Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1987.
Fréttir
Nýtt skip bætist í ftotann:
Fyrsta sérsmíðaða
kúfiskveiðiskipið
Um síðustu helgi kom til Suður-
eyrar við Súgandafjörð nýtt sérsmíðað
kúfiskveiðiskip sem hlaut nafiiið Villi
Magg. Það er Erling Auðunsson sem
er aðaleigandi og skipstjóri á skipinu.
Hann sagði í samtali við DV að þetta
væri fyrsta sérsmíðaða kúfiskveiði-
skipið í Evrópu. Það var smíðað í
Hollandi fyrir Erling og kostaði með
öllum búnaði 52 milljónir króna en
það er 147 lestir að stærð.
Erling hefur stofiiað hlutfélagið
Bylgjuna sem mun annast vinnslu á
kúfiskinum í landi og er nú unnið að
því að setja þar til gerðar vélar upp á
Suðureyri. Þegar verksmiðjan verður
komin í gang mun hún afkasta 5 tonn-
um á klukkustund og munu 10 til 12
manns starfa við hana. Erling sagði
að hann hefði markað fyrir kúfiskinn
í Bandaríkjunum þar sem súpugerðar-
verksmiðja kaupir af honum kúfisk-
inn. Þá sagðist Erling hafa sent
sýnishom til Frakklands, Italíu og
Spánar og hefðu þau líkað vel og sagð-
ist hann vonast til að geta selt þangað
líka og jafhvel meira magn þegar
framrní sækir til Bandaríkjanna.
Þess má geta að mjög auðug kúfisk-
mið em víða umhverfis landið og alveg
sérstaklega út af Vestfjörðum. Þessi
fiskistofh hefur aldrei verið nýttur
nema hvað kúfiskur hefur verið veidd-
ur dálítið í beitu. Erling Auðunsson
sagðist hafa það eftir fiskiffæðingum
að kúfiskur væri 3ji stærsti fiskistofh
í N-Atlantshafi á eftir kolmunna og
loðnu.
Kúfiskur grefur sig í sandinn á hafs-
botni gagnstætt hörpuskel sem liggur
ofan á sandinum. Þess vegna þarf al-
veg sérstök tæki, plóg og dælu til að
veiða fiskinn og em tækin í Villa
Magg bandarísk að uppruna.
-S.dór
Fjölmenni var í kröfugöngu verkalýðsfélaganna í Reykjavík 1. maí þrátt fyrir heldur leiðinlegt veður. Lagf var af
stað frá Hlemmi klukkan 14 og gengið niður Laugaveginn að Lækjartorgi þar sem haldinn var útifundur. Aðalræðu-
maður á fundinum var Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar. Auk hans fluttu ræður Hildur Kristins-
dóttir, varaformaður Iðju, og Haraldur Hannesson frá BSRB. Fundarstjóri var Pálmar Halldórsson frá Iðnnemasam-
bandinu. Samtök kvenna á vinnumarkaði héldu útifund á Hallærisplani á sama tíma og fundurinn var á Lækjartorgi.
Ávörp fluttu Guðlaug Teitsdóttir kennari, Bergljót Guðmundsdóttir fóstra og Sigríður Kristinsdóttir sjúkraliði.
DV-mynd Brynjar Gauti
Bankastjómin
óbreytt
- en Stefán fer í orlof
„Við erum ekkert að leita að nýj-
um bankastjóra, það er af og ffá, en
það er rétt að Stefán Gunnarsson
bankastjóri hefur óskað eftfi því að
fá þriggja mánaða frí frá þessum
mánaðamótum. Aðstoðarbanka-
stjóramir tveir gegna auðvitað
störfum hans á meðan eins og áður
þegar Stefán heíur farið í fri,“ segir
Ásmundur Stefánsson, fonnaður
bankaráðs Alþýðubankans.
