Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Síða 26
26 MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1986. íþróttir „Spútnikar“ Coventry lögðu Forest að velli - Liverpool skaust upp á toppinn með sigri á Loftus Road • lan Rush sést hér í leik gegn KR á Laugardalsvellinum. Sigur Liverpool á QPR þýðir að lið- ið er enn einu sinni komið á toppinn og virðist erfitt fyrir liðin í næstu sætum, Nottjngham Forest, Arsenal og Norwich, að ógna meisturunum. Slíkur er mannskapurinn hjá Liver- pool. Nottingham Forest tapaði fyrir „spútnikliðinu" Coventry og Manc- hester United tapaði sínum sjöunda leik. Lundúnaliðin taka stig hvertaf öðru Alls eru níu lið i og við London. Viðureignir þessara liða eru alltaf harðar og barist til síðasta blóðdropa. Ólíklegt er talið að meistaratitillinn hafni í London meðal annars vegna þessa mikla fjölda Lundúnaderby- leikja en síðast vann Arsenal titilinn fyrir London árið 1971. Arsenal hefði með sigri yfir West Ham skotist á toppinn én leikurinn endaði í jaín- tefli, 0-0, þar sem markverðimir léku stórt hlutverk. Markvörður Arsenal, John Lukic, bjargaði tvisvar sinnum sérlega glæsilega frá skoska fram- herjanum Frank Mc Avennie. Verður talað um þessa markvörslu í Norður- London næstu árin. Phil Parkes, markvörður West Ham, þurfti að taka á honum stóra sínum undir lokin. Leikurinn endaði 0-0 og Arsenal er því í 3ja sæti. Nýir vendir sópa best Hinn nýi framkvæmdastjóri Manc- hester United, Alex Ferguson, hefur greinilega tekið að sér erfitt starf. 48 klukkustundum eftir að hann tók við starfinu af Ron Atkinson sá Ferguson Manchester United tapa sínum sjö- unda deildarleik í haust. Liðið var án fjögurra landsliðsmanna: Robson, Strachan, Whiteside og Sivebæk og virkaði hikandi og ráðalaust. Oxford réð lögum og lofúm í þessum leik og Úrslit 1. deild: Arsenal-WestHam.............0-0 Coventry - Nottingham Forest.... 1-0 Everton-Chelsea.............2-2 Leicester-Newcastle.........1-1 Manch. City-Aston Villa.....3-1 Norwich-Tottenham ..........2-1 Oxford-Manch. Utd...........2-0 QPR-Liverpool...............1-3 Sheff. Wed. - Southampton...3-1 Watford- Charlton...........4-1 Wimbledon-Luton.............0-1 2. deild: Birmingham - Oldham.........1-3 Blackbum - Sheff. Utd.......0-2 Crystal Palace- Grimsby.....0-3 Derby - Ipswich.............2-1 Huddersfield - Brighton.....2-1 Hull-Stoke..................0-4 Millwall - Leeds............1-0 Portsmouth - Bradford.......2-1 Reading-Barnsley............0-0 Shrewsbury-Plymouth.........1-1 Sunderland-WBA..............0-3 3. deild: Blackpool - Rotherham ......1-0 Bolton-Newport..............0-1 Boumemouth - Carlisle.......2-1 Bristol Rov. - Bury.........1-1 Chester-Brentford...........1-1 Darlington-Middlesbrough....0-1 Doncaster-Gillingham........2-0 Fulham - Bristol City.......0-3 Mansfield-Swindon...........0-0 NottsCounty-Walsall.........2-1 Port Vale-Wigan.............0-1 York- Chesterfield..........1-1 4. deild: Cambridge - Bumley..........3-1 Cardiff-Southend............0-2 Colchester- Orient..........0-0 Crewe-Wrexham...............1-1 Exeter-Peterborough.........1-1 Hereford-Lincoln............0-0 Northampton - Preston.......3-1 Rochdale-Hartlepool.........0-2 Tranmere - Swansea..........1-1 skoraði fyrsta markið á 16. mínútu. Var þar að verki John Aldridge. Hann skoraði mark úr vítaspymu eftir að Kevin Moran hafði fellt hann í víta- teignum. Örstuttu síðar var Aldridge nærri því að skora annað mark, en Mike/Duxbury tókst að krækja knett- inum frá Aldridge sem var kominn einn á fulla ferð upp að marki United. í síðari hálfleik var leikur Manchester United skárri og var