Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1986, Qupperneq 24
24
Iþróttir
DV. MÁNUDAGUR10. FEBRÚAR1986
DV. MÁNUDAGUR10. FEBRÚAR1986
25
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Hjörtur jaf naði Islandsmetið
Meistaramót Islands í frjálsum
íþróttum innanhúss fór fram í
iþróttahöllinni og Baldurshaga um
helgina. Um 90 keppendur frá 17 fé-
iögum og samböndum kepptu á
mótinu. Mótió bauð upp á jafna og
spennandi keppni i mörgum grein-
um. Metþátttaka í 50 m hlaupi, 30
keppendur og 13 í langstökki. Sigur-
afrek i mörgum greinum eru ekki
betri en oft áöur en breiddin er að
verða meiri í einstökum greinum,
sem gefur vonir um gott frjáls-
iþróttasumar.
Keppnin var svo jöfn í 50 m hlaupi
karla og kvenna að skoða þurfti
videomarkmyndir vandlega til þess
að skera úr um röð keppenda. Að-
staða fyrir timaverði, markdómara
og markmyndatöku er slik að oft er
erfitt að skera úr um endanlega röð.
Væntanlega verður hægt að bæta
þessa aðstöðu eitthvað i framtíðinni
en liklega aldrei verulega fyrr en
frjálsiþróttafólk fær fijálsíþróttahöll
sem er framtíðarmál.
„Mér tókst að jafna Islandsmetið
mitt í 50 m grindahlaupi og Gísla
Sigurðssonar, ÍR, 6,7 sek., í undan-
rásum og sigra í úrslitum á 6,9 sek.
og einnig tókst mér að sigra í 50 m
hlaupinu."
. „Ég geri mér vonir um að setja
íslandsmet í 60 m grindahlaupi í
Stokkhólmi á Norðurlandameistara-
mótinu um næstu helgi,“ sagði
Hjörtur Gíslason, KR. Hjörtur mætti
sterkur til leiks þótt hann hefði æft
einn á Akureyri. Svanhildur Krist-
jónsdóttir, UBK, er einnig í góðri
æfingu og varð íslandsmeistari í 50
m hlaupi á 6,3 sek. og einnig í lang-
stökki, 5,88 m. Islandsmet Bryndísar
Hólm, ÍR, er 6,02 m innanhúss.
Bryndís stundar nám og æfir í Alab-
ama í vetur. Magnús Haraldsson,
FH, er einn reyndasti innanhúss-
hlaupari landsins og sigraði fjórða
árið í röð í 800 m hlaupi, 2:07,8 mín.
og 1500 m, 4:24,5 mín. I þrístökki
setti Jón A. Magnússon, HSK,
drengjamet, 13,84 m, og varð i þriðja
sæti.
Margt af besta frjálsíþróttafólki
landsins dvelst erlendis við nám og
æfingar og gerði það mótið svip-
minna. Frjálsíþróttalið KR, ÍR,
Ármanns, FH, UBK, HSK og UMSS
settu svip á mótið og eru í framför.
KR-ingar hlutu fjóra íslandsmeist-
aratitla um helgina, UBK þrjá titla,
FH og HSK tvo, ÍR einn, UMFA
einn, UMSS einn.
Karlar: Laugardagur 8. febrúar
800 m hlaup.
Magnús Haraldsson, FH, sigraði í
fjórða sinn í röð í 800 m hlaupi á
lslandsmóti á 2:07,8 mín. á 120 metra
hringbraut í íþróttahöllinni. Finn-
bogi Gylfason, FH, og Garðar Sig-
urðsson, ÍR, fylgdu honum fast á eftir
og bættu sig verulega.
Hástökk
Gunnlaugur Grettisson, KR, sigr-
aði í hástökki með 1,96 m. Hann á
best 2,06 m utanhúss. Annar varð
Kristján Hreinsson, KR, 1,90 m,
fyrrum methafi utanhúss 2,11.
