Bókasafnið - 01.06.1996, Side 65
Eins og áður sagði er Gegnir bókasafnskerfi eða skrán-
ingarkerfi fyrir 8 íslensk bókasöfn, Islenska bókaskrá, sam-
skrá fyrir nokkur íslensk bókasöfn og samskrá um erlend
tímarit í íslenskum bókasöfnum. Þátttaka í Gegni felur í sér
annað hvort fulla aðild eða samskrár aðild. Með fullri að-
ild hafa bókasöfnin aðgang að skráningarþætti kerfisins og
skrá rit sín inn í kerfið. Fulla aðild að kerfinu hafa eftirtal-
in 8 bókasöfn: Landsbókasafn Islands - Háskólabókasafn,
Bókasafn Kennaraháskóla íslands, Bókasafn Myndlista- og
handíðaskóla Islands, Bókasafn Seðlabanka fslands, Bóka-
safn Stofnunar Árna Magnússonar, Bókasafn Þjóðminja-
safns íslands, Bókasafn Stjórnarráðs íslands og Bókasafn
Háskólans á Akureyri
Samskrár
Samskráraðild felur í sér að sértækt samskrártákn fyrir
Tafla 1: Skráðar bókfræðilegar færslur í Gegni
1996
Fjöldi bókfræðilegra færslna sem voru
fluttar úr OCLC 1995 7.632
Frumskráðar færslur 1995 15.666
Heildarfjöldi færslna í Gegni í
janúar 1996 342.646
söfnum sem eru með fulla aðild enda hafa þau notað kerf-
ið lengst.
íslensk bókaskrá
Auk þess sem nýjar íslenskar bækur eru skáðar er
stöðugt unnið að afturvirkri skráningu íslenskra rita.
Skráning eftirfarandi flokka er lokið: 000, 100, 500, 700,
800 og 900. í flokki 300 á aðeins eftir að skrá smáprent og
í 600 á eftjr að skrá 4to rit og smáprent. Eftir er að skrá
mikinn hluta af 200 og 400 flokkunum. Skráning á ís-
lensku fágæti í öllum flokkum er nýlega hafin. Sérstakt for-
rit var hannað hjá Reiknistofnum Háskólans til að gera
prentaða útgáfu af bókaskránni. Þrjár ársskrár komu út af
íslenskri bókaskrá á síðastliðnu ári unnar með þessu nýja
forriti. Bókaskráin fyrir 1995 kemur út fyrir mitt ár 1996.
Tafla 4 sýnir yfirlit um íslenska bókaútgáfu 1989 - 1994
Tafla 3: Bókfiræðilegarfærslur í Gegni efitir aðild,
janúar1996
Bókasöfn með fulla aðild 314.829 titlar
Önnur samskrársöfn 16.345 titlar
Samskrá um erlend tímrit í íslenskum
bókasöfnum 11.426 titlar
Tafla 4: Yfirlit um íslenska bókaútgáfú 1989 - 1994
TITLAR ALLS FRUMÚTGÁFA
Samtals Bækur Bækl. Samtals Bækur Þýðingar Annað
1989 1340 935 405 1152 790 385 742
1990 1593 1101 492 1235 858 392 905
1991 1660 1060 545 1276 818 453 965
1992 1695 1093 602 1250 798 483 1014
1993 1418 988 430 1116 766 405 744
1994 1429 965 464 1089 746 353 735
hvert bókasafn er sett inn í viðeigandi skráningarfærslu sé
færslan til í gagnasafninu, en að öðrum kosti er búinn til
skráningartexti.
Gegnir þjónar sem samskrá fyrir fyrrnefnd 8 bókasöfn
og nokkur önnur íslensk bókasöfn. 59 söfn eru aðilar að
samskrá um erlend tímarit í íslenskum bókasöfnum. Af
þeim bókasöfnum sem nota Gegni sem samskrá fyrir bæk-
ur eru 11 bókasöfn í stofnunum eða hjá félagssamtökum, 3
eru almenningsbókasöfn og 5 bókasöfn framhaldsskóla.
Tafla 3 sýnir fjölda bókfræðilegra færslna eftir samskrárað-
ild og má sjá að yfirgnæfandi fjöldi færslna er í þeim bóka-
Tafla 2: Gegnir - eintaksfærslur í aðildarsöfnum,
janúar 1996
Þjóðminjasafn íslands 1.164
Myndlista- og handíðaskóli íslands 3.315
Stjórnarráð íslands 3.538
Háskólinn á Akureyri 4.416
Seðlabanki íslands 15.212
Stofnun Árna Magnússonar 15.886
Kennaraháskóli íslands 39.947
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn 413.199
Eintaksfærslur aðildarsafna alls 496.724
og má sjá að bókaútgáfan var mest árið 1992 en minnst
1989. Mynd 1 sýnir hvert hlutfall þýðinga, kennslubóka
og barnabóka er af heildinni.
Aðfóng
Aðfangaþátturinn sér um alla þætti aðfanga: pantanir,
upplýsingar um birgja, sjóðupplýsingar, upplýsingar um
gengi, meðhöndlun reikninga, móttaka eintaka og ítrekan-
ir. Aðfangaþátturinn var tekinn í notkun í Landsbókasafni
árið 1993 og sér kerfið um öll aðföng Landsbókasafns varð-
andi bækur og tímarit. Bókasafn Kennaraháskólans byrjaði
að nota aðfangaþáttinn 1995. Mynd 2 sýnir fjölda pant-
ana í Gegni eftir árum, þ.e. pantanir í gegnum kerfið en
ekki heildar pantanir aðildarsafna, og má sjá að á milli
1994 og 1995 hafa pantanir næstum því tvöfaldast. Mynd
3 sýnir skiptingu aðfanga í Landsbókasafni og Bókasafni
Kennaraháskóla fslands árið 1995.
Tímaritahald
Tímaritahaldið er í raun hluti af aðfangaþættinum, en
vegna þess hve útgáfuháttur tímarita er oft á tíðum flókinn
þá er litið á tímaritahaldið sem sérstakan þátt. Helstu sér-
kennin eru áskriftir eða opnar pantanir, spá um hvenær
heftin koma og móttaka tímarita. Byrjað var að nota tíma-
ritaþátt Gegnis 1995. Mynd 4 sýnir kostnað við tímarita-
Bókasafnið 20. drg. 1996 65