Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1981, Side 7
6
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1981.
Spurningin
HY2o er þér minnis-
stæðast frá árinu
sem er að líða?
Axel Ammendrup bladamadur: Það er
voðaverknaðurinn sem framinn var í
Þverhollinu. Hann hafði mikil áhrif á
mig.
Jóhannes Reykdal tæknisljóri: Mér er
efsl i huga að hafa eignazt annan son á
árinu og svo að komast aftur til Thai-
lands, þar sem ég starfaöi fyrir Rauða
krossinn á sínum tíma.
Þórunn Gestsdóttir ölaoamaour:
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins og
þau átök sem þar átlu sér stað.
Siguróur Sverrisson blaóamaOur: Ný
plata með ACDC-flokknum sem kom
út um síðustu mánaðamót og hefur
þegar selzt í 500 eintökum hér. Annað
sem situr eftir er til dæmis landsleikur-
inn í Wales, sem fór 2—2 og frammi-
staða Ásgeirs Sigurvinssonar þar.
Guóni Bragason blaóamaóur: Samein-
ing Dagblaðsins og Visis, á því er
enginn vafi.
Jóhanna Sigþórsdóttir blaðamaóur:
Ætli það sé ekki sameining síðdegis-
blaðanna sem kom upp á svo skyndi-
lega og alinestum á óvart.
Lesendur
Lesendur Lesenui
Frá Broadway, hinum nýja skemmtistaö Ólafs Laufdal. Hér skemmtir Dansstúdíó Sóleyjar Jóhannsdóttur.
Vegna misskilnings:
Alliryfir21 árs velkomnir á Broadway
—segir Ólaf ur Laufdal
Ingibjörg Ingadóttir skrifar:
Um daginn las ég viðtal við Ólaf
Laufdal, vegna hins nýja
skemmtistaðar hans, Broadway. Þar
segir hann: ,,Ég vil fá sparibúið
hjónafólk á aldrinum 21 —50 ára.”
Ólafur hefur nú þegar útskýrt að
hann hefur ekkert á móti þeim sem
eldri eru en 50 ára. Hins vegar vil ég
spyrja Ólaf: Hvers vegna vill hann
ekki einhleypt fólk á staðinn? Hvað
hefur hann á móti því? Álítur hann
einhleypt fólk vera einhvers konar
annars flokks fólk, sem ekki eigi
heima innan um þessa „eðlilegu”?
Svar Ólafs Laufdal:
„í DV-viðtali því, sem vitnað er
til, gætir töluverðs misskilnings
blaðamanns og hefur það valdið mér
miklum óþægindum,” sagði Ólafur
Laufdal. „Ég var spurður að því
hvaða hópur ég byggist við að myndi
sækja Broadway öðrum fremur. Þá
sagðist ég ekki sízt eiga von á hjóna-
fólki en annars fólki frá og með lág-
marksaldri, þ.e.a.s. 21 árs. Þetta er
nú allt og sumt.”
Ólafur sagði að lokum að því
væru allir yfir lágmarksaldri
velkomnir, einhleypir sem hjónafólk.
-FG.
Verzlanir seldu
jólaölið frá
Sanitas undir
kostnaðarverði
Ásbjörn Björnsson, Grundargerði
20, hringdi:
Mér þykja þessi jólaölsviðskipti
Sanitas vera undarleg. Fólk fer í gos-
drykkjagerðina og heldur sig vera að
geragóð viðskipti; að það fái jólaölið
í heildsölu eða á einhverju milliverði.
Svo kemur á daginn að í Sanitas
kostarlOI dunkur kr. 80, en t.d. hjá
Víði í Starmýri kostar sami dunkur
kr. 75. Maður nokkur sagist síðan
hafa fengið þennan dunk á kr. 77 og
eiithvað í Síld og fiski.
I Sanitas spurði ég hvernig á
þessu stæði. Var mér sagt að sumir
kaupmenn væru „bara” með
kynningarverð á þessu. Kynningar-
verð ætti þó aldrei að geta verið
lægra en verksmiðjuverð.
