Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 24
24
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1987.
Iþróttir
• Hér eru sigurvegarar mótsins, Guðrún H.
Kristjánsdóttir á blússandi ferð og Daníel Hilm-
arsson hinn kyrrasti með skíðin sér við hlið.
Þau Daníel og Guðrún fengu bæði Útsýnarferð
fyrir afrek sín á mótinu.
Bifreið Arnórs
var eyðilogð
- aðdáendur Standard réðust á bifreið Arnórs
Kristján Bemburg, DV, Belgía'
Ólæti þau sem brutust út eftir viður-
eign Anderlecht og Standard Liege
fóru um Brússel eins og eldur um engi.
Amór okkar Guðjohnsen fór enda
ekki varhluta af því hvaða dóm and-
stæðingurinn leggur á mörk hans.
Eftir rimmu Anderlecht og Standard
hélt hann ásamt þeim Vercauteren og
Krencevic og eiginkonum þeirra
þriggja á ónefnt matsöluhús.
Var ágæt sigurstemmning undir
borðum en þegar út var komið blasti
hins vegar við ófögur sýn. Einhver
óþekktur, að öUum líkindum aðdáandi
Standardliðsins, hafði þægt hvötum
sínum á bíl Amórs Guðjohnsen. Gekk
þrjóturinn hreinlega berserksgang á
bifreiðinni og lét höggin dynja bæði
utan hennar sem innan. Ekki lét dólg-
urinn þar við sitja heldur lét greipar
sópa og hafði hann með sér allt laust
úr bílnum, aðallega muni Ólafar Ein-
arsdóttur, eiginkonu Amórs.
Er það von flestra að lögum verði
komið yfir ódæðismanninn enda er
það annarlegur ósómi að sætta sig
ekki við orðinn hlut. Tapaður leikur
heyrir sögunni til sem slíkur og vegur
tapliðsins eykst ekki þótt vargar spilli
friði eða eignum manna. -JÖG
/Jmi
..
^ 1 - - Wiw
Samhliða sólar-
svig hjá Armanni
Samhliðasvig skíðadeiidar Ármanns
fór fram í fyrsta sinn nú um helgina.
Var keppt við ágætar ytri aðstæður
að öllu leyti - í sólskini og logni.
Kvennaflokkur
1. Guðrún H. Kristjánsd., Ak.
2. Snædís Ulriksdóttir, Armanni.
3. Ingigerður Júlíusd., Dalvík.
-JÖG
Keppni var jafnan tvísýn og hörð
enda var mótið haldið með hliðsjón
af skemmtan og brást ekki sú ætlun.
Mjög á óvart komu hinar eldii skíða-
kempur og komst Hafsteinn Sigurðs-
son landsliðsþjálfari meðal annars í
fjögurra manna úrslit.
Verðlaun vom með veglegasta móti.
Útsýn veitti sigurvegurum ferðaverð-
laun en Sportval gaf verðlaun fyrir
annað og þriðja sæti.
Úrslit urðu annars þessi á mótinu:
Olafur áfram
hjá KR-ingum?
„Við stefnum að því að ráða Ólaf
Jónsson aftur til starfa hjá okkur
og viðræður þar að lútandi em nú
í gangi,“ sagði Kristján Öm Ingi-
bergsson, formaður handknattleiks-
deildar KR, en nú em öll 1. deildar
liðin að verða búin að ganga frá
þjálfaramálum sínum. Er það
nokkm fyrr en í fyrra og er greini-
legt að flest liðin ætla sér stóran
hlut í deildinni á næsta vetri.
Nú hafa KR-ingar misst sína helstu
skyttu, Hans Guðmundsson yfir til
UBK, en Hans náði lítið að leika
með KR í vetur vegna síendurtek-
inna meiðsla. „Við erum með geysi-
lega efnilegt lið, til dæmis erum við
með framtíðarlandsliðsmenn hvorn
í sínu hominu. Ef til vill verðum við
að fá skyttu með þeim til að nýta
þessa stráka,“ sagði Kristján Öm.
