Bókasafnið - 01.06.1996, Page 67
Mynd 6
Útlán í Gegni, 1992 -1995
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
C\J CO LO
CD O) CD CD
CD CD CD CD
Mynd 7
og almenningsaðgang. Hægt er að biðja um lán úr öðrum
bókasöfnum og einnig geta önnur söfn beðið urn ián úr
Gegnissafni. Notandi setur inn beiðni um rit sem ekki er
til í hans safni og eftir að bókavörður færir inn formlega
beiðni um millisafnalán sér kerfið um afganginn. Milli-
safnalánaþátturinn prentar út ítrekanir, tilkynningar og
skýrslur eftir þörfum, þar til bókinni er skilað aftur til upp-
hafssafns. Allir handhafar notendakorta geta sjálfir pantað
millisafnalán í almenningsaðganginum. Landsbókasafn er
miðstöð millisafnalána hér á landi. Bókasafn Kennarahá-
skólans notar einnig millisafnalánaþáttinn. Mynd 7 sýnir
fjölda millisafnalánabeiðna í Gegni frá því að þátturinn var
tekinn í notkun til desember 1995. Athyglisvert er að sjá
stökkið í millisafnalánum í byrjun árs 1995 en þá var byrj-
að að taka við beiðnum í gegnum kerfið frá bókasöfnum
innanlands.
Tengingar við aðra gagnabanka
Eins og áður sagði er hægt að tengjast OCLC og SLS
gagnabönkunum með Gegni. Samtals eru þetta 35 milljón-
ir færslna á 369 tungumálum. Sex milljónir færslnanna eru
á öðru tungumáli en ensku. SLS gagnasafnið er 10 millj-
ónir færslna að stærð og er byggt upp af samskrá Libertas
bókasafnanna í Bretlandi, bresku þjóðbókaskránni, Whita-
ker Books in print og bóka- og tímaritaskrá Library of
Congress. Við tengjumst SLS gagnagrunninum með
Z39.50 staðlinum. Hægt er að flytja færslur inn í marksnið
Gegnis frá báðum þessum grunnum. Fyrstu mánuði ársins
1996 var Landsbókasafnið prufusafn íyrir leitaraðgang að
SLS gagnagrunninum. Þessi aðgangur er verðlagður óháð
notkun, þ.e. á föstu verði.
Tvær meginleiðir eru til skýrslugerðar í Gegni. I fyrsta
lagi eru staðlaðar skýrslur í Libertas kerfinu. Hægt er að fá
útlánatölur, greiningar um: titla, eintök, aðföng greini og
fleira. Hins vegar er sérstakt skýrslugerðartól (Report
Generator) þar sem hægt er að ná margs konar upplýsing-
um úr Gegni og Greini.
Greinir
Greinir er sérstakt gagnasafn, þar sem skráð er efni í ís-
lenskum blöðum og u'maritum, svo og greinar sem fjalla
um íslenskt efni eða eru eftir íslenska höfunda og birst hafa
í erlendum tímaritum eða blöðum. I Greini eru u.þ.b.
34.000 færslur í um 80 íslenskum tímaritum. Hluti af þess-
um tímaritum hefur verið lyklaður, þ.e.einstöku fræði-
greinum hafa verið gefin samræmd efnisorð. Bókasafn
Kennaraháskólans sér um skráningu greina á uppeldis- og
kennslusviði.
Lokaorð
f>að sem hæst ber í málum Gegnis þessa stundina er
Z39.50 biðlara/miðlara umhverfið. Eins og áður hefur ver-
ið sagt frá nýtum við staðalinn til þess að tengjast SLS
gagnagrunninum. Við vonumst til þess að geta tengst ein-
hverju bókasafni eða gagnagrunni á Norðurlöndum fljót-
lega því mikil þörf er á að geta leitað að og flutt bókfræði-
legar færslur á Norðurlandamálum yfir í Gegni. Mörg ís-
lensk bókasöfn hafa sýnt áhuga á að flytja færslur úr Gegni
yfir í sitt eigið kerfi. Z39.50 miðlarinn gerir tæknilega
kleift að flytja færslur frá Gegni en að sjálfsögðu verða biðl-
ara bókasöfnin einnig að hafa Z39.50. staðalinn.
SUMMARY
Gegnir tbe automated library system of the National and
University Library
Gegnir is the automated library system for the National and Uni-
versity Library of Iceland and for 7 other libraries as well. It includes the
union catalogue for these libraries and a number of other libraries, and
also the union catalogue for foreign periodicals in Icelandic libraries. One
of Gegnir's main functions is to house the National Bibliography. A
special computer program was created to produce a printed version of the
National Bibliography within Gegnir. Greinir, which is a parallel subsy-
stem, is an index for Icelandic periodical articles. In 1990 the automated
library system Libertas was purchased from SLS (Information Systems)
Ltd. in England; the system was given the name Gegnir in Icelandic. In
December 1991, the OPAC was opened to the public and, subsequently,
all the other modules have been implemented. Most recently, in 1995,
the serial module was taken into use. This article discusses briefly the
main modules of the automated library system, namely: cataloguing, cir-
culation, acquisitions, serials, interlibrary loans, external databases and
reports. The Libertas system has integrated the Z39.50 client/server. The
client function makes it possible for us to search and transmit bibliograp-
hic records from other databases which have the server function.
However, the Z39.50 server gives other libraries the opportunity to search
and fetch records in Gegnir. Gegnir is currently using the Z39.50 client
to access the SLS database in Bristol, England. SH
Hitaveita
Reykjavíkur
Grensásvegi 1
Bókasafnið 20. árg. 1996 67