Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Qupperneq 28
28 DV. MÁNUDAGUR12. ÁGUST1985. Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga 4. sæti: Valur — FH 4:1 Valur og FH léku um 3. sætið. Leikurinn var aldrei spennandi því FH strákarnir komust aldrei almennilega í gang. Aftur á móti var leikgleði mikil hjá Valsstrákunum og á 7. min. brutust þeir upp miðjuna og skoraði Sveinn Sigfinnsson laglegt mark og staðan 1—0 fyrir Val. Skömmu síðar bættu þeir við öðru marki, var það hinn stórgóði Friðrik Jónsson sem það gerði. Áfram héldu Valsmenn að sækja og á 20. mín. bætti Friðrik við 3. markinu beint úr frísparki af um 30 m færi. Staðan orðin 3—OfyrirVal. I síðari hálfleik héldu Valsmenn uppi sömu pressunni á FH markið og á 10. mín. var dæmd vítaspyrna á FH sem Dagur Sigurðsson skoraði úr af miklu öryggi. FH-ingar tóku nokkuð við sér undir lokin og skoruðu mark, þar var að verki Brynjar Gestsson. Fleiri urðu mörkin ekki í þessum leik og loka- tölur 4—1 fyrir Val var réttlátt eftir gangi leiksins. Bestir í FH, Brynjar Gestsson, Olafur Stephensen og Þorsteinn Egilsson. I Valsliðinu voru atkvæðamestir Dagur Sigurðsson, Friðrik Jónsson, Sveinn Sigfinnsson og Þórarinn Olafsson, Halldór var og traustur í vöminni. Annars er V.alsliðið nokkuð jafnt. 5. — 6. sæti: Þór A. — Höttur 3:1 Þór A. og Höttur léku um 5. sætið. Þetta var góður leikur. Höttur byrjaði með mikilli sókn og voru liðs- menn mjög aðgangsharðir við mark Þórs. En Þórsarar vörðust vel og fóru að koma betur inn i leikinn og um miðjan fyrri hálfleik skoraði hinn bráðefnilegi Guðmundur Benedikts- son fyrir Þór. En um 2 mínútum síðar jafnaði Höttur með marki Brynjars Sigurðssonar og staðan orðin 1—1. Allt gat gerst. En undir lok fyrri hálfleiks skoraði Steindór Gíslason fyrir Þór, beint úr frí- sparki, rétt fyrir utan vítateig. Lag- lega gert hjá Steindóri. Staðan orðin 2—1 fyrir Þór og það sem eftir var tii hálfleiks sóttu Þórsarar meir. Þórsarar áttu mun meira í síðari hálfleik og um miðjan hálfleikinn var dæmd vítaspyrna á Hött sem Steindór skoraði úr af miklu öryggi. Lokatölur þessa leiks því 3—1, réttlát úrslit. Oft brá fyrir skemmtilegum tilþrifum hjá þessum liðum. Höttur kom mjög á óvart í þessu Islands- móti. Bestu menn Þórs voru Steindór Gíslason og Guðmundur Benedikts- son. Hjá Hetti bar mest á Brynjari Sigurðssyni og Elíasi Ingasyni. 7.—8. sæti: Grindavík — Þróttur 4:1 Grindavik og Þróttur iéku um 7. Isætið. Grindvikingamir byrjuðu með hörkusókn og skoruðu strax á 2. Imín., þar var að verki Albert Sævarsson. Á15. mín. bætti Ingi Karl I Ingólfsson við 2. marki fyrir Grinda- ' vík. Og enn sóttu Grindvíkingar og | undir lokin á fyrri hálfleik bættu þeir við 3. markinu, var þar að verki Björn Skúlason. Þannig var staðan í Ihálfleik 3—0 fyrir Grinda vík. Þróttarar komu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og um miðbik hálf- | leiksins skoraði Guðni Yngvason ■ eina mark Þróttar. Undir lok leiksins I bættu Grindvíkingar við 4. markinu. I Lokastaöan 4—1 fyrir