KR-ingar munu líklega fara í 10 daga
æfingaferð til Danmerkur í lok ágúst
til undirbúnings fyrir íslandsmótið.
-SMJ
Enn skorar Hugo Sanchez
- Real Madrid heldur toppsætinu eftir sigur
Karlaflokkur
1. Daníel Hilmarsson, Dalvík.
2. Ömólfur Valdimarsson, ÍR.
3. Ólafur Sigurðsson, ísaf.
Spennan er enn allmikil í spænsku
knattspymunni þegar sjö umferðir em
óleiknar í úrslitakeppninni. Úrslita-
keppni þessi er með því lagi að liðum
er raðað í keppnisflokka eftir árangri
í deildarkeppni. Eigast félögin síðan
við innbyrðis.
Real Madrid leiðir ennþá með 55
stig en mætir nú aðeins liðum í sama
styrkleikaflokki. Sigur ætti því ekki
að vinnast jafnátakalaust og oft áður.
Nærri Real em erkiféndumir, Börs-
ungar, með 53 stig en Espanol er í
þriðja sæti með 46 stig.
Real Madrid vann í dag sigur á bað-
strandardrengjunum í Real Mallorca
með þremur mörkum gegn engu. Rafa-
el Gordillo gerði tvö mörk en Hugo
Sanchez eitt.
Sigurinn er sjálfsagt einhver sárabót
fyrir dóminn sem féll nýlega í höfuð-
stöðvum EUFA. Dómurinn er með því
lagi að Real-liðinu er gert að leika
næstu tvo heimaleiki sína á Evrópu-
mótum fyrir luktum dyrum.
Þriðju viðureigninni í efsta riðli úr-
slitakeppninnar lauk einnig með
jafntefli. Bæði lið, Sporting Gijon og
Real Zaragoza, gerðu eitt mark.
Urslit á Spáni
Úrslit urðu annars þessi í spænsku
deildinni um helgina:
Sporting Gijon-Zaragoza..........1-1
Dómur þessi er félaginu vitanlega
til refsingar og kemur hún til vegna
dólgsláta áhangenda þess á heimaleik
við Bayem Múnchen nú nýverið.
Börsungar, sem enn mega glíma fyr-
ir opnum tjöldum í Evrópukeppni,
náðu aðeins markalausu jafntefli við
Espanol.
Real Madrid-Mallorca
Espanol-Barcelona........
Valladolid-Atletico Madrid
Real Sociedad-Real Murcia
Sevilla-Real Betis.......
Osasuna-Cadiz............
Sabadell-Athletic Bilbao.
Racing-Las Palmas........
...3-0
...0-0
...1-1
...2-1
...1-3
...3-2
...1-0
...1-3
-JÖG
Úrslitakeppni NBA:
76ers eru þegar
dottnir úr leik
• Doc Rivers hjá
út í fyrstu umferd,
Atlanta Hawks flýgur hér um loftin blá en
Clint Richardson hjá Pacers fylgist með. Hawks slógu Pacers
Símamynd Reuter
Úrslitakeppnin í NBA er nú á fullu
og eru þegar nokkur lið fallin úr
keppni. Milwaukee Bucks slóu Philad-
elphia 76ers út, 3-2, og sigruðu Bucks
stórt, 102-89, í síðasta leiknum. Þá
sigraði hið unga lið Golden State
Warriors lið Utah Jazz einnig 3-2 eft-
ir að hafa sigrað í úrslitaviðureign,
118-113. Þá léku Detroit Pistons Atl-
arita Hawks, 112-111, í fyrsta leik
þeirra en bæði liðin komust áfram úr
fyrstu umferð úrslitakeppninar. Nú
þarf ijóra sigra til að komast áfram en
í fyrstu umferð vom það þrír sigrar.
Önnur lið sem komust áfram úr
fyrstu umferð vom: Houston Rockets,
sem unnu Portland, 3-1, Seattle Super-
sonics sem sigmðu Dallas Mavericks,
3-1, Boston Celtic sem sigmðu
Chicago Bulls, 3-0. , -SMJ