Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1981, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1981. DV leitaði til nokkurra valinkunnra manna og lagði fyrir þá spuminguna: Hvað er þér minnisstæðast fráárinu 1981 — og hvað er þér efst í huga á nýju ári? Óli H. Þórflarson, framkvæmdastjóri Umferöarráös. Óli H. Þórðarson: Skora á lands* menn að nota bílbeltin „Það er að sjálfsögðu margs að minnast og margra að minnast. En ef ég takmarka svarið við starf mitt er mér minnisstæðust sú þjóðargjöf sem al- þingismenn færðu landsmönnum sl. vor, en þar á ég við lög um skyldu- notkun bílbelta. Um áramótin er mér hins vegar efst í huga hvað margir hafa ekki enn tekið umbúðirnar utan af þessari gjöf og eru þar af leiðandi ekki farnir að njóta hennar. Um leið og ég skora á lands- menn að strengja þess nú heit um ára- mótin að byrja að nota bílbeltin, óska ég fólki til sjávar og sveita betri um- ferðar á komandi ári,” sagði Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs. -KMU. Þórir Helgason: Möguleiki á að dragaúrtíðni sykursýki „Litið í fljótheitum í eigin barm eru mér í fyrsta lagi minnisstæðar rann- sóknir okkar Magnúsar Jónassonar á insúlínháðri sykursýki, sem leitt hafa til sterkrar tilgátu um orsakir sjúk-. dómsins. í öðru lagi vil ég nefna bjartsýni á að dýratilraunir mínar í samvinnu við skozka starfsbræður megi staðfesta til- gátuna, en við það opnast m.a. mögu- leiki á að draga úr tíðni þessa alvarlega sjúkdóms. Efst í huga mínum fyrir árið 1982 er þó sú von að mönnunum auðnist að ná skrefi framar í að lifa í sátt og sam- lyndi,” sagði Þórir Helgason yfir- Iæknir. -KMU. Þórir Helgason yfirlæknir. Sigurður Helgason, forstjóri. SigurðurHelgason: Það tókst með sameiginlegu afli ,,Það sem mér er eftirminnilegast frá árinu sem er að líða, er að ég tel að við höfum náð því takmarki að rétta Flug- leiðir við eftir þær ófarir sem félagið varð fyrir á árunum 1979 og 1980.” sagði Sigurður Helgason, forstjóri. „Það tókst með sameiginlegu afli starfsfólks og stjórnenda þrátt fyrir utanaðkomandi efnahagsörðugleika, sem við réðum ekki við. Áframhaldandi efnahagsörðugleikar í hinum vestræna heimi, gera útlitið allt annað en bjart á nýja árinu en ég ber þá von í brjósti að við komumst samt áfram áleiðis að settu marki”. -KLP- Guðjón Petersen: Ferðum hálendið „Úr einkalífinu verða mér minnis- stæðastir þeir dagar, sem við hjónin áttum í sumar á ferð okkar um hálendi landsins. Á starfsvettvangi sú jákvæða stefnubreyting, sem orðið hefur hjá Al- þingi varðandi almannavarnir lands- manna og enn er fylgt betur eftir á næstaári. Ósk mín til næsta árs er að þær viðsjár sem nú eru uppi í heiminum megi hjaðna að óskir friðarsinna megi rætast um allan heim, hvaða þjóð- félagsskipan sem þeir annars aðhyllast. Og að lokum að íslendingum megi auðnast að tryggja, svo sem kostur er, öryggi sitt gegn þeim ógnum sem þeir hafa ekki vald til að kveða niður,” sagði Guðjón Petersen, framkvæmda- stjóri Almannavarna ríkisins. -KMU. Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna. Sandkorn Sandkorn Sandkorn Mmgnmo M&nhkmSóttk þykfr tkrffa djarfar sögur. ff Vot" framtíð ungu höfundanna Mörgum bókaunnendum finnst yrkisefni ungu rit- höfundanna nú á dögum heldur verið tekið að þynnast. Eru það mest Iffsreynslusögur af einu eða öðru tagi og mó þvi til stuflnings nefna bækur á borð við Söguna um Þráin og Sæta stráka. Hefur verið haft á orði að heldur séu lýsingar af holdlegum sam- skiptum djarfar nokkuð. Þykir ennfremur sem framtfð þessara höfunda sé hvorki björt né svört. . . heldur vot i meira lagi. Alfir rððnir ó stundinni Heimildir herma nú að eftir brunann sem varð hjá KEA fyrr á árinu, séu allir þeir er voga sér inn fyrir