I hástökki varð Gunnar Sigurðs-
son, UMSS, þriðji með 1,90 m. 8
stökkvarar stukku yfir 1,80 m. Haf-
steinn Þórisson, UMSB, sem stökk
nýlega 2,00 m, varð að láta sér nægja
1,80 m að þessu sinni.
Kúluvarp
Bestu kastarar landsins kepptu
ekki að þessu sinni. í fjarveru þeirra
sigraði Guðni Sigfússon, KR, með
12,40 m. Annar Ólafur Unnsteinsson,
HSK(46 ára), með 11,89 m. Keppti
síðast á íslandsmeistaramóti 1969 og
varð þá þriðji með 13,51 m.
Steingrímur Kárason, HSÞ, og
Ámi flelgason, KR, eru efnilegir
kastarar.
Konur800m
Fríða Rún Þórðardóttir, UMF
Aftureldingu, sigraði í 800 m hlaupi
á 2.39,6 mín.
Karlar 50 m hlaup
Gífurlega jöfn og spennandi keppni
var í 50 m hlaupi, 30 keppendur
mættu til leiks í 8 riðlum í Baldurs-
haga. í undanrásum sigruðu Jóhann
Jóhannsson, ÍR, Jón Leó Ríkharðs-
son, IR, og Einar Gunnarsson, UBK,
í sínum riðlum á 6,1 sek. 11 hlupu á
6,2 sek. í milliriðli og undanúrslitum
sigraði Jóhann aftur á 6,0 sek. Hjört-
ur Gíslason, KR, og Gunnlaugur
Grettisson, KR, hlupu á 6,1 sek.
Til úrslita kepptu Jóhann Jó-
800 m hlaup karla mín.
1. Magnús Haraldsson, FH 2:07,8
2. Finnbogi Gylfason, FH 2:10,0
3. Garöar Sigurðsson, ÍR 2:11,3
800 m hl. kvenna mín.
1. Fríða R. Þórðard., UMFA 2:39,6
Hástökk karla m
1. Gunnlaugur Grettisson, KR 1,96
2. Kristján Hreinsson, KR 1,90
3. Gunnar Sigurðsson, UMSS 1,90
Kúluvarp karla m
1. Guðni Sigfússon, KR 12,40
2. Ólafur Unnsteinsson, HSK 11,89
3. Steingrímur Kárason, HSÞ 11,35
4. Ámi Steinssen, KR 11,14
Kúluvarp kvenna m
1. Soffia Rósa Gestsd., HSK 13,71
2. Guöbjörg Gylfad., USAH 12,84
3. Hildur Harðard., HSK 12,20
50 m hl. kvenna, úrslit sek.
1. Svanhiidur Kristjónsd., UBK 6,4
2. Guðrún Arnardóttir, UBK 6,7
3. Ingibjörg fvarsd., HSK 6,9
50 m hl. karla, úrslit sek.
1. Hjörtur Gíslason, KR 5,9
2. Jóhann Jóhannsson, ÍR 6,0
3. Jón Leó Ríkharðsson, ÍR 6,1
4. Gunnlaugur Grettisson, KR 6,1
Langstökk karla m
1. Siguijón Valmundsson, UBK 7,01
hannsson, ÍR, Jón Leó Ríkharðsson,
ÍR, Hjörtur Gíslason, KR, og Gunn-
laugur Grettisson, KR.
Jón Leó hafði forystu framan af en
Hjörtur og Jóhann sigu fram úr á
lokametrum hlaupsins.
Hjörtur Gíslason, KR, sigraði þá
félaga Jóhann og Jón Leó á sjónar-
mun á 5,9 sek. og Gunnlaugur varð
rétt á eftir. Hjörtur Gíslason sigraði
nú í þriðja sinn á íslandsmeistara-
móti í 50 m hlaupi en Jóhann Jó-
hannsson hafði sigrað undanfarin
þrjú ár.
Jón Leó Ríkharðsson, ÍR, frá Akra-
nesi, kom flestum á óvart með því
að ná þriðja sæti á 6,1 sek.