Þrálátur orðrómur hefiir gengið
um að nýtt bankaráð hafi þegar
ákveðið að segja Stefáni Gunnars-
upp störíum. Þessu neitar
smundur alfarið og segir það ekki
heldur vera á dofinni. Kveilcjan að
þessum orðrómi er vafalaust í og
með 11 milljóna króna tap bankans
á síðasta ári. Þá var hann meðal
annars að kaupa sér mestu innláns-
aukningu sem nokkur banki náði
og fjárfesti mikið.
„Fyrrverandi bankar-áð var búið
að ákveða vaxtahækkun á óverð-
tryggðiun lánum sem tók gildi 11.
apríl. Við ætlum síðan að stuðla að
verulegii tilfærslu útlána til verð-
tryggingai'. Þetta á að bæta hag
bankans, sem hefur anntus þjónað
víðskiptavinum sínmn framúrskar-
andi vel og efalaust skapað fordæmi
í bankakerfínu þannig að fólk getur
nú gengið út frá bankastjóra með
fullri roisn og án þess að finnast það
hafa verið niðurlægtsegir
mttndur.
Ás-
-HERB
Eldeyjarsvæðiö:
Rækjuveiðar ekki leyfðar
Rækjuveiðar verða ekki leyfðar á
Eldeyjarsvæðinu að svo komnu máli.
Sú er niðurstaðan eftir að rannsóknar-
skipið Dröfn kannaði rækjumiðin við
Eldey nýlega. Rækjuaflinn var mjög
tregur en því meira fékkst af smáýsu
eða um 120 þúsund stykki miðað við
hvert rækjutonn. Þetta er langt yfir
viðmiðunarmörkum.
Miðin verða könnuð í síðari hluta
þessa mánaðar ef vera kynni að smáýs-
an hafi þá gengið af svæðinu.
-JH
1. maí á Tálknafirði:
Helmingur þorpsbúa
fór í kröfugönguna
Verkalýðsfélagið á Tálknafirði efndi
til kröfugöngu 1. maí og þá brá svo
við að um helmingur þorpsbúa mætti
í gönguna. Um 160 tók þátt í henni
en íbúar Tálknaftarðar eru innan við
fjögur hundruð.
Gengið var frá aðaltorgi þorpsins að
húsinu Þinghóli en verkalýðsfélaginu
var gefið það hús í fyrra á 50 ára af-
mæli þess. Húsið hefúr nú verið
lagfært og þar var boðið upp á kaffi
og meðlæti og svaladrykki fyrir börn-
Að sögn Ásthildar Michelsen á
Tálknafirði var aðeins eitt kröfuspjald
í göngunni og á því var sú krafa að
næst myndu Tálknfirðingar semja
heima í héraði. Þá var borinn nýr fáni
verkalýðsfélagsins og íslenski faninn.
Ásta sagði að þetta hefði allt verið
mjög hátíðlegt og skemmtilegt, en
þetta er í annað sinn sem verkalýðs-
félagið á Tálknafirði gengst fyrir
kröfugöngu og kaffiveitingum 1. maí.
-S.dór
í dag mælir Dagfari_________________
Allaballar í sárum
Það er mikið rifist í Alþýðu-
bandalaginu þessa dagana. Sem von
er. Leifamar af allaböllunum vita
ekki sitt rjúkandi ráð eftir kosn-
ingaósigurinn og kennir hver öðrum
um. Svavar er sökudólgurinn eða
Ásmundur og Alþýðusambandið, allt
eftir því hver talar hverju sinni.
Guðrún Helgadótir hefur tekið mest
upp í sig og segir að flokkurinn verði
algjörlega að stokka upp, bæði
stefnu, forystu og vinnubrögð. Hún
heimtar blóð og það strax.
Svavar sjálfúr hefur hins vegar
fundið snjöllustu lausnina. Hún er
sú að leggja flokkinn niður, sameina
hann og Alþýðuflokkinn og jafnvel
Kvennalistann líka. Þetta er auðvit-
að hið mesta þjóðráð og eðlileg lausn
í sjálfu sér. Þegar kjósendur eru
hættir að kjósa flokk og enginn er
hæfur til að stjóma honum, þegar
flokkur er búinn að .glata stefnu
sinni og týna jarðsambandinu, þá
er vitaskuld ekkert annað að gera
en leggja þennan sama flokk niður.