dyr fyrirtækisins ráðnir á staðn- um — án tiiits til hvort þeir séu f atvinnuleit efla ekki. Er það gert til þess að koma í veg fyrir frekari bruna af völdum fólks, sem synjað var um vinnu. Trésmiðurinn sem varð að söngvara Mönnum verður ýmislegt á í skammdeginu. íþróttafrétta- ritari Timans fór nokkuð flatt á því fyrir jólin er hann greindi frá þvi að Þorvaldur Geirsson gæti ekki gefið kost á sér i landsliðið f körfuknatt- leik vegna anna f íslenzku ó- perunni. Var Þorvaldur sagður önnum kafinn vifl söng. Hið rétta er að Þor- valdur vann ötullega við að breyta sviðinu i Gamla Biói i starfi sinu sem trésmiður. En í óperunni var þetta nú samt. Í framhjáhlaupi má bæta því við að kunnugir telja að Þor- valdur sé ekki i hópi lagviss- ustu manna hérlendis. FramsðknaFráð- herrarnir allir í Höllina Almenningur hefur tekið eftir því afl ráðherrar Framsóknarflokksins hafa sótt alla þá leiki er þeir hafa getað að undanförnu i Laug'- ardalshöllinni. Gildir þá einu hvort um landsleiki eða bara venjulega 1. deildarleiki er að ræða. Höllin er nefnilega eini staðurinn i bænum, þar sem þeir geta horft upp á niður- talninguna (á veggklukkunni) i raun. Tvmthðnnm tfðtm&ruuJólasvmlnm. *mm •nt í fnrt Yttr hátíómmnr. Eins lykt og af honum pabba Fyrirtæki eitt hér í bæ efndi fyrir jólin tii fagnaðar fyrir börn starfsmannanna. Varð það að ráði að starfs- mennirnir sæju um hlutverk jólasveinanna. Fyrir starfann hlutu þeir afl launum flösku af viskíi hver. Eitthvað dróst það á langinn að til þeirra þáttar kæmi á skemmtuninni svo þeir tóku til við að súpa léttilega á drykknum. Var það þó ekki svo mikið að skaði yrfli af. Hændust börnin mjög að jólasveinunum, sem voru í sinu allra bezta skapi. Það vakti hins vegar feikilega kátínu þegar ein litla stúlkan hljóp, sem fætur toguðu til mömmu sinnar eftir að hafa setiö á armi jólasveinsins og sagfli: — Mamma, mamma. Þaö var aiveg eins lykt af jóla- sveininum og er stundum af pabba. Tafið fram undir morgun Viðskiptavinir Hagkaups tóku rösklega tíl hendinni fyrir jólin og var gifurieg ös í verzluninni. Var peninga- streymiö að sögn slíkt, að starfsfólk vakti í einni strik- lotu til klukkan sex á aöfangadagsmorgun við talningu. Er létt að gera sér i hugarlund hvernig ástandið hefði verið ef gamla myntin hefðl enn veriö i umferfl. Er hætt vlð að jólin hefðu orðið i seinna lagi. Siguröur Sverrisson. Sr. Ólafur Skúlason dómprófastur. Sr.ÓlafurSkúlason: Tvö bama- börn með 3ja vikna millibili „Mér finnst viðburðir ársins, sem er að kveðja okkur, staðfesta það enn frekar að þeir sem beita vopnum til að ná fram vilja sínum, eru slegnir blindni og taumlausum hroka. Virðist það eiga jafnt við einstaklinga sem þjóðir. Við sjáum þetta í árásunum á Banda- ríkjaforseta og páfann, morðinu á Sadat og frelsissviptingunni í Póllandi og kúguninni sem þar ríkir. Ef við lítum nær svolítið og það sem snertir sjálfan mig sérstaklega, þá hygg ég að það verði tvennt sem ævinlega verði tengt árinu 1981 í huga mér. Annars vegar allskyns furðufyrirbæri eftir biskupskjörið í sumar og hins vegar hin mikla gleði að eignast fyrstu tvö barnabörnin með þriggja vikna millibili,” sagði sr. Ólafur Skúlason dómprófastur. -KMU. Jón Skúlason póst- og símamálastjóri. JénSkúlason: Sjálfvirkur sími ísveit- ir landsins „Ég vil nú bara svara þessu frá sjón- armiði manns, sem vinnur hjá Pósti og síma. Lögin um að koma sjálfvirkum síma í allar sveitir landsins á næstu fimm árum verða mér þá líklega minn- isstæðust. Á næsta ári fær póststofan mjög endurbætt húsnæði. Það er mér ofar- lega í huga því vinnuaðstaðan er langt frá því að vera boðleg,” sagði Jón Skúlason, póst- og símamálastjóri. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.