Konur, 50 m hlaup
Svanhildur Kristjónsdóttir, UBK,
sigraði örugglega í úrslitum á 6,4
sek. íslandsmet Ingunnar Einars-
dóttur, ÍR, og Geirlaugar Geirlaugs-
dóttur, Á, er 6,3 sek. Guðrún Amar-
dóttir, UBK, varð óvænt önnur á 6,7
sek. Eftir miklar vangaveltur var
Ingibjörg ívarsdóttir dæmd í þriðja
sæti á 6,9 sek. og Eva Sif Heimis-
dóttir, ÍR, fjórða á 6,9 sek. íslands-
methafinn Geirlaug Geirlaugsdóttir,
Á, komst ekki í úrslit með 6,8 sek.
Karlar, langstökk
17 keppendur mættu til leiks. Sig-
urjón Valmundsson, UBK, sigraði
2. Þórður Þórðarson, ÍR 6,86
3. Gunnar Sigurðsson, UMSS 6,72
Síðari dagur
Hástökk kvenna m
1. Guðbjörg Svansd., lR 1,61
2. Inga Úlfsd., UBK, 1,61
3. Þórdís Hrafnkelsd., UÍA 1,61
1500 m hl. karla mín.
1. Magnús Haraldss., FH 4:24,5
2. Garðar Sigurðsson, ÍR 4:25,9
3. Sigurður A. Jónsson, KR 4:28,6
50 m grindahl. kvenna, úrslit sek.
1. Ingibjörg Ivarsd., HSK 7,5
2. Sigrún Markúsd., KR 7,8
3. Birgitta Guðjónsd., HSK 7,9
50 m grindahl. karla, úrslit sek.
1. Hjörtur Gíslason, KR 6,9
2. Aðalsteinn Bernharðss., KR 7,1
3. Þórður Þórðarson, ÍR 7,1
Langstökk kvenna m
1. Svanhildur Kristjónsd., UBK 5,88
2. Ingibjörg fvarsd., HSK 5,63
3. Birgitta Guðjónsd., HSK 5,43
Þrístökk m
1. Gunnar Sigurðsson, UMSS 14,17
2. Aðalsteinn Bernharðss., KR 13,84
3. Jón A. Magnúss., HSK 13,84
(ísl. drengjamet).
með 7,01 m. Þórður Þórðarson, ÍR,
sýndi stórstígar íramfarir og varð
annar með 6,86 m. Gunnar Sigurðs-
son, UMSS, þriðji með 6,72 m. 8
stökkvarar stukku lengra en 6,41 m.
6 íslendingar hafa stokkið yfir 7
metra innanhúss.
Konur, kúluvarp
Soffia Rósa Gestsdóttir, HSK, sigr-
aði í kúluvarpi og setti héraðsmet,
13,71 m, Guðbjörg Gylfadóttir,
USAH, met, 12,84 m. Hildur Harðar-
dóttir, HSK, 12,20 m.
1500 m. Sunnudagur 9. febrúar
Magnús Haraldsson, FH, tók strax
forystuna í 1500 metra hlaupinu og
hljóp í markið sem öruggur sigurveg-
ari fjórða árið í röð á 4:24,5 mín.
Garðar Sigurðsson, ÍR, varð annar á
sínum besta tíma, 4:25,9 mín. 3. Sig-
urður A. Jónsson, KR, 4:28,6 mín.
Konur, hástökk
Guðbjörg Svansdóttir, ÍR, sigraði í
hástökki með 1,61 m í jafnri keppni
við Ingu Úlfsdóttur, ÍR, og Þórdísi
Hrafnkelsdóttur, ULA, sem einnig
stukku 1,61 m. Guðbjörg stökk ný-
lega 1,66 m inni.
50 m grindahlaup
Ingibjörg Ivarsdóttir, HSK, varð
íslandsmeistari á 7,5 sek. Sigrún
Markúsdóttir, KR, varð önnur á 7,8
sek. Birgitta Guðjónsdóttir, HSK, á
7,9 sek.
Manchester United komst á ný í
toppsæti 1. deildar í Englandi eftir að
liðinu hafði tekist að ná jafntefli gegn
Liverpool í gær. Leikið var á Anfield
Road og hvort lið skoraði eitt mark.
