Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Page 8
DV. MANUDAGUR12. ÁGUST1985.
Simon
LeBon
íhafraunum
Simon Le Bon, aöalsöngvara
bresku popphljómsveitarinnar
Duran Duran, var bjargaö af þyrlu
eftir aö skútu hans hvolfdi í
siglingakeppni undan suðvestur-
hluta Englands. 28 manns voru um
borö en engan sakaöi.
Björgunarskip og þyrla komu
fólkinu strax til bjargar eftir að
skútunni var kollsiglt þegar hvessti
mjög á keppendur. Er þetta versta
veður sem þessi árlega keppni
hefur mcppt síöan 1979 þegar
fimmtán þátttakenda drukknuðu.
VILDU EKKI
BERBRJÓSTA
NORNIR
Italskur óperuleikstjóri reiddist
svo í sennu viö framkvæmdastjóra
óperuhátíöarinnar í Salzburg aö
hann gaf framkvæmdastjóranum
kinnhest. Hefur óperuleikstjórinn
veriðlátinnfara.
Tilefniö var þaö aö Piero
Faggioni haföi í uppfærslu sinni á
„Macbeth” gert ráð fyrir aö
nomirnar þrjár væru berbrjósta
við seiðinn á heiðinni þar sem
Macbeth gekk fram á þær í þok-
unni.
Otto Sertl, framkvæmdastjóri
hinnar árlegu músíkhátíðar Salz-
burg, tók fram fyrir hendurnar, á
leikstjóranum daginn fyrir
frumsýninguna.
Frumsýningunni var annars
eindæma fálega tekiö af áheyr-
endum.
300 metra langt eiturský lagði frá
skordýraeitursverksmiöju Union
Carbide í Vestur-Virginíu í gær. 175
manns urðu fyrir eiturverkunum af
gaslekanum og þar af þurftu 130 aö
leita sér aöstoðar á sjúkrahús. 28
þeirra, flestir eldra fólk, voru lagöir
þar inn yfir nóttina.
Verksmiöjan í bænum Institute
(3.200 íbúar) er sams konar og systur-
verksmiöjan í Bhopal á Indlandi þar
sem um 2.500 manns létu lífið i
desember síöasta vetur í mesta eitur-
slysi sem um getur í sögu nútíma-
iðnaðar.
Eiturskýið, sem slapp úr verk-
smiðjunni, innihélt methyl isocyanate,
eöa sama efnið og um var aö ræöa í
Bhopal, en í miklu minni mæli aö sögn
sérfræöinga verksmiðjunnar. Enda
varö lekans strax vart og hann var
stöðvaður innan tiu mínútna.
Rekstur þessarar verksmiðju var
stöðvaöur í þrjá mánuöi í vetur eftir
slysiö í Bhopal því aö Union Carbide lét
enuuruæia ymsaii ui yggisuuuao liyrir
5 milljónir dollara) til að fyrirbyggja
annaö slys eins og í Bhopal. Fram-
leiösla á MlC-eiturefnum hófst í maí og
var þá lýst yfir af fyrirtækinu aö
endurbæturnar mundu ekki aðeins
hindra mengun . andrúmsloftsins
heldur og tryggja að gas breiddist
ekki út ef svo ólíklega vildi til aö þaö
læki úr verksmiðjunni.
Meöal íbúa Institute ríkir mikil
gremja í garö Union Carbide. Þeir
höfðu orðið aö byrgja sig inni og loka
sem vendilegast öllum gáttum í tvær
klukkustundir á meðan hættan leið hjá.
Sömuleiðis íbúar nærliggjandi þorpa
(um 2000 manns), Dunbar og Cross
Lanes.
Eiturskýið lagöi einnig yfir
hraöbraut 64 og olli umferöartruf lun.
Sérfræðingar slysavarna segja aö
naumast sé aö búast við eftir-
verkunum eða síöar framkomnum á-
hrifum eiturlekans. Hann hafi ekki
veriö svo stór.
Strandaglóp-
ar á eyðieyju
Tveir ungir drengir, 7 og 11 ára
gamlir, voru í tuttugu og tvo daga
strandaglópar á eyðieyju þar sem
heimageröa fleka þeirra haföi rekið á
land. Þeir höfðu farið í ævintýrasigl-
ingu niöur fljót eitt, afskekkt í Síberíu,
og höfðu að fyrirmynd þá frægu félaga,
Stikilsberja-Finn og Tuma.
Fjölskyldur þeirra voru ýmsu vanar
af óhlýðni drengjanna og ævintýra-
mennsku og biöu í nokkra daga með aö
tilkynna hvarf þeirra en síðan hó:
umfangsmikil leit. — Hrein tilvilj
olli því aö ungmenni á róðrarbát tó
sér ferð á hendur niður fljótið og höf
viökomu á eyjunni þar sem þau ráki
á drengina.
Flekunum haföi hvolft í árstrenf
um rétt við eyjuna og drengimir koi
ist á land en farkostimir hurfu og þi
veglausir. Drógu þeir fram lífið
jurtarótum og vatni.
spellvirkjunum?
