Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Page 5
DV. MÁNUDAGUR12. ÁGÚST1985.
5
Áframlæknar
Yfirvofandi verkfalli heilsu-
gæslulækna hefur veriö afstýrt.
Samningar tókust í kjaradeilu
þeirra og ríkisvaldsins um helgina
og verða þeir því áfram við störf.
Að sögn samningsaðila voru
samningarnir ákaflega flóknir og
kjarabætur mismunandi miklar,
bæði eftir einstökum læknurn og
læknishéruðum.
AUs munu 110 heilsugæslu-
læknar vera starfandi í landinu,
þar af áttu 70 hlut að máli í kjara-
deilunni.
_________________-EIR.
Stolnumbfl
ekiðábrúar-
handrið
— varðalelda
ásvipstundu
Upp úr klukkan 5 aðfaranótt
sunnudags var lögreglunni á
Sauðárkróki tilkynnt um umferðar-
slys við brúna yfir Staðará, um 6
km sunnan við Sauðárkrók. Bíl
hafði verið ekið þar á brúarhandrið
og þegar lögreglan kom á staðinn
var bifreiðin alelda. ökumaður,
sem hafði verið einn í bílnum,
komst út úr bifreiðinni, lítið
brenndur og var hann fluttur á
sjúkrahús.
Á vettvangi var annar bill og
kom í ljós að báðum bifreiðunum
hafði verið stolið á Sauðárkróki.
ökumenn þeirra voru ölvaðir. Þeir
voru aðkomumenn sem höföu verið
að skemmta sér á Sauðárkróki en
ætluðu að aka til Reykjavíkur í
ökutækjunum sem þeir tóku
ófrjálsri hendi.
Bifreiðin sem ekið var á brúar-
handriöið gjöreyöilagðist í eldinum
og var mildi að ekki fór verr. -JKH.
ÓU dekkin sprungu eins og þetta:
rlfa kom í slitflötinn miðjan, eins
og stungið værí með hnifi
DV-mynd VHV.
Óheppinn bílstjóri:
Sprakk
þrisvará
sama
deginum
Ríkharöur Ásgeirsson bílstjóri
var heldur en ekki óheppinn á leið
sinni um Borgarfjörð. Það sprakk
þrisvar hjá honum og ástæðuna
segir hann vera hárbeittan muln-
ing sem Vegagerðin notar í ofaní-
burð.
Fyrst sprakk hjá Ríkharði er
hann var aö aka út úr Borgarnesi.
Er hann ók inn í bæinn aftur síöar
sama dag sprungu tvö dekk en svo
vel vildi tU aö Ríkharður var með
tvö vetrardekk í bílnum hjá sér.
Hann fór siðan tii viðgerðarmanns
í Borgamesi með spnmgnu dekkin
til viögerðar og sagði sá aö sér væri
kunnugt um fleiri tUfelli af
þessu tagi úr nágrenni Borgarness.
Hjá Vegagerð ríkisins í Borgar-
nesi fengust þær upplýsingar, að
þessi ákveðni vegarkafli væri á
undirbúningsstigi fyrir klæðningu.
Ætlunin er að leggja bundið slitlag
frá Borgarnesi upp að Gufuá.
Vegurinn er í biðstöðu og er ekki
um að ræða eiginlegan ofaníburð,
heldur gróft undirlag. Slitlagið á
fyrrgreindan vegarkafla verður
lagt á næstunni.
-pá
Íslenskur50-kall:
f GÓÐUM FÉLAGSSKAP
Þessi athyglisverða auglýsing varð á
vegi tíðindamanns DV1 Hollandi fyrir
skemmstu. Hér auglýsir hollenskur
banki, De Grenswisselkantoren,
peningaskipti af ýmsu tagi og efst í
bunkanum liggur íslenskur 50 króna
seðill, í kompaníi með öðrum seðlum
og verðmeiri.
1 skrá bankans yfir gjaldmiðla hinna
ýmsu landa, sem bankinn skiptir, er
Island hvergi nefnt á nafn og eins og
flestum er kunnugt þýðir hvergi að
reyna að skipta íslenskum peningum í
bönkum erlendis. Þannig hefur það
verið um langt skeið og varla von á að
það breytist í bráð. Það er því erfitt að
segja hvað veldur því að hollenski
bankinn hefur smeygt íslenska 50-kall-
inum þarna með, þeim hefur kannski
bara þótt hann svona fallegur, ofan á
lirunum, doUurunum og mörkunum.-pá.
Laugavegi 51 - Simar 17440 - 29290