Leikmenn Manchester United voru
mun betri framan af og eftir mikla
sókn að marki Liverpool tókst Colin
Gibson að skora eftir 15 mínútur.
Og enn syrti í álinn hjá Liverpool
þegar Paul Walsh varð að yfirgefa
íeikvöllinn vegna meiðsla á ökla í
fyrri hálfleik en hann hefur skorað
18 mörk fyrir Liverpool í síðustu 24
leikjum. En maður kemur í manns
stað og það sannaðist enn einu sinni
í gær. John Wark kom inn fyrir
Walsh og við það gerbreyttist leikur
Liverpool. Og það var einmitt John
Wark sem jafnaði metin þegar fjórar
Karlar, 50 m grindahlaup
Hjörtur Gíslason, KR, kom sterkur
til leiks og jafnaði íslandsmet í
undanrásum, 6,7 sek. Hjörtur Gísla-
son sigraði síðan í úrslitahlaupinu á
6,9 sek. Hörkukeppni var á milli
Aðalsteins Bemharðssonar, KR, og
Þórðar Þórðarsonar, KR, um annað
sætið. Báðir bættu sig. Aðalsteinn
2. á 7,1 sek. og Þórður þriðji á sama
tíma. Margir efnilegir grindahlaup-
arar eru í framför.
Konur, langstökk
Svanhildur Kristjónsdóttir, UBK,
sýndi mikið öryggi og stökk 5,88 m.
íslandsmet Bryndísar Hólm er 6,02
m. Ingibjörg ívarsdóttir varð önnur
með 5,63 m. Birgitta Guðjónsdóttir,
HSK, 3. með 5,43 m. Eva Sif Heimis-
dóttir, ÍR, 5,42 m. 8 stukku yfir 5 m.
Þrístökk
„Ég vissi að ég gæti unnið þrí-
stökkið eins og hver annar og það
tókst með því að stökkva 14,17 m,
UMSS-met. Ég ætla að leggja
áherslu á hástökk og langstökk en
láta þrístökkið frekar eiga sig,“ sagði
Gunnar Sigurðsson, UMSS, eftir
sigur sinn í þrístökki en hann varð
einnig þriðji í hástökki og lang-
stökki. Kraftmikill stökkvari.
FRÍ sá um mótið og gekk það vel
fyrirsig. Ó.U.
mínútur voru til leikhlés. Sammy Lee
hafði þá átt skot neðst í stöngina á
marki United og Wark fékk knöttinn
og skoraði með góðu skoti. I síðari
hálfleik sótti Liverpool meira en
vöm Manchester United var þétt
fyrir og tókst að forðast ósigur. Með
þessum sigri komst United að hlið
Everton með 56 stig en United heldur
efsta sætinu vegna mun betri marka-
tölu.
Þess má geta að danska sjónvarpið
sýndi leikinn á Anfield í beinni út-
sendingu en sem kunnugt er leika
Danimir Jesper Olser og Jan Mölby
með Man. Utd og Liverpool. Þriðji
Daninn var í sviðsljósinu í gær,
danski landsliðsbakvörðurinn Jo-
hnny Sivebæk lék sinn fyrsta leik
fyrir Man. Utd. -SK
Helstu úrslit:
Man. Utd á
toppinn á ný
- ef tir jafntefli, 1-1, gegn Liverpool í gær
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
sundmenn heimsins
voru samankomnir
Austur-þýska stúlkan Sflke Hörner setti
tvö heimsmet á alþjóðlegu sundmóti í
Bonn þar sem flestir fremstu sundmenn
heimsins voru samankomnir. Hömer
synti 200 metra bringusund á 2:25,71 og
bætti met samlöndu sinnar, Ute Geweni-
ger, um 0,46 sekúndur. Árangur Hörner
er því athyglisverðari að met Geweniger
var sett i 25 metra laug.
