Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Síða 4
oon • rrrn xr*/rrtrjrr< T » r O’T^* <TTTTTTT WT’AA' T» DV. MIÐVKUDAGUR14. DESEMBER1983. Ekki okurvextir heldur ^ I ágóðahlutur af braski Frá réttarhaldinu í Sakadómi í fyrradag. Saksóknari, Jónatan Sveinsson, er til vinstri að flytja mál sitt. Fyrir j miðju er dómarinn, Birgir Þormar, ásamt ritara. Hægra megin eru verjendur: Baldur Guðlaugsson fyrir Steindór Gunnarsson, Hilmar Ingimundarson fyrir Þóri Rafn Haildórsson og Guðmundur Ingvi Sigurðsson fyrir Sigurberg Guðjónsson. -DV-mynd: EinarÓlason. „Fráleitur vaxtaleikur ákæru- valdsins.” Þetta nafn gaf Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl., verjandi Sigurbergs Guðjónssonar, fyrrverandi héraðs- dómara, okurákæru á hendur skjólstæðingi sínum við málflutning í Sakadómi Reykjavikur í fyrradag. Eins og skýrt var frá á forsíðu DV í gær er Sigurberg meðal annars sakaöur um aö hafa lánaö fé til Þóris Rafns Halldórssonar með vöxtum á bilinu 213,4 prósent til 2358 prósent, miðaðviðeitt ár. Guðmundur Ingvi Sigurðsson sagði í réttarhaldinu, að greiðslur þær, sem í ákæru eru sagðar vaxtagreiðslur, væru ekki vextir heldur hlutdeild Sigurbergs í ágóða af viðskiptum sem Þórir Rafn hugðist gera fyrir þetta fé. Taldi Guðmundur Ingvi aö líta mætti á Sigurberg og Þóri sem einskonar samlagsmenn. Verjandinn krefst sýknu til handa Sigurbergi af ákærum um okur, fjár- svik og skjalafals, en vægustu refsing- ar af ákæru um fjárdrátt, skilorös- bundinn dóm. Guðmundur Ingvi sagði Sigurberg vera fómarlamb Þóris Rafns. I viðskiptum sínum við Þóri hefði Sigur- berg fengið umtalsverðan skell. Hann ætti stórfé, 150 til 170 þúsund krónur inni hjá Þóri. Þetta væri skuld sem hann fengi aldrei greidda og gæti ekki fengiðgreidda. „Ákærði Sigurberg tók áhættu. Hann tók þátt í braski ákærða Þóris Rafns en tapaði,” sagði Guömundur Ingvi. Hann rökstuddi kröfu sína um væg- ustu refsingu við ákæru um f járdrátt úr sektarsjóðum bæjarfógetans í Kópavogi meðal annars með því að játning Sigurbergs hefði verið greið. Sakavottorð hans væri hreint. Brot hans væri ekki stórt. „Þetta er ekki forhertur maður. Hann er ekki hættulegur samfélaginu. Hann var búinn að sjá að sér og ætlaði aöskila fénu,” sagði verjandinn. Til stuðnings máli sínu nefndi hann að i kassa sektarsjóðsins hefðu fundist sektarkvittanir. Kvittanirnar hefðu ekki verið þar nema ákærði Sigurberg hefði ætlað sér aö greiöa féö. Auk þess hefði hann í raun sýnt vilja til að endurgreiða. Guðmundur Ingvi Sigurðsson sagði að Sigurberg hefði þegar hlotið þunga refsingu. Mál þetta heföi verið mikill fjölmiðlamatur. Blöð hefðu smjattað á því. „Þaö vinnst ekkert meö því að senda hann á Litla-Hraun.” Guðmundur Ingvi gagnrýndi aðhalds- og eftirlitsleysi á skrifstofum bæjarfógetans í Kópavogi. Það væri sh'kt eftirhtsleysi sem væri hættulegt samfélaginu. Athygh vakti í réttarhaldinu að sak- borninga greinir á í nokkrum veiga- miklum atriöum. Aðallega stangast framburðir þeirra Sigurbergs og Þóris Rafns á. -KMU. AÐEINS 4% SVIGRÚM TIL LAUNAHÆKKANA — sagði Lárus Jónssoní umræðum um fjárlagafrum- varpiðígær Svigrúm tU launahækkana á næsta ári er nú aðeins taliö vera 2 til 4% í staö 4 til 6% eins og gert var ráð fyrir í fjár- lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem lagt var fram í haust. Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að launaforsendur fjárlaganna fyrir árið 1984 miðist viö 4% launahækkun launa í staö 6%. Þetta kom fram í ræðu Lárusar Jóns- sonar, formanns fjárveitinganefndar, er hann mælti fyrir breytingatiUögum nefndarinnar við fjárlagafrumvarpið áAlþingiígær. I ræðu Lárusar kom einnig fram aö von er á tiUögum um 300 mUljón króna spamaö í tryggingakerfinu og væri gert ráð fyrir þeim í frumvarpinu. Er nú í undirbúningi frumvarp sem felur í sér að sjúkUngar sem leggjast á sjúkrahús skuU greiða 300 tU 600 króna gjald í 10 daga að hámarki á hverju ári og að einstakUngar greiði ákveðið hlut- faU af kostnaðarverði lyfja og sér- fræðiþjónustu. Meirihluti fjárveitinganefndar hafði þá reglu að veita ekki fé til nýrra byggingaframkvæmda og var aðeins gerö undantekning varðandi grunnskólann á Akranesi, enda blasti við neyöarástand í húsnæðismálum hans að sögn Lárusar. Þá tók nefndin mið af því að spara þyrfti 2,5% í launa- útgjöldum ríkisins og að auki 5% í rekstri. „Eitt grundvallarstefnumiö viö gerð þessara f járlaga er að þau verði sem raunhæfust. Með þessu vinnst meðal annars að unnt ætti að vera aö draga úr því aukafjárveitingaflóöi sem tíökast hefur síðustu ár. Afleiöingin er nánast sú að f járveitingavaldið er fært úr höndum Alþingis upp í fjármála- ráðuneyti,” sagði Lárus Jónsson. Sagöi hann að fjármálaráðherra hefði marglýst þeirri skoðun sinni að þessu þyrfti að breyta og hafi hann óskað eftir því að formaður og varaformaður fjárveitinganefndar sitji fundi hans þar sem aukafjárveitingar eru af- greiddar. Sagði Lárus að fjármála- ráðherra hefði einnig marglýst því að hann muni gefa fjárveitinganefnd skýrslu um ástand ríkisbúskaparins og taldi hann að þaö yrði til fyrirmyndar. Þaö kom einnig fram í máli Lárusar Jónssonar aö fjármálaráðherra hafi ákveöiö að skipa nefnd til þess aö fýlgjast sérstaklega með framkvæmd fjárlaga og munu eiga sæti í þeirri nefnd forstöðumaður Ríkis- endurskoðunar, formaður og varafor- maður fjárveitinganefndar, deildar- stjóri gjaldadeildar fjármála- ráðuneytis og hagsýslustjóri. Neftidinni verður einnig ætlað að setja fram hugmyndir um endur- skipulagningu ríkisfjármála meö það fyrir augum að draga úr ríkisum- svifum og færa verkefni og tekjustofna til sveitarfélaga. Breytingatillögur þær sem fjár- veitinganefnd hefur gert við fjárlaga- frumvarpiö auka útgjöldin um 166 miUjónir eða tæpt 1%. Nefndin á eftir að gera breytingatUlögur við framlög tU rikisfyrirtækja í B-hluta frum- varpsins, um stöðuheimildir og verkefni á sjúkrahúsum og heUsu- gæslustöðvum, framlög tU hjúkrunar- heimila fyrir aldraða, mál Land- spítalans, vegamál og ýmis land- búnaðarframlög sem tekin verða fyrir við þriöju umræðu fjárlagafrum- varpsins. -ÖEF. í dag mælir Dagfari j dag mælir Pagfari I dagmælir Dagfari Náttúrulögmáli raskað AUir kannast viö þá kenningu að bensínverð miðist við Rotterdam- markað. í hvert skipti sem Arabarn- ir hafa gert