,,Við gáfum ýmsum verzlunum kost
á að selja jólaölið fyrir okkur,” sagði
Páll Jónsson, framkvæmdastjóri
Sanitas hf. „Jólaölið okkar var mjög
vinsælt og ýmsir kaupmenn buðu það
til sölu undir kostnaðarverði til þess
að fá fleiri viðskiptavini.
Þetta hafa þeir líka gert með kaffi
og ýmislegt annað og skiptum við
okkur ekki af slíku. Þvert á móti
erum við dálítið hreyknir af að varan
okkar skuli hafa verið notuð til þess
að „trekkja” viðskiptavini,” lauk
Páll máli sínu. -FG.
Frá París höfum viö fengið bréf frá
kennara sem gjarnan vill skrifast á viö
Íslendinga.
Hvervill
skrifast
ávið
franskan
kennara!
—væntanlegur
til íslands
næsta sumar
Nicole Prézeav, 23 Avenue Stephen
Pichon, 75013 Paris, France, skrifar:
Ég er 26 ára gamall franskut
kennari og ætla mér að heimsækja
ísland næsta sumar. Ég hef þvi
mikinn áhuga á að komast í bréfa-
samband við íslendinga sem fyrst, til
þess að fá ábendingar og kynnasl
landi ogþjóð.
Ég get skrifað á norsku, frönsku
og ensku.
Sanitas hefur fært út kviarnar undanfarið, t.d. þegar pilsnerinn kom á markaöinn. Nú
eru þeir hreyknir af þvi að ýmsir kaupmcnn notuðu jólaöliö frá þeim til þess að laða
aö viðskiptavini fyrir jólin.
DV-mynd: Sigurður Þorri.
————■ ....... j
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1981.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
„Fleiri eru breyzkir en Bjöm”:
Alþingismenn höfðu frumkvæði um lögbrot-*&****
Sigurður Sigurðsson hringdi:
í lögum nr. 46, 1980, um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum, segir svo í 52. gr.:
„ Vinnutíma skal haga þannig að á
hverjum sólarhring, reiknað frá
byrjun vinnudags, fái starfsmenn
a.m.k. 10 klukkustunda samfellda
hvíld. Samfelldan hvildartíma má
stytta í 8 klukkustundir, með sam-
komulagi milli aðila vinnumarkaðar-
ins um framkvæmd, þegar um er að
ræða: ajvaktavinnu, b) störf að land-
búnaði, c) björgun verðmæta frá
skemmdum, svo sem sjávarafla.”
Ég vil vekja athygli á því að
alþingismenn urðu fyrstir til þess að
brjóta þessi lög og hafa haldið því
ótrauðir áfram. Eitt nýlegasta
dæmið er, samkvæmt fréttum, að
fyrir skömmu stóðu þingfundir til kl.
1 um nótt og þing var síðan boðað
aftur kl. 9.30 næsta morgun. Auk
þess sat fjárveitinganefnd á fundi
fram eftirnóttu.
Því vil ég sérstaklega vekja athygli
á gr. nr. 99 sem fjallar um
refsiákvæði við brotum á þessum
lögum. Þar segir orðrétt:
„Brot gegn lögum þessum eða
reglugerðum settum samkvæmt þeim
varða sektum, nema þyngri refsing
Sigurður Sigurðsson segir alþingismenn hafa orðið fyrsta til þess að brjóta lög
nr. 46,11980, um aðbúnað, hollustuhættí og öryggi á vinnustöðum.
Úrjólaösinni:
Misskilningur
að nð skiptum
eltki vömm
liggi við að öðrum lögum. Sektir
renna í ríkissjóð. Með mál út af
brotum á lögum þessum eða
reglugerðum settum samkvæmt þeim
fer að hætti opinberra mála.”
Ekki verður ofsagt að „fleiri eru
breyzkiren Björn”.
Lögin gera róð fyrir
undantekningum
Hjá Vinnueftirliti ríkisins fengum
við þær upplýsingar að í þessu bréfi
væri ekki gerð grein fyrir öllum
ákvæðum umræddra laga;
samkvæmt 54. gr. þeirra mætti veita
víðtækar undantekningar, þegar
nauðsynkrefur.