greinilegt að Ferguson hafði lesið leikmönnum pist- ilinn. Stapleton, Davenport og Black- more áttu allir tækifæri en ekki náðu þeir að skora. Tækifæri Clayton Blackmore var sérlega hættulegt en hann átti skalla að marki Oxford á 67. mínútu sem Tony Parks markvörð- ur varði glæsilega. Það var svo vamarmaðurinn Neil Slatter sem tók af allan vafa um úrslit leiksins er hann skoraði annað mark Oxford tíu mínút- um fyrir leikslok eftir sendingu frá Kevin Brock. Leikmenn United drúptu höfði og litu í átt til Fergusons sem átti að koma upp með töfraform- úlu á síðustu stundu til að bjarga leiknum. Sú töfraformúla fannst ekki, þrátt fyrir að Manchester United spil- aði best er þeir vom undir, 2-0. Fyrsta tap Manchester United í sex deilda- leikjum, en heimavallarárangur Oxford er óskertur. Ferguson sagði eftir leikinn. „Ég er feginn að leikur- inn er búinn. Það var hálfgerð martröð að einbeita sér meó alla þessa ljós- myndara í kringum sig. Oxford er ekki lélegt lið og það var slæmt að byrja sinn fyrsta leik hér.“ Jesper Olsen kom inn á á 77. mínútu fyrir Paul Mc Grath. Ferguson sagði: „Ég verð að fá að vita hvort Olsen er reiðubúinn að spila fyrir Manchester United og ef svo er þá verður hann að sanna getu sína.“ Manchester City sigrar framkvæmdastjórann gamla Manchester City vann sinn fyrsta leik síðan í ágúst. City sigraði í fyrsta leik sínum í mótinu. Þá var Billy Mc Neill, núverandi framkvæmdastjóri Aston Villa, framkvæmdastjóri Manc- hester City. Þetta var jafriframt fyrsti sigur City undir stjóm Jimmy Friz- zell. Síðasta vika verður hinum 18 ára táningi Paul Moulden minnisstæð. Hann komst í lið Manchester City og skoraði tvö mörk í miðri viku í leik í Full Members Cup og hann endurtók afrekið gegn Aston Villa. Moulden skoraðí fyrsta mark leiksins á 27. mín- útu eftir að Spinks, markvörður Aston Villa, hafði slegið knöttirin út í víta- teiginn eftir skot frá Imre Varadi. Varadi skoraði svo annað mark City á 39. mínútu en hinn snjalli ungi knattspymumaður, Daley hjá Aston Villa, tók til sinna ráða og skoraði glæsilegt mark eftir að hafa leikið á hvem leikmann Manchester City á fætur öðrum. Moulden skoraði þriðja mark City á 78. mínútu og þar við sat. •Luton tókst að bera sigurorð af Wimbledon eftir mikinn baming. Mark Stein skoraði eina mark leiks- ins. • Norwich leikur ávallt skemmtilega knattspymu. Nú sigraði liðið Totten- ham sem tapaði sínum þriðja leik í röð. Fyrrum Tottenhamleikmaður Ian Crook afgreiddi sitt gamla félag. Hann skoraði fyrra markið sjálfur á 48. mín- utu og gaf boltann á vamarmanninn Shaun Elliott sem skoraði síðara mark Norwieh. Nico Claessen skoraði eina mark Tottenham í síðari hálfleik og var það jafhframt hans fyrsta mark fyrir Tottenham. Leikurinn var ákaf- lega skemmtilegur að sögn frétta- manna BBC. Hraður og opinn leikur. Clemence, markvörðor Tottenham, sýndi í þessum leik að lengi lifir í göml- um glæðum og varði eins og hers- höfðingi. Meistararnir komnir á sinn gamla stað Það var búist við því fyrir leik QPR og Liverpool að Liverpool myndi spila rólega í byrjun og reyna að ná völdum i leiknum smátt og smátt. En nú var breyting þar á. Liverpool byrjaði af miklum krafti og notaði nýtt skipulag, beitti löngum spymum fram völlinn. Það tók Liverpool ekki nema 15 min- útur að ganga frá QPR. Ian Rush skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mín- útu. Paul Walsh gaf knöttinn í átt að marki QPR og vamarmaður QPR, Gary Chivers, náði knettinum. Rúsh náði boltanum af Chivers og vippaði honum yfir David Seaman og skoraði þar sitt 19. mark fyrir Liverpool í haust. Jim Smith, framkvæmdastjóri QPR, var ekki ánægður með markið. „Gary Chivers var of góður við Ian Rush.