dómi 5 (7%), sveitarfélög að dómi 4 (6%), notend-
ur að dómi 4 (6%), hver bókasafnategund (t.d. náttúru-
fræðisöfn, framhaldsskólasöfn) að dómi 3 (4%). Nokkrir
nefndu annað. Sumir nefndu fleiri en einn aðila. Meiri
hlutinn telur að bókasöfnin eigi sjálf að bera kostnað af
samvinnu um uppbyggingu safnkosts.
Hvernig verður safnkostur landsmanna geymdur í fram-
tíðinni?
Víða um heim m.a. í nágrannalöndunum (Sundblom,
1992, Jylha-Pyykönen, 1992, Henriksen, 1992) hefur ver-
ið komið upp svokölluðum geymslusöfnum (repository
libraries). Misjafnt er hvernig staðið er að rekstri þeirra.
Fróðlegt þótti að kanna viðhorf á íslenskum bókasöfnum
til þessara mála.
Á meiri hluta bókasafna 58 (81%) var merkt við að
æskilegt sé að koma upp geymslusafni hér á landi. Á flest-
um bókasöfnunum 27 (38%) er merkt við að hlutverk
geymslusafnsins eigi að vera að taka við ritum sem bóka-
söfnin hafa ekki rými fyrir, ritin yrðu eign geymslusafnsins
sem hafi fullan ráðstöfunarrétt yfir þeim og útlán yrðu
beint úr geymslusafninu. Á 15 (21%) bókasöfnum er
merkt við að hlutverk geymslusafnsins eigi að vera það að
geyma rit sem bókasöfn hafa ekki rými fyrir en vilja ekki
fleygja. Ritin gætu önnur bókasöfn fengið að láni í venju-
legum millisafnalánum í gegnum bókasafnið sem á ritin. Á
öðrum 15 (21%) bókasöfnum er merkt við að í geymslu-
safninu eigi aðeins að vera rit sem þangað eru valin sérstak-
Bókasafiiið 20. árg. 1996 59