Hömer setti einnig met í 100 metra
bringusundi á laugardaginn er hún synti
á 1:07,05 mínútum og bætti met banda-
rísku sundkonunnar Tracy Caulkins, er
sett var fyrir fimm árum, um 42 sekúndu-
brot.
lgor Polianski frá Sovétríkjunum setti
heimsmet í 200 metra baksundi karla er
hann synti á 1:56,73 mínútum en fyrra
metið átti Mike West, Kanada, sett í 25
metra laug, 1:57,90. Polianski reyndist
einráður í styttri baksundunum. Hann
vann einnig sigur í fimmtíu metra sundinu
á 25,70 og í 100 metra sundinu á 54,33.
Vestur-þýska sveitin í 4x200 metra skrið-
sundi setti heimsmet. Synti á 7:05,17 mín-
. útum og bætti met Austur-Þjóðverja um
tæpar níu sekúndur.
Þá varð árangur Stephen Caron í styttri
vegalengdum skriðsundsins athyglisverð-
ur. Caron vann sigur í 100 og 2Ó0 metra
skriði. -fros
Enn heimsmet
Bandaríkjamaðurinn Billy Olson setti
nýtt heimsmet í stangarstökki i gær og
bætti þar heimsmet Sovétmannsins Sergei
Bubka sem sagt er frá annars staðar á
síðunni. Olson stökk 5,94 metra i gær og
bætti met Bubka um einn sentímetra.
Mikil rekistefna varð eftir að Olson hafði
stokkið og það kom ekki í ljós að um nýtt
heimsmet var að ræða fyrr en mælinga-
menn höfðu margmælt hæðina.
Met í 400 m hlaupi
• Austur-Þjóöverjlnn Thomas Schönlebe setti
siðan nýtt met I 400 metra hlaupl á móti í Vin í
gær. Schönlebe hljóp á 45,41 sekúndum en eldra
metiö áttl Bretinn Todd Bennett
-SK
Austrið vann
Úrvalslið af austurströndinni sigraði
úrval vesturstrandarinnar i All Star-leik-
unum i bandaríska körfuknattleiknum í
gær með 139 stigum gegn 132. Þetta er 24.
sigur austursins gegn vestrinu í síðustu
36 leikjum. Isiah Thomas var aðalmaður
leiksins og skoraöi 30 stig fyrir lið austur-
strandarinnar og var kosinn MVP-leik-
maöur leiksins að honum loknum.
-SK
Fyrsta fall ÍR í körf u
ÍR tapaði fyrir KR f gærkvöldi, 75-77, og liðið er fallið úr úrvalsdeildinni
IR-ingar brutu blað í sögu körfu-
knattleiks á íslandi i gærkvöldi er
þeir féllu úr úrvalsdeildinni í þá
fyrstu. Þetta er stórviðburður fyrir
þær sakir að þetta er i fyrsta skipti
sem þetta gamla stórveldi í körfu-
knattleik flyst á milli deilda eða allar
götur aftur til ársins 1952 þegar
deildakeppni hófst i körfuknattleik.
ÍR-ingar biðu ósigur gegn KR-ingum
i iþróttahúsi Hagaskólans með að-
eins tveggja stiga mun, 77 stigum
gegn 75, eftir að staðan í leikhléi hafði
verið 47-37 KR-ingum í hag.
KR-ingar skoruðu fyrstu tvö stigin
og eftir það höfðu þeir ávallt foryst-
una í fyrri hálfleik. Um miðjan fyrri
hálfleik voru þeir búnir að ná fjórtan
stiga forskoti, 30-16, og má með sanni
segja að þessi kafli leiksins hafl ríðið
baggamuninn. KR-ingar sýndu á
þessum kafla engan stórleik til þess
að ná þessu forskoti en aftur á móti
vantaði allan baráttuvilja hjá ÍR-
liðinu, hittnin léleg og KR-ingar
gengu á lagið. Undir lok fyrri hálf-
leiks tókst IR-ingum aðeins að klóra
í bakkann og minnkuðu forskot
KR-inga niður í átta stig.
