Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 4. MAl 1987. - Alfreð gerði tvö mörk en Sljáni þijú hjá Jochen Fraatz Atli Hilmaræan, DV, V-Þýskalandi; Bundesligunni lauk nú um helgina og fögnuðu Alfreð Gíslason og félagar i Tusem Essen einna mest. Stóðu þeir uppi sem sigurvegarar og landsmeist- arar annað árið í röð. Þó vann liðið ekki sigur um helgina, tapaði 17-19 fyrir Gummersbach. Lykilmenn Essen eru margir hrjáðir af meiðslum og kom það óneitanlega niður á leik liðsins í þetta sinnið. Aðalmarkvörður Essen heíúr verið úr leik um hríð en arftaki hans varð óvænt fómarlamb hund- ræksnis fyrir slœmmstu. Gat hann ekki leikið af þeim sökum en tók þó óhappinu sem hverju öðru hundsbiti. Undir markslánni stóð því enginn annar en Jochen Fratz, homamaður v-þýska landsliðsins. Varði hann tíu skot og skoraði eitt mark úr hraðaupp- hlaupi. Segir sá gemingur ef til vill einna mest um þennan leik sem var á köflum nær farsanum en alvarlegri rimmu. Alfreð Gíslason gerði tvö mörk í leiknum fyrir Essen en Kristján Ara- son skoraði þrjú fyrir Gummersbach. Siggi Sveins þriðji Lið Sigga Sveins, Lemgo, vann ör- uggan og frækilegan sigur á Dort- mund, 25^17. Siggi átti einn sinn besta leik í vetur og gerði sjö mörk. Þessi mörk hans færðu honum þriðja sætið í slagnum um markakóngstitil- inn í Bundesligunni. Siggi gerði 176 mörk í vetur. Önnur úrslit H ande witt-Dússeldorf......20-21 Hofweier-Göppingen..........36-30 Grosswallstadt-Hameln.......21-16 Swabing-Milbertshofen.......22-22 Schútterwald-Kiel...........25-25 Gummersbach náði þriðja sæti Essen varð meistari í V-Þýskalandi eins og áður sagði með 42 stig. Gross- wallstadt varð í öðm sæti með 39 stig. I þriðja sæti varð síðan Gummersbach en þeir náðu því sæti með sigrinum um helgina. Þess má geta að öll þessi lið keppa enn í bikamum v-þýska. Hameln féll en Atli berst áfram Þrjú lið féllu beint i aðra deild. Þau eru Weiche Handewitt, Schútterwald og Hameln. Liðin sem taka sæti þeirra em Dormagen og Wallau Massen- heim. Bayer Leverkusen, lið Atla Hilmarssonar, og Tuspo Númberg 'þurfa síðan að eigast við sérstaklega um þriðja lausa sætið í Bundesligunni. Mætast liðin tvívegis, heima og heiman. Atli Hilmarsson taldi nokkra mögu- leika á sigri Leverkusen í þessum viðueignum. „Ég tel okkur eiga jafna mögu- leika,“ sagði Atli. „Markmiðið var að forðast fallið og við mætum því til leiks án allrar spennu og þrýstings. Við höfúm fyrir löngu náð þeim markmið- um sem við settum okkur í upphafi." -JÖG Björgvin þjálfar Fram Nú hefúr verið gengið frá því að Björgvin Björgvinsson þjálfi Fram- ara næsta vetur. Tekur hann við af Per Skárup sem nú er senn á förum til Danmerkur þar sem hann kemur til með að leika með Gladsaxe. Björgvin er gamalreyndur í her- búðum Framara enda lék hann með þeim um langt skeið auk þess að vera meðal okkar leikreyndustu landsliðsmanna. Hann hefúr fengist við þjálfun á undanfömum árum með góðum árangri. Hann þálfaði Stjömuna í Garðabæ áður en hann hélt til Noregs en þai' hefúr hann þjálfað hjá Kristiansand í vetur. Er honum og Steinari Birgissyni þakk- að að liðið náði nú Evrópusæti en á undanfömum árum hefúr liðið barist á botninum. Þar með hafa öll 1. deildar liðin néma KR og Valur gengið frá ráðningu þjálfara sinna. Mikil ánægja er í herbúðum Fram- ara með ráðningu Björgvins en eins og kunnugt er þá er Atli Hilmarsson genginn í raðir Framara. -SMJ • Björgvin Björgvinsson þjálfa Fram næsta vetur. mun íþróttir Standard og Seraing í eina sæng Kiistján Bemburg, DV, Belgíu; Nú stendur fyrir dyrum samein- ing tvcggja liða í belgísku fyrstu deildinni. Þetta eru félögin Stand- ard og Seraing, bæði frá borginni Liege. Þessi hð hafa átt í miklum fjár- hagsvanda í vetur og því sótt á brattann á fleiri sviðum en í knatt- spymunni. Þótt þetta sé eina sjáanlega lausnin á fjárhags- kreppu liðanna er ekki víst að áhangendur þeirra gangi að helm- ingafélaginu þegjandi og hljóða- laust. Margfr em tengdir liði sínu nánum böndum. Verður vart höggvið á þessi bönd án þess að þeir hinir sömu rísi úr sætum með hendur við borðbrúnir og mótmæli síðan einum rómi. -JÖG Atli HBmarasan, DV, V-ÞýskaJandí: Nú, þegar 7 umferðir em eftir í v-þýsku knattspymunni, er Fritz Walter hjá Mannheim markahæsb ur með 20 mörk. Næstur honum kemur Norbert Dickel hjá Dort- mund með 18 mörk. Rudi Völler hjá Bremen er þriðji með 17 mörk. Uwe Rahn hjá Gladbach hefúr sfð- an skorað 15 mörk. -SMJ Draumaliðið hans Diego Maradona Aíh Hnmaissan, DV, V-þýskalandi: í blaðaviðtali nýlegá gerði Diego Maradona grein fyrir sínu uppá- haldsliði í knattspymu og kennir þar ýmissa grasa. í mark velur hann Ubaldo Fioll frá Argentínu. Aðrír leikmenn em: Krool, Holl- andi, Cabrini, Ítalíu, Beckenbauer, V-Þýskalandi, Platini, Frakklandi, Passarella, Argentinu, Zico, Bras- ilíu, Cmyff, Hollandi, Pele, Brasil- íu, Rivehno, Brasilíu og sjálfúr Maradona sem játaði eftir á að lík- lega yrði vandkvæðum háð að fá æssa leikmenn til að bakka. -SMJ » Rudi Völler hefur enn mögu- leika á v-þýska markakóngstitlin- um. Fritz Walter marka- hæstur • Alfreð Gíslason fagnar nú sínum öðrum meistaratitli hjá Essen en Jóhann Ingi sínum fyrsta - svo sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim félögum. Essen varð undir í íslendingaslag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.