David Lange, forsætisráöherra
Nýja-Sjálands, sagði í morgun aö
menn þeir er sökktu Rænbow Warrior,
skipi grænfriöunga.í höfninni í Auck-
land á Nýja-Sjálandi í síöasta mánuði,
gætu vel hafa veriö málaliöar í þjón-
Vilja Nimeiri
framseldan
Abdul-Rahman Swareddahab,
hershöföingi, hinn nýi leiðtogi í
Súdan, hefur fariö þess formlega á
leit viö stjórnvöld í Egyptalandi aö
þau framselji Nimeiri fyrrverandi
forseta Súdan. Nimeiri leitaöi hælis
í Egyptalandi eftir aö hafa veriö
settur af af Swareddahab og félög-
um í byltingu í apríl síðastliönum.
Egypsk yfirvöld hafa enn í engu
svarað tilmælum stjórnarinnar í
nágrannaríkinu Súdan um framsal
Nimeiris.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, hefur þó látiö hafa eftir sér
aö stjórnarskrá ríkisins banni
framsal pólitískra flóttamanna.
Abdul-Rahman Swareddahab hers-
höfðingi hinn nýi leiðtogi í Súdan.
ustu erlends ríkis eða starfsmenn
leyniþjónustu einhvers erlends ríkis.
Forsætisráöherrann kvaö þó engin
sönnunargögn tengja meinta
skemmdarverkamenn viö nokkurt
erlent ríki eða leyniþjónustu þess.
Franska ríkisútvarpiö sagöi á laugar-
dag aö franska pariö sem stjórnvöld á
Nýja-Sjálandi handtóku og gruna um
aðild aö sprengingunni séu yfirmain
og útsendarar í frönsku leyniþjónust-
unni. Mitterrand, forseti Frakklands,
hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á
því hvort frönsk leyniþjónusta hafi átt
einhvern þátt í sprengitilræðinu við
skip grænfriðunga. Lange forsætisráö-
herra hefur boöiö frönskum yfir-
völdum aö senda fulltrúa sína til Nýja-
Sjálands ef það mætti veröa þeim aö
haldi við rannsókn málsins. Frönsku
skötuhjúin, er grunuð hafa veriö um
sprenginguna, eiga aö koma fyrir rétt í
Auckland á miðvikudaginn. Auk
meintrar aöildar aö sprengjutilræöinu
viö skip grænfriðunga hefur pariö
verið ákært fyrir morö á ljósmyndara
grænfriöunga er lét lífið í sprenging-
unni.
Lange forsætisráðherra sagði aö
tilræöismenn heföu auösjáanlega verið
menn með mikla þekkingu í
skemmdarstarfsemi og toppþjálfun í
allri meðferð sprengiefnis.
„Hér var um fagfólk aö ræöa sem
vissi hvaö þaö var aö gera og hvergi
hikaði við aö koma ætlan sinni í fram-
kvæmd,” sagöi forsætisráöherrann.
Forsætisráöherrann vísaö á bug sem
órökstuddum fullyröingum orðrómi er
birst hefur í frönskum blööum um aö
Bretar heföu staðið á bak viö spreng-
inguna en ætlaö aö koma sökinni á
Frakka sem hefnd gagnvart frönskum
yfirvöldum fyrir að hafa selt Argen-
tinumönnum Exocet flugskeyti er ollu
Bretum svo miklu tjóni í Falklands-
eyjastríöinu 1982.
Rainbow-málið á Nýja-Sjálandi:
Útlent ríki að baki
VERKSMIÐJU
UNION CARBIDE
—175 manns urðu fyrir eiturverkunum, þrátt fyrir þriggja
mánaða lokun verksmiðjunnar vegna
endurbóta á öryggisútbúnaði
í kinverska alþýðulýðveldinu er bifreiðasala lítil, reiðhjólið enn aðalsam-
göngutœkið. Á skömmum tima tókst þó embættismönnum á Huaneyju að
græða milljónir í bilabraski. DV-mynd hhei.
Kínverskir bfla-
braskarar klófestir
Kínverska Dagblaöiö segir í dag að
yfirvöld hafi komist til botns í einu
mesta svindlmáli í sögu landsins á
Huaneyju undan strönd Suður-Kína.
Segir blaðiö að tekist hafi aö ljóstra
upp um tvo embættismenn
kommúnistaflokksins er hafi á
skömmum tíma grætt tæpar tíu
milljónir íslenskra króna á bílabraski.
Áttu embættismennimir aö hafa flutt
inn nýja bíla aö utan fyrir dýrmætan
gjaldeyri og síðan selt aftur með
góðri álagningu og sæmilegum árangri
til 27 annarra borga og héraöa í
kínverska alþýöulýöveldinu. Aö sögn
blaösins var velta hinna óprúttnu
embættismanna flokksins orðin
rúmlega 50 milljónir íslenskra króna á
tiltölulega skömmum tíma.
Aö sögn blaösins voru samstarfs-
menn tvímenninganna fjölmargir.
Fjórir aðrir bílabraskarar græddu
átta milljónir íslenskra i sömu
viöskiptum og hundrað aörir milli-
göngumenn tæplega þrjár milljónir
íslenskra. Meöalmánaðarlaun í Kina
eru í kringum 700 krónur íslenskar,
lægri þó i héruðum eins og Huan,
aðeins um 500 krónur á mánuði.
Skordýraeitursverksmiðja Union Carbide I Bhopal á Indlandi, þar sem eiturgasleki varð 2.500 manns að
bana. Enn varð eiturleki úr systurverksmiðju fyrirtækisins í Virginíu i Bandaríkjunum.
EITURLEKIHJÁ
Útlönd
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Umsjón:
Guðmundur Pétursson og Hannes Heimisson