Kristinn Jörundsson, þjálfari tR,
hafði greinilega messað vel yfir sín-
um mönnum í búningsherberginu í
hálfleik því í seinni hálfleik breyttist
leikur liðsins allur til hins betra og
smám saman söxuðu ÍR-ingar á for-
skot KR. Um miðjan seinni hálfleik
var munurinn orðinn aðeins tvö stig.
Þá hljóp heldur betur fjör í leikinn
og úrsbtin hvergi ráðin. Er aðeins
fimm minútur voru til leiksloka tókst
ÍR-ingum að jafna leikinn og mikil
spenna i loftinu en aldrei tókst þó
ÍR-ingum að komast upp fyrir
KR-inga og þar við sat. ÍR fallið í
fyrsta skipti i sögu félagsins og leik-
menn liðsins gengu niðuflútir af
leikvelli.
Þótt ÍR-liðið hafi orðið fyrir þvi
áfalli að falla þurfa þeir ekkert að
örvænta, liðið er ungt að árum og
efnilegt og vera þess í fyrstu deild
næsta vetur á eftir að færa leikmönn-
um meiri reynslu sem á eftir að koma
liðinu að góðu í framtíðinni. Ein-
hvern veginn leggst að manni sá
grunur að vera liðsins í fyrstu deild
verði stutt því liðið er einfaldlega of
sterkt fyrir þau lið sem þar eru nú.
KR-ingar léku þennan leik ágæt-
lega, þeirra bestu menn voru Guðni
Guðnason, Birgir Mikaelsson og
Garðar Jóhannsson, einnig átti Ást-
þór ágæta spretti.
ÍR-liðið var nokkuð jafnt í þessum
leik en þó bar talsvert á Karli Guð-
laugssyni, sérstaklega í seinni hálf-
leik. Þeirleikmenn, sem spiluðu hvað
mest i leiknum, voru allir nokkuð
jafnir í stigaskoruninni.
Stig KR: Guðni 21, Garðar 18, Birgir
18, Astþór 12, Guðmundur 4, Þor-
steinn 4. Stig ÍR: Karl 17, Jón 14,
Jóhannes 14, Björn 13, Ragnar 12,
Vignir 4, Hjörtur 1. Góðir dómarar
leiksins voru þeir Kristbjörn Alberts-
son og Jóhann Dagur.
Fimm á NM
í f rjálsum
Frjálsíþróttasamband Islands
sendir 5 keppendur á Norðurlanda-
meistaramótið i Stokkhólmi 15. og
16. febrúar: Svanhildur Kristjóns-
dóttir, UBK, keppir í 60 m og 200 m
hlaupi, Jóhann Jóhannsson, ÍR, í 60
m hlaupi og 200 m hlaupi. Aðalsteinn
Bernharðsson, KR, í 200 m og 400 m
hlaupi. Egill Eiðsson, UÍA, í 400 m
hlaupi, Hjörtur Gíslason, KR, keppir
í 60 m og 60 m grindahlaupi. Meistara-
mót Norðurlanda innanhúss er nú
háð í fyrsta sinn.
Ó.U.
% s
• Steinar Birgisson lék mjög vel með
b-Iiðinu og skoraði 9 mörk.
A-liðið vann
æfingaleikinn
í Keflavík í gærkvöldi, 27-23
Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttaritara
DV á Suðurnesjum:
A-landsliðið i handbolta lék gegn
b-liðinu í íþróttahúsinu í Keflavík i
gærkvöldi og sigraði, 27-23. Leikurinn
var liður í undirbúningi landsliðsins
fyrir HM í Sviss en gæti reynst dýr.
Sigurður Gunnarsson meiddist á
ökkla og varð að yfirgefa völlinn.
Ekki var ljóst í gærkvöldi hversu
alvarleg meiðsli hans eru en ljóst er
að hann mun að minnsta kosti verða
frá í viku.
B-liðið náði tvívegis forystunni, 5-3
og 7-6, en í hléi hafði a-liðinu tekist
að snúa taflinu sér í hag, 12-11.
Frá Sveini Armanni Sigurðssyni,
fréttamanni DV áSelfossi:
Selfyssingar gerðu sér lítið fyrir og
lögðu topplið Týs frá Vestmannaeyj-
um í leik liðanna i 3. deild íslands-
mótsins í handknattleik á föstudags-
kvöldið.