breytingar á olíuverði, og meira að segja þegar verð hefur faUið hjá OPEC, hafa hróðugir ráð- herrar upplýst íslenska bifreiða- eigendur um nýtt stökk upp á við í bensíngjaldi á íslandi, vegna þess að Rotterdammarkaðurinn ráði ferð- inni. Landsmenn eru löngu hættir að kynna sér hvað lítrinn kostar og bensínafgreiðslumenn þurfa að hafa stálminni og sérhæfða stærðfræði- kunnáttu tU að slá inn nýjar tölur af Rotterdammarkaði. Stundum hefur maður hugleitt hvers sú ágæta borg Rotterdam á að gjalda þegar verið er að klína á hana þeim gírugheitum íslenskra stjórn- valda að krækja sér í fleiri krónur í ríkiskassann. Fer ekki á milli mála að Rotterdam er verst þokkaða byggða bólið í Vesturheimi án þess þó að HoUendingar hafi um það minnstu vitneskju. Þrátt fyrir ýmiss konar sveiflur upp og niður á verði á olíu og bensíni, bæði vestan hafs og austan, hafa íslenskar ríkisstjórnir átt sitt hald- reipi í Rotterdam og bensínhækkanir riðið yfir okkur jafnt og þétt. Þannig hafa íslenskir bileigendur mátt súpa margan bensíndropann samkvæmt því náttúrulögmáli að Rotterdam- verðið mæli svo fyrir. Þó er það svo að íslendingar hafa búið við rússneskt og útvatnað bensíngutl frá Kákasus sem aldrei hefur nálægt Rotterdam komið og engan samjöfnuð þolir við það bensín sem annars staðar er framleitt. Sannkristnir ihaldsmenn hafa gert hverja atlöguna á fætur annarri að þeim skepnuskap Sovétmanna að selja okkur bensin á alþjóðlegu markaðsverði þegar vitað er að framleiðslukostnaður í Sovét er í engum tengsium við áflogin i Araba- iöndunum og OPEC. Þessar atlögur1 hafa náð hámarki þegar Sjálfstæðis-' flokkurinn er utan stjórnar. Hins' vegar hefur verið undarlega hljótt um þær þegar íhaldið kemst til valda. Hefur þá sannast sem endranær að samtrygging olíufélaga og bensín- sala má sín meir en pasturslitlar ríkisstjórnir og hávaðasamir stjórn- málamenn. Þeim hefur verið pakkað saman í þágu þeirra hagsmuna sem mætast i hinni voldugu oliumafíu Esso, Shell og BP. Hækkað bensín- verð hefur verið rekið ofan i hvern þann hávaðasegg sem hefur haft í hótunum um lækkanir á bensinverði í nafni þess þjóðflokks sem ekur bil- um í þessu landi. Var ekki annað vitað en núverandi ríkisstjórn væri geirnegld á sömu lund, enda mynduð af þeim stjórn- málaflokkum sem eiga mest undir því að olíufélögin greiði sínar tíundir í flokkssjóði. En allt er í heiminum hverfult. Nú hefur það gerst í fyrsta skipti i tslandssögunni að bensín hefur lækk- að í nafni Rotterdam verðs. Hefur það komið mönnum svo í opna skjöldu að enn hafa ekki mynd- ast biðraðir á bensinafgreiðslum. Hafa þó íslendingar kunnað að hamstra vörur og þjónustu fyrir minna fé en sextíu aura á litrann. En þar sem landsmenn eru upp til hópa hagsýnir í innkaupum má fastlega búast við að bensinsala fari vaxandi, ■ enda ljóst að við hverja tíu lítra spar- ast sex krónur. Eru menn hér með hvattir tU aukinnar bilnotkunar, í ljósi þess að við hvern ekinn kíló- metra og eyddan bensinlítra sparast heUir sextíu aurar. Með því að kaupa nógu mikið bensin kemur að þvi að menn eigi loks fyrir jólagjöfum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.