Bókasafnið - 01.06.1996, Blaðsíða 64
Sigrún Hauksdóttir
Gegnir
Inngangur
Gegnir er tölvuvætt bókasafnskerfi á vegum Landsbókasafns íslands -
Háskólabókasafns. Jafnframt nota sjö önnur söfn kerfið sem bókasafns-
kerfi. Auk erlendra rita hýsir Gegnir íslenska bókaskrá, er samskrá fyrir
nokkur íslensk bókasöfn og samskrá um erlend tímarit í íslenskum bóka-
söfnum. Við hlið aðalskrár Gegnis er sérstakt gagnasafn, nefnt Greinir,
þar sem skráð er efni í íslenskum blöðum og tímaritum. Hér verður fjall-
að um helstu þætti bókasafnskerfisins Gegnis.
Saga
Arið 1990 var bókasafnskerfið Libertas keypt af SLS (In-
formation Systems) Ltd. Eftir samkeppni um nafn á kerfið
var því gefið heitið Gegnir. Nafnið var valið vegna þess að
það lýsir gæðum kerfisins. Bæði er mikið gagn að bóka-
safnskerfinu og eins gegnir Gegnir þeim skipunum sem
fyrir hann erd lagðar, líkt og önnur tölvuvædd kerfi ef skip-
anir eru á réttu formi. í desember 1991 var Gegnir opnað-
ur almenningi eftir að markfærslur höfðu verið fluttar og
skráðar inn í kerfið. Síðan hafa helstu þættir kerfisins verið
teknir í notkun hver af öðrum, nú seinast tímaritahaldið
1995.
Tœknilegar upplýsingar
Vélbúnaður kerfisins er DEC 3000-600 AXP frá Digi-
tal. Eitt hundrað notendur geta samtímis notað kerfið, þar
af áttatíu Gegni og tuttugu Greini. Þegar Landsbókasafn
Islands og Háskólabókasafn voru sameinuð fékk Gegnir
nýja tölvu og samtímanotendunum var fjölgað úr 60 í 100.
Auðvelt er að fjölga samtímanotendum enn frekar ef þurfa
þykir. Forritið er uppfært tvisvar á ári.
Framleiðandi Libertas SLS (Information Systems) Ltd.,
þá sem að ofan er getið, hefur aðalstöðvar sínar í Bristol í
Bretlandi. Nálægt 75 bókasöfn nota kerfið. Flest eru í Bret-
landi en auk þeirra bókasöfn í Svíþjóð, Spáni, Portúgal,
Grikklandi og nýlega bættist Brasilía í hópinn. Þjónustu-
skrifstofur eru í öllum þessum löndum nema Grikklandi og
skrifstofan í Stokkhólmi er okkar tengiliður við SL.S.
Z39.50
Z39.50 er leitarstaðall sem er byggður á biðlara/miðlara
eða „client/server“
högun. Libertas hefur
nú þegar tekið upp
báða þessa hluta. Með
biðlaraþættinum er
mögulegt að tengjast
bókasöfnum sem hafa
tekið Z39.50 biðl-
ara/miðlarastaðalinn í
notkun. Hægt er að
leita í slíkum kerfum
með fyrirspurnarmáli
Libertas (Gegnis) og einnig að sækja færslur. Við tengjumst
nú SLS gagnagrunninum í Bristol með Z39.50 staðlinum.
Þegar miðlaraþátturinn er kominn í gagnið geta önnur
bókasöfn með Z39.50 leitað í Gegni á sínu fyrirspurnar-
máli.
Notendahópur
Aðalhreyfiafl tækniþróunar Libertas bókasafnskerfisins
eru notendahópar. Einn notendahópur tengist hverri svæð-
isskrifstofu og tilheyrum við sænska hópnum. Notenda-
hópsfundir eru haldnir tvisvar á ári, vor og haust. Á fund-
unum eru kynntar helstu nýjungar í kerfinu. Mikilvægast
er þó að hvert safn komi með óskalista um breytingar og
viðbætur en síðan eru greidd atkvæði um mikilvægi tillagn-
anna. Þessi óskalisti er að endingu sendur til aðalstöðva
SLS og reyna yfirmenn og forritarar SLS að verða við ósk-
unum eftir föngum. Fundur notendahóps Libertas-safna á
Norðurlöndum var haldinn í Landsbókasafni 3. og 4. maí
1995. Á fundinu voru 18 kerfisbókaverðir, flestir frá Sví-
þjóð, og starfsfólk frá SLS.
Bókasafnskerfið
I bókasafnskerfmu eru eftirfarandi þættir:
Almenningsaðgangur
Skráning
Aðföng
Tímaritahald
Útlán
Millisafnalán
Tengingar við aðra bókfræðilega gagnabanka
Skýrslugerð
Greinir
A Imen n ingsaðgangu r
I almenningsaðgangi er hægt að leita í skrá að bókfræði-
legum upplýsingum, setja inn beiðni um millisafnalán, at-
huga stöðu lánþega, breyta tungumáli skjámyndar og fá
upplýsingar, tilkynningar og skýringar. Hægt er að hafa
skjámyndir í Gegni á 10 mismunandi tungumálum sem
gerir leit einstaklega aðgengilega. Þau eru: íslenska, enska,
sænska, spænska, portúgalska, velska, franska, þýska, ítals-
ka og katalónska. Leit í Gegni er heimil öllum án endur-
gjalds. Til að auðvelda leit og notkun Gegnis og Greinis
skal bent á bæklinginn Heimildaleit í Gegni sem gefin var
út af Landsbókasafni. Hann liggur frammi í öllum aðildar-
söfnum Gegnis.
Helstu leiðir til þess að tengjast Gegni eru þessar:
- skjáir í aðildarsöfnum
- um Internet (telnet saga.bok.hi.is)
- með gagnaflutningsneti Pósts og síma (X-25 númer 274011723010)
- með upphringisambandi 525 4748 venjulegt mótald
525 4050 háhraða mótald
- um Gopher-kerfi, t.d. kerfi Háskóla íslands og íslenska menntanetsins
Notendanafn fyrir Gegni er: BOKASAFN
Notendanafn fyrir Greini er: TIMARIT
Skráning
Skráningin heldur
utan um hinn bók-
fræðilega þátt kerfisins.
Hægt er að flytja bók-
fræðilegar færslur úr
gagnabönkum OCLC
og SLS. Kerfið getur
tekið inn færslur sem
eru samkvæmt UK
MARC Exchange Format. Gagnasafnið notar Libertas
MARC sem er nánast það sama og UK MARC. Skráning-
in var íslenskuð í ýmsum atriðum. Skráningardeild Lands-
bókasafns hefur umsjón með skráningu og uppbyggingu
gagnasafnsins. Hlutverk hennar er að fylgjast með að sam-
ræmis sé gætt og að skera úr um vafaatriði í skráningu.
64 Bókasafnið 20. árg. 1996