Grindavík ■ staðreynd. Bestir í Þróttarliðinu | voru Guðni Yngvason og Marteinn _ Helgason og Vignir Arason. Bestir | hjá Grindavík Albert Sævarsson ■ Bjöm Skúlason og Tryggvi I Kristjánsson. Sfofnað 1908 5.flokkurFram íslandsmeistari 1985 Það má alltaf búast við árangri þegar vel er að staðið. í þessu tilfelli fer það ekki milii mála að mikil rækt hefur verið lögð við allt unglinga- starf hjá Fram. Magnús Einarsson, þjálfari flokksins, hefur náð góðum árangri með strákana. Þeir urðu einnig íslandsmeistarar 1984. Myndin er af hinum glaða hópi. i fremri röð frá vinstri: Arnar Arnars- son, Kjartan Hallkelsson, Hall- mundur Albertsson, Kristján Jósteinsson, Guðmundur Gíslason fyrirliði, Örn Kári Araarsson, Ömar Sigtryggsson, Viðar Guðmundsson og Rúnar Gislason. Aftari röð frá vinstri: Magnús Einarsson þjálfari, Öskar Óskarsson, Ívar Páll Jónsson, Björgvin Þorgeirsson, Einar Páli Kjartansson, Einar Tönsberg, Sigurður Kári Kristjánsson, Pétur Marteinsson, EgUl Sæbjörasson, Óskar Sveinsson, Valgarð Thorodd- sen og Halldór B. Jónsson, form. knattspyrnudeildar Fram. DV-myndir HH). Framarar bestir a íslandi 1985 Sigruðu KR-inga 1:0 í úrslitaleik Fram og KR léku tU úrslita um islandsmcistaratitilinn 1985 á KR- vellinum í gær. Framarar byrjuðu leikinn með mikUli sókn. En inni á milli komu skyndiupphiaup hjá KR- Lokastaðan í riðlunum: A-riðUl: *KR 3 3 0 0 15-1 6 - |fh 3 2 0 1 9-3 4 1 • Höttur 3 1 0 2 2-8 2 I 1 Þróttur 3 0 0 3 1-15 0 1 1 B-riðill: iFram 3 3 0 0 19-5 e 8 1 Valur 3 2 0 1 11-15 4 J | Þór 3 0 1 2 5-11 1 | * Grindavík 3 0 1 2 4-18 1 a mm'mmrn mmm mmm mmm mmmm wmam mm ingum sem sköpuðu af og til hættu við Frammarkið. I einni slíkri átti Ottó Ottósson, KR, gott skot sem rétt smaug við stöng. Á 15. min. komst Rúnar Gíslason í gegn en renndi boltanum framhjá marki KR-inga. Síðustu 10 mín. f.h. jafnaðist leikurinn nokkuð og voru KR-ingar mun ákveðnari. En þrátt.fyrir góðar tUraunir beggja liða tókst þeim ekki að skora. Staðan í hálfleik því 0—0. I síðari hálfleik áttu Framarar aUtaf frumkvæðiö og sköpuöu sér mörg færi. Kjartan Hallkelsson átti skalla hárfínt framhjá KR-markinu og Rúnar brenndi af í góðu færi. Menn voru farnir að halda að þaö þyrfti vítaspyrnukeppni til að fá fram úrslit. En á síðustu mín. skoraði Rúnar Gíslason faUegt mark eftir hom- spyrnu, óverjandi fyrir Rúnar Gunnarsson, markvörð KR. Tæpara mátti það ekki standa því dómari flautaöi til leiksloka stuttu síðar. KR-ingar komust aldrei í gang í þessum leik. Bestir voru Ottó Ottósson, Sigurður Ómarsson og Sigurður ValgeirGuðjónsson. Bestir Framara voru Guðmundur Gíslason og Rúnar Gislason. Annars var Framliðið jafnt í þessum leik og vann verðskuldaðan sigur. / Sigþór Sigþórsson, fyrirliði KR í 5. fl., hafði þetta að segja eftir leikinn gegn Fram: „Við vorum heppnir að fá ekki fleiri mörk á okkur. Eg vil óska Frömuram innilega til hamingju með sigurinn.” -----rT^rlfh^dírSuömuo' ■EUertBSchram’ͰJmm'lslandsbikannn. !ynMynrUaa5'n-F diGisla-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.