Selfyssingar skoruðu 16 mörk gegn 14
mörkum Eyjamanna. Staðan í leikhléi
var jöfn, 7-7. Þetta er fyrsta tap Týrara
í vetur. Leikurinn var jafn framan af og
um tíma í síðari hálfleik leit ekki út fyrir
Bogdan landsliðsþjálfari gerði eina
breytingu á liðum sínum í hálfleik.
22 áhorfendur
slösuðust
22 áhorfendur á leik Liverpool og
Manchester United í gær slösuðust á
auga er nokkrir unglingar á leiknum
tóku sig til og úðuðu eitraðri efna-
blöndu yfir áhorfendur. Þrátt fyrir
meiðsli áhorfenda þurfti aðeins einn
þeirra að leita sér lækninga á sjúkra-
húsi. -fros
sigur heimamanna. Týr hafði þá yfir,
9-12, en þá komu sex mörk í röð frá
Selfyssingum og úrslitin ráðin. Heima-
menn fengu sjö vítaköst í leiknum en
nýttu aðeins tvö þeirra. Týrarar fengu
einnig sjö víti en skoruðu úr fimm.
Sigurður Sævarsson og Sævar Sverris-
son skoruðu 5 mörk hvor fyrir Selfoss
en þjálfarinn og fyrrum Valsmaður,
Steindór Gunnarsson, skoraði 3 mörk.
Hjá Eyjamönnum var Jóhann Benónýs-
son markahæstur með 5 mcik(4 víti).
Þorsteinn Þorsteinsson skoraði 3. -SK.
Geir Sveinsson er hafið hafði leikinn
með b-liðinu lék þann seinni með
a-liðinu og Þorbjöm Jensson gekk
til liðs við b-liðið. Heldur gengu
hlutirnir a-liðinu í hag í seinni hálf-
leiknum, liðið komst í 26-19 en b-liðs-
mennirnir minnkuðu munninn fyrir
leikslok í fjögur mörk, 27-23.
Kristján Arason átti bestan leik í
a-liðinu ásamt hornamönnunum
Guðmundi Guðmundssyni og Bjarna
Guðmundssyni.
Hjá B-liðinu bar Steinar Birgisson
af en einnig átti Valdimar Grímsson
ágætan leik.
Mörk a-liðsins: Kristján Arason
10/5, Guðmundur og Bjarni 5, Geir
3, Atli 2, Sigurður og Páll 1.
Mörk b-liðsins: Steinar 9/2, Vald-
imar 6, Egill 3, Jakob 2, Jón Árni,
Júlíus og Karl, sem nú lék að nýju
eftir meiðsli, 1.
Þeir Einar Þorvarðarson og Krist-
ján Sigmundsson stóðu í marki
a-liðsins. Einar fyrri hálfleikinn og
Kristján þann seinni. I marki b-liðs-
ins skiptu þeir Ellert Vigfússon og
Brynjar Kvaran með sér verkurn.
Dómarar vom þeir Jón Kr. Magn-
ússon og Hafsteinn Friðjónsson.
-fros
Selfoss vann toppliðið
''tjnar uppistöður
Endauppistöður
Uuulia stálhlUur
áelnstaefiu wetfil
Gráfeldur hefur einnig ávallt á lagervinsæla LundÍ3"
furuhillukerfið. nú líka fáanlegt í fallegum tískulitum.
Gráfeldur býður Lund’lcf
T-4000 stálhillukerfið á
ótrúlega lágu verði.
Lundia T-4000 er hannað
sérstaklega fyrir: Verslanir,
skrifstofur, teiknistofur og alls
kyns skjala- og birgðageymslur.
Hillukerfið er fljótuppsett, allt
krækist saman og þú getur
stækkað eða minnkað kerfið að
vild.
Sendum mynda- og upplýsinga-
lista hvert á land sem er.
*
GRAFELDURHE
hingholtsstræti 2, sími 26540.
Hliðar