“ Skoski landsliðsmaðurinn Steve Nicol skoraði annað mark Li- verpool sex mínútum síðar eftir homspymu frá Craig Johnston sem er kominn í liðið á ný eftir meiðsli. Nicol fékk knöttinn við fjærstöngina, tók knöttinn á brjóstkassann og þrykkti honum í stöngina og inn. Gary Bannister setti nokkra spennu í leik- inn er hann skoraði fyrir QPR á 27. mínútu. Hann skallaði knöttinn í markið eftir sendingu frá Clive Wal- ker. Walker hafði þá þegar átt þrjú ágæt marktækifæri án þess að nýta þau. Craig Johnston gerði út um leik- inn á 80. minútu með ágætu marki. Fyrsti leikurinn sem hann byrjar inn á í haust. Meistaramir em komnir á toppinn og verður erfitt að hrekja þá þaðan. Fréttamemr BBC sögðu um leik Liverpool að leiknum mætti líkja við spakmæli Groucho Marx en hann sagði um kynlíf: „Þegar það er í lagi er það mjög gott en þegar það er ekki í lagi þá er það gott samt.“ Jim Smith, framkvæmdastjóri QPR, sagði eftir leikinn: „Liverpool lék eins og meist- ari í dag. Liðið skipti um stíl og gaf langar sendingar. Slíkt sést ekki oft til Liverpool. Við vorum of mjúkir. Þegar Liverpool fær tíma til að spila knettinum þá em þeir bestir á Eng- landi. Dalglish, framkvæmdastjóri Liverpool, sagði: „Ég stend við það sem ég hef sagt að ég er ekki hrifinn af að spila knattspymu á gervigrasi. Ég er vissulega ánægður að vera á toppnum nú en ánægðari yrði ég að vera á toppnum í maí á næsta ári.“ Aðdáendur Liverpool vom mjög án- ægðir með leik sinna manna og hrópuðu að leikslokum: „Meistarar, meistarar." Shilton frá vegna meiðsla Sheffield Wednesday sigraði Sout- hampton sannfærandi, 3-1. Lee Chapman, sem hefur skoraði tvö mörk í hveijum af síðustu þremur leikjum Sheffield Wednesday, hélt uppteknum hætti og skoraði mörk sín í síðari hálfleik. Brian Marwood skoraði þriðja mark Sheffield Wednesday úr vítaspymu en ungur leikmaður Sout- hampton, Matthew le Tissier, skoraði eina mark Dýrlinganna. Hann hefur verið iðinn við að skora þessa vikuna, því hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Southampton á Manchester United í Littlewoodbikarkeppninni í miðri viku. Hinn snjalli og trausti markvörður Southampton, Peter Shilton, meiddist í samstuði við Paul Hart, miðvörðinn harðskeytta, og vom sjúkraþjálfarar Southampton í þrjár mínútur að lappa upp á Shilton sem spilaði allan leik- inn. Ólíklegt þykir að hann muni spila landsleik Énglands gegn Júgóslavíu þsrnn 12. nóvember næstkomandi. •Watford sigrar oft stórt. Mikið stemmningslið. Nú lá Charlton. Peter Shipley skoraði reyndar fyrsta mark leiksins fyrir Charlton, en eftir það var allt púður úr leikmönnum Charlton. Mark Falco jafiiaði fyrir Watford rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og bætti við öðm í seinni hálfleik. VamarmaðUr- inn David Bardsley bætti við þriðja markinu og gamla kempan, Luther Blissett, skoraði fjórða og síðasta mark Watford. Coventry þremur stigum frá toppnum Coventry er það lið sem mest hefur komið á óvart í haust. Nú sigraði liðið toppliðið Nottingham Forest. Nick Pickering skoraði eina mark leiksins á 54. mínútu með glæsilegu skoti. Naumur sigur því Neil Webb, marka- skorarinn mikli hjá Nottingham Forest, fékk ágætt tækifæri í fyrri hálfleik. Coventry hefúr nú einungis tapað þremur leikjum í haust eða ein- um færri en Nottingham Forest. •Það gekk mikið á í leik Everton og Chelsea. Trevor Stevens skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspymu á 27. mín- útu eftir að vamarmaður Chelsea hafði handleikið knöttinn í vítateign- um. Keath Jones svaraði fyrir Chelsea nokkrum sekúndum fyrir lok fyrri hálfleiks, á meðan John