Bent var á að Alþingi setti lögin;
ákveddi sjálft sinn fundartíma og
veitti þannig sjálfu sér undantekning-
ar, með hliðsjón af þjóðhagslegu
mikilvægi sinna starfa. -FG.
Reykjavík:
Skátabúöin, Snorrabraut
Volvosalurinn, Suðurlandsbraut
Fordhúsiö, Skeifunni
Alaska, Breiðholti
Seglageröin Ægir, Grandagaröi
Akureyri:
Kópavogur:
Hjólið, Hamraborg 9 - ^
Toyota, Nýbýlavegi 8
Kaupgarður, Engihjalla
Skátaheimilinu, Borgarholtsbraut 7
Garðabær:
Garðaskóli
—svarar eigandi Gallerís lesandabréf i
um hiðöndverða
Undrandi skrifar:
Nú í vikunni fór ég inn í
verzlunina Gallerí á Laugavegi í jóla-
gjafahugleiðingum. Þar skoðaði ég
karlmannsúlpu á kr. 690,00, sem mér
leizt mjög vel á. Um það leyti sem ég
ætlaði að biðja afgreiðslumanninn að
pakka inn úlpunni spurði ég af rælni
hvort ekki verði hægt að skipta
úlpunni eftir jól. Ég vissi jú ekki
hvort viðkomandi myndi fella sig við
úlpuna, litinn eða bara hvort hún
myndi passa.
Mér til óskaplegrar undrunar segir
afgreiðslumaðurinn kurteislega: „Því
miður.” Eins og eðlilegt er spyr ég
manninn aftur. Og aftur kemur sama
svarið. Kurteislega segist maðurinn
vel skilja mig að vilja ekki kaupa 700
króna gjöf sem ekki verði hægt að
skipta. Hins vegar væri hann bara
núll á staðnum og yrði að hlýða því
sem yfirboðari skipaði.
Eins og flestir hefðu gert í mínum
sporum sagði ég takk fyrir og gekk
út. Ég læt að minnsta kosti ekki
bjóða mér hvað sem er. Ég þurfti
ekki annað en labba yfir í Adam, þar
sem mín beið fyrirtaks þjónusta. Með
þessu bréfi vil ég vara fólk við að
kaupa. rándýrar vörur, sem svo
kannski ekki fæst skipt eftir jól.
Nafni mínu held ég leyndu
einungis af auðsjánlegum ástæðum,
þar sem ég er að fjalla um jólagjöf.
Ég tek það fram að um engin illindi
var að ræða, aðeins undrun og getur
vinkona mín sem var með mér borið
vitni um það.
Misskilningur
Marta Bjarnadóttir, annar eigandi
Gallerís, sagði að hér væri um mis-
skilning að ræða. Hún hefði rætt
þetta við afgreiðslumann þann, sem
hér á hlut að máli, og hefði hann talið
viðskiptavininn fara fram á
hugsanlega endurgreiðslu vörunnar,
ekki einungis skipti.
Marta sagði að auðvitað mætti
skipta vörum i Galleríi engu síður en
annars staðar.
-FG.
Alþýðuhúsið
Söluskúr við Hrísalund
Söluskúr við Hagkaup
Bílskúr við Höfðahlíð
ísafjörður:
Skátaheimilinu, ísafirði
Aðaldalur:
Hjálparsveit skáta Aðaldal
Vestmannaeyjar
Kjarni
Hótelið
Við Blómabúðina Fjólu
Hveragerði:
í Hjálparsveitarhúsnæðinu, Hveragerði
Njarðvík:
Netaverkstæði Suðurnesja
Kaupfélagshúsið, Njarðvík
Vogar, Vogum
Fljótsdalshérað:
Verslun Kjartans Ingvarsson
Blönduós:
Félagsheimilið
Flugeldar - blys - gos - sólir - stjörnuljós
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TIVOLÍBOMBUR
OG INNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
GeHB^omssonl