í rauninni veit enginn til hvers
Alþýðubandalagið lifir enn. Alla-
ballar em búnir að missa frá sér
konumar yfir til Kvennalistans.
Allaballar em búnir að missa verka-
mennina og litlu mennina yfir til
Borgaraflokksins. Allaballar em
búnir að missa opinbera starfsmenn,
heilbrigðisstéttimar, sjómennina og
unga fólkið yfir til annarra flokka,
eftir því sem þeir segja sjálfir. Hverj-
ir em þá eftir? Flokkseigendafélag,
leikarar sem troða upp á kosninga-
fundum til að syngja intemationa-
linn og þingmennimir sjálfir, sem
nú em bara átta talsins.
í stuttu máli má segja að Alþýðu-
bandalagið, sem á að vera bandalag
alþýðunnar, sé bandalag nokkurra
eftirlegukinda frá því í gamla daga,
sem ekki hafa áttað sig á því að al-
þýðan er fyrir löngu farin. Hún er
farin í aðra flokka.
Sumir kunna að segja að Alþýðu-
bandalagið sé vinstri flokkur en
Kvennalistinn er líka vinstri flokkur
og meira nýmóðins og þar sem þjóð-
in er upp á kvenhöndina er miklu
vænlegri kostur að kjósa kvenfólkið
heldur en gamlan og úreltan vinstri
flokk sem hvort sem er ætlar að
leggja sjálfan sig niður.
Álþýðubandalagið hefur unnið
markvisst að þessum árangri. Flokk-
urinn komst í ríkisstjóm og jók
verðbólguna upp í eitt hundrað og
þrjátíu prósent. Flokkurmn beitti sér
fyrir því innan verkalýðshreyfingar-
innar að kjarsamningum yrði haldið
niðri. Flokkurinn rak Guðmund
jaka af ffamboðslista sínum til að
fæla verkamennina frá. Flokkurinn
setti Ólaf Ragnar í framboð á
Reykjanesi þegar allir sáu að sá
maður ætti miklu betur heima i útl-
öndum. Flokkurinn hafði Svavar í
formannssæti löngu eftir að allir
vissu að Svavar var útbrunninn.
Flokkurinn hefur á stefnuskrá sinni
utanríkisstefnu sem sárafáir Islend-
ingar aðhyllast. Flokkurinn hefur
skipulega unnið að því að vera eins
leiðinlegur í málflutningi og kostur
er. Flokkurinn var á móti frjálsum
útvarps- og sjónvarpsrekstri.
Þessi stefha getur ekki verið tilvilj-
un. Allaballar hljóta að hafa haft
markvissa áætlun um að legga
flokkinn niður. Og nú er komið að
því. Nú er stóra stundin runnin upp.
Nú er búið að rýja hann öllu fylgi,
ýta góðum mönnum til hliðar og
skapa jarðveg fyrir þau endalok sem
allaballa hefur alltaf dreymt um -
að deyja drottni sínum.
Hvort einhver vill taka við hinum
jarðnesku leifum Alþýðubandalags-
ins verður að koma í ljós. Það verður
hins vegar að segja Svavari og öðr-
um forystumönnum Alþýðubanda-
lagsins til hróss að þeir hafa unnið
þarft verk og gengið rösklegar til
þess heldur en hægt var að búast
við. Það er ekki öllum gefið að rústa
heilan flokk og gera hann að engu
á svo stuttum tíma sem Svavar hefur
verið formaður. Sem sýnir fágæta
kosti hans sem formanns í deyjandi
flokki. Þorsteinn Pálsson hefur einn-
ig staðið sig vel með Sjálfstæðis-
flokkinn, en hann hefur þó ennþá
ekki lýst yfir því að Sjálfstæðisflokk-
inn beri að leggja niður. Það hefur
Svavar haft kjark til að gera og er
til fyrirmyndar fyrir aðra formenn
sem hafa það á stefriuskrá sinni að
drepa flokka sína.
Dagfari