Hollins, fram- kvæmdastjóri Chelsea, var að koma sér ínn í búningsherbergi. Hann sá því ekki markið. Kevin Sheedy kom Ever- ton yfir á ný í seinni hálfleik og allt virtist búið hjá Chelsea er MC Alister var rekinn af velli. En Colin Pates, fyrirliða Chelsea, tókst að jafria fyrir Chelsea á ný skömmu fyrir leikslok. Gott jafhtefli hjá Chelsea. •Leicester átti í brösum með New- castle. Neil Mc Donald skoraði fyrst fyrir Newcastle á 23. mínútu en Allen Smith jafriaði fyrir Leicester í síðari hálfleik, eins og svo oft áður fyrir Leicester. Portsmouth og Oldham auka forystuna Nú em Portsmouth og Oldham með fjögurra og fimm stiga forystu á næstu lið í 2.! deildinni. Portsmouth sigraði Bradford á heimavelli, 2-1. Kevin Dill- on og Mike Quinn skomðu fyrir Portsmouth en Stuart Mc Call fyrir Bradford. •Oldham sigraði Birmingham glæsi- lega, 3-1, á útivelli. Sigurinn var aldrei í hættu. Tony Henry skeraði fyrsta markið eftir einungis 28 sekúndur og Gaiy Williams bætti við öðm í fyrri hálfleik. Roger Palmer skoraði þriðja markið en Wayne Clarke skoraði eina mark Birmingham. •Sheffield United vann Blackbum á útivelli og er staða Blackbum orðin slæm. Liðið er neðst í 2. deildinni og hefur ekki unnið leik síðan 6. septemb- er en þá vannst 6-1 sigur gegn Sunderland. Tony Daws skoraði bæði mörk Shefifield United. •Ciystal Palace er komið í 11. sæti eftir að hafa verið við toppinn í haust. Ciystal Palace hefur ekki unnið í síð- ustu fimm leikjum. Nú tapaði liðið á heimavelli gegn Grimsby, 0-3. Ian Walsh, Gordon Hobson og O’Riordan skomðu mörk Grimsby. •Derby sigraði Ipswich, 2-1. Gary Micklewhite skoraði fyrra markið, Mike Stockwell jafriaði fyrir Ipswich en Bobby Davison skoraði sigurmark Derby. •Huddersfield vann Brighton. Dunc- an Shearer og Banks skomðu fyrir Huddersfield en Jasper skoraði fyrir Brighton. •Stoke vann sinn fyrsta útisigur í haust eftir að hafa tapað öllum sex fyrri leikjunum. Sigurinn var sann- færandi, 4-0. Ford skoraði fyrsta markið en svo komu tvö sjálfsmörk. Stan Mc Ewan skoraði sjálfsmark og einnig Peter Skipper. Berchin skoraði fjórða mark Stoke. •Millwall sigraði Leeds, 1-0, i morg- unleik. Teddy Sheringham skoraði eina mark leiksins úr vítaspymu. • Shrewsbury og Plymouth gerðu jafntefli, 1-1. John Matthews tók for- ystuna fyrir Plymouth í fyrri hálfleik en Bemard Mc Nally jafriaði fyrir Shrewsbury í síðari hálfleik. •WBA vann athyglisverðan 3-0 sigur gegn Sunderland á útivelli. Gamli harðjaxlinn Ron Saunders, sem er framkvæmdastjóri WBA, er greinilega að rétta skútuna af eftir slæmt gengi í fyrravetur er liðið féll í 2. deild. Martin Dickenson, Bobby Williamson og Garth Crooks skomðu mörkin. -E.J. og Rafn Rafrisson Ajax og PSV að stinga af Allt útlit er fyrir að hreint einvígi verði á milli Ajax frá Amsterdam og PSV Eindhoven í hollensku 1. deildar keppninni í knattspymu. Nú þegar 15 umferðum er lokið í deildinni em Ajax og PSV eins og sér í efstu sætunum og 7 stigum á undan næstu liðum sem em Feyenooid og Den Bosch. Ajax sigraði Den Bosch í gær, 3-1, í Amsterdam og á sama tíma sigraði PSV Haarlen, 5 -0, á sínum heimavelli í Eindhoven. Feyenoord, gamla félagið hans Péturs Péturssonar, tapaði í gær á útivelli fyrir AZ Alkmaar, 2-0. Er ástandið ekki sem best hjá þessu fræga Rotterdamfélagi þessa stundina og búast menn við að þar verði einhver stórskellur á næstunni. Bæði Ajax og PSV skora mikið í leikjum sínum - bæði búin að skora yfir 40 mörk í þeim 15 leikjum sem búnir em í deildinni. Þau hafa heldur ekki fengið á sig mörg mörk það sem af er. Ajax búið að fá á sig 14 mörk og PSV 9.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.