Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Blaðsíða 30
30 DV. MANUDAGUR12. ÁGUST1985. „Þarna ertu þá, kallinn." ,Nú læðist ég óséður að þér. Heimsókn í Miðf jarðara: „Laxveiðin er sumum trúarbrögð” A dögunum, þegar blaöamenn DV voru á ferö um Húnavatnssýslur, komu þeir við í veiðiskála Veiði- félags Miðfjarðarár. Hópur 11 Bandaríkjamanna og kvenna var við veiöi í ánni og hafði hann dvaliö þar í tæpa viku. Aflinn var um 80 laxar á 9 stangir. „Veiðileyfi ekki of dýr" Þegar blaðamenn bar að garði á sólríkum föstudegi var hópurinn að rísa úr rekkju eftir miödegisblund. Veörið var eiginlega of gott til veiði þar sem laxinn heldur sig í djúpum hyljum og er styggur þegar sólin skín. I veiðihúsinu voru tvær matseljur og fimm leiðsögumenn en auk þeirra var Böðvar Sigvaldason, formaður Veiðfélags Miöfjarðarár, við- staddur. Böðvar er reyndar einnig formaður Landssambands veiði- félaga og var hann fyrst spurður um þá gagnrýni sem heyrst hefur þess efnis að verð á veiðileyfum í laxveiði- ám sé allt of hátt. „Ég á mjög erfitt meö að sætta mig við að verðið sé of hátt,” sagði Böðvar. „Stangveiðimenn hafa sjálfir boðið þetta verð og bændur selja þeim veiðileyfin sem bjóða best. Það er skylda veiöifélaganna að koma laxinum í verð. 1 gegnum árin hafa þau horfið frá því aö nytja laxár til netaveiði og selt þess í stað stangveiöimönnum aðgang aö þeim. Ef ásókn veiöimanna minnkar þá hljótum við að nýta árnar á þann hátt sem skilar okkur mestum verð- mætum.” Miklar gjaldeyristekjur Böðvar sagði að verö á veiði- leyfum í Miöfjarðará væri misjafnt eftir tímabilum. Dýrast væri það um miðbik sumars þegar flugnaveiði- tímabiliö hæfist og þá væri útlend- ingum svo til eingöngu seldur að- gangur. Þremur vikum seinna væri dýrasta vikan fyrir Islendinga, 17.500 krónur á stöng fyrir daginn, en ódýrast á vorin og haustin, 4.600 krónur. Að sögn Böðvars var veiðin í Mið- fjaröará mjög léleg fyrri part sumars. Tíðarfarið hafði vafalaust sitt að segja, en í seinni hluta júlí- mánaðar haföi veiðin glæðst. „Það eru sveiflur í þessu eins og víðast hvar í lífríkinu og þær gera þetta spennandi.” Böðvar vakti athygli á þeim gjald- eyristekjum sem fengjust frá erlendum laxveiðimönnum. „Þeir þurfa að kaupa sér flugfar til lands- ins og síðan ferðir á veiðistaðina og oft ferðast þeir eitthvað fyrir eða eftir dvöl sína við veiðiárnar. Leiðsögumennirnir nokkurs konar sálfræðingar Eins og áður sagði starfa fimm leiðsögumenn við Miðfjarðará og er hlutverk þeirra aö beina útlend- ingunum á réttu veiðistaðina og að- stoöa eftir þörfum. „Það má segja að við séum nokkurs konar sálfræð- ingar,” sagði einn leiðsögumann- anna. „Ef við erum til dæmis spuröir hvort það sé fiskur í þessum eöa hinum hylnum þá megum við aldrei hika. Maður segir að þar sé fiskur og ef veiðimaðurinn hefur ekki heppnina með sér þá verður maður að hug- hreysta hann og bölva slóttugheitum laxins. Fyrir kemur að maður þarf að kasta eða draga aö landi fyrir fólk en það heyrir til undantekninga. Yfirleitt eru útlendingarnir sem koma hingað veiöimenn af lifi og sál.” „Allright, lets go and get them" Þau orð sönnuðust líka á Sidney Waud þegar hann renndi í Vesturá, á frægasta veiðistaðnum við Mið- fjarðará. Hann var með félaga sínum og Kristni Breiðfjörð yfirleið- sögumanni. Eftir nokkrar vanga- veltur tók Sydney glaðbeittur stefnuna út að ánni. „Allright, lets go and get them,” sagði hann. Þegar hann var kominn í námunda við veiðistaðinn fór hann að með gát og læddist að hylnum þar sem hann ætlaði að klófesta þann stóra. Kristinn Breiðfjörð sagði að sumum væri laxveiðin t'rúarbrögð og er Sydney vafalaust í þeim hópi. „Það skiptir menn miklu hvaða flugur og tæki þeir nota. Yfirleitt koma þeir með allt með sér að utan. Að vísu hafa íslenskar flugur notið vinsælda hjá útlendingum og eru Þingeyingur, Dirty Harry og Sheep- úrvalið vinsælastar,” sagði Kristinn. Eftir nokkra stund sneri Sydney aftur með slitna línu. Þegar blaða- menn kvöddu og óskuöu honum góðs gengis við veiðarnar þakkaði hann fyrir og sagöi að sér veitti væntan- lega ekki af. JKH „Sydney kominn i stellingar. Ekkert sést af honum nema toppurinn á hattinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.