Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Síða 32
32
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Jóhann Axelsson er fimmtán
ára strákur í vesturbænum í
Reykjavík sem hefur haft dýr í
kringum sig frá því hann man
eftir sér. Hann byrjaði á því að
safna kóngulóm á sumrin sem
hann gerði svo ötullega að hann
segir kóngulærnar hafa haldið
tryggð við staðinn því þær séu
hvergi fleiri en í námunda við
heimili hans og næsta nágrenni.
Ekki tímabundið áhugamál
Kóngulærnar voru bara byrj-
unin á þessu áhugamáli hans.
Hann eignaðist einnig hamstra,
páfagauk, hund, dúfur og skjald-
bökur. Tvær læður voru heimilis-
fastar á heimilinu og því fylgdi
að sjálfsögðu hópur kettlinga
öðru hvoru.
Hjá Jóhanni var þetta ekki
bara tímabundið áhugamál held-
ur hefur hann aukið við sig og
er nú með skrautfiska, froska og
kött. Stærsta fiskabúrið tekur
eina 360 lítra og er virkilegt
!• augnayndi. Fiskarnir eru í öllum
regnbogans litum, sumir líta út
fyrir að vera sjálflýsandi, aðrir
hafa óvenjulega lögun og enn
aðrir eru sjaldgæfrar tegundar.
Skrautfiskarnir númer eitt
Mýsnar eru í uppáhaldi hjá
Jóhanni og af þeim hefur hann
I' töluverðan slatta en státar aðal-
lega af einni sem er alveg kols-
vört sem þykir vera mjög
sjaldgæfur litur af mús að vera.
Læðan Píla sýnir oft ótrúlega
þolinmæði við að mæna á mýsnar
í búrunum - ef vera kynni þó
ekki væri nema ein þeirra álpað-
istútúrbúrinu...
Skrautfiskarnir eru þó áhuga-
mál númer eitt hjá Jóhanni og
kann hann öll latínunöfn fisk-
anna og hefur j afnvel í hy ggju
að leggja kjallarann undir rækt-
un skrautfiska i þúsund til tvö
þúsund h'tra búri.
Jóhann er svo heppinn að eiga
frændá í Noregi sem er með fi-
skeldisstöð og hefur hann dvalið
þar nokkur sumur. Draumurinn
er að mennta sig í sérskóla er-
lendis í skrautfiskaræktun.
Áhugamálið tekur að vísu tíma
frá náminu en vissulega veitir
það mikla ánægju. Gæludýrin eru
öll sérstæð á sinn hátt og setja
lit í tilveruna og eru þeim mikla
kosti gædd að geta leitt hjá sér
stress og asa nútímaþjóðfélags-
ins.
Börn, unglingar og full-
orðnir
Guðbrandur Jónsson er eigandi
einnar gæludýraverslunar í
Reykjavík og sagði hann áhuga-
hópinn, sem kæmi i verslunina,
vera mjög blandaðan; börn, ungl-