Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Page 8
8
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1987.
STARFSKRAFTUR
óskast til símavörslu, með undirstöðukunnáttu í vélrit-
un. Vaktavinna. Uppl. um fyrri störf óskast send til
auglýsingadeildar DV fyrir 7. maí nk., merkt „Síma-
varsla - vélritun"
Rakarastofan Klapparstíg
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Sími 12725
rímapantanir !
13010 I
-Feiti er okkar fag -
Djup-
steikingar-
feiti
GQS
Dreifing: Smjörlíki hf. Pverholti 19.
Framleiðandi: Hydrol hf. v/Köllunarklettsveg Reykjavík
Hafnarfjörður-
matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði er bent á að
síðustu forvöð að greiða leiguna eru mánudaginn 11.
maí nk. Eftir þann dag verða garðarnir leigðir öðrum.
Bæjarverkfræðingur.
Húsavík
Starf yfirmanns
verklegra framkvæmda
Starf yfirmanns verklegra framkvæmda hjá Húsavíkur-
kaupstað er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til
og með 15. maí nk. Umsóknir er tilgreini aldur, mennt-
un og fyrri störf, berist til bæjarstjórans á Húsavík, sem
jafnframt veitir nánari upplýsingar í síma 96-41222.
Bæjarstjórinn Húsavík.
m
SUMARBUÐIR SKATA AUGLYSA
Innritun í sumarbúðir skáta hefst miðvikudaginn 6.
maí kl. 11- 14 í Skátahúsinu, Snorrabraut 60, Reykja-
vík.
FERÐIR
1.a. 11. júní fimmtudagur til 18. júní fimmtudagur
1.b. 18. júní fimmtudagur til 25. júní fimmtudagur
2.a. 29. júní mánudagur til 6. júlí mánudagur
2.b. 6.júlí mánudagur til 13.JÚIÍ mánudagur
3.a. 16. júlí fimmtudagur til 23. júli fimmtudagur
3.b. 23.JÚIÍ fimmtudagur til 30. júli fimmtudagur
4.a. 5. ágúst miðvikudagur til 12. ágúst miðvikudagur
4.b. 12. ágúst miðvikudagur til 19. ágúst miðvikudagur
Innritun er alla daga á tímanum 11-14, sími er 1 5484.
Innritunargjald er kr. 1.500,- og er óendurkræft.
ÚLFLJÓTSVATNSRÁÐ
Útlönd
Jóhannes Páll páfi II messar á ólympíuleikvanginum í Miinchen. A stöðuskilti leikvangsins er mynd af klerki þeim
er hann tók í helgra manna tölu við þetta tækifæri. Símamynd Reuter
Messaði á ól-
ympíuleikvangi
Asgeir Eggerlssan, DV, Mimchen:
Á fimm daga ferð sinni um Vestur-
Þýskaland lagði Jóhannes Páll páfi II
í gær leið sína til Miinchen. Þar mess-
aði hann íyrir áttatíu og tvö þúsund
manns á ólympíuleikvanginum.
Aðaltilgangur ferðar páfa til
Múnchen var að taka jesúítaprestinn
Rupert Mayer í dýrlirtgatölu. Mayer
var uppi á dögum nasista og barðist
mjög gegn steftiu þeirra. Hann var
tvisvar fangelsaður og á endanum
bannaði kirkjan honum að messa.
Þetta var myrkur kapítuli í sögu þý-
skrar kirkju sem nú hefur verið rifjað-
ur upp. í ræðu sinni lofaði páfi
hugrekki Mayers á dögum nasista.
Líkti hann því við ástandið í heimin-
um í dag þar sem þúsundir kristinna
manna eru undirokaðar.
Á ferð sinni um Vestur-Þýskaland
heimsækir páfi ellefu borgir og lýkur
heimsókninni í dag í Stuttgart. Hvar
sem páfi kom hafði lögreglan gripið
til mikilla varúðarráðstafana. Til
dæmis voru öll holræsarör á vegi páf-
ans athuguð og innsigluð. Hús voru
grandskoðuð og kyrrstæðir bílar fjéir-
lægðir. Jafiivel matinn mátti hann
ekki borða órannsakaðan.
Það eina sem setti strik í vandlega
skipulagða ferðina var skyndilegt
óveður sem gerði í gær er fljúga átti
frá Múnchen til Augsburg. Þyrla páfa
gat ekki hafið sig til flugs í hagléljun-
um og varð hann því að ferðast
landleiðina. Ekki tók þá betra við því
hraðbrautimar voru allar ógreiðfærar.
Til nokkurra mótmæla kom í tengsl-
um við heimsókn páfans. Til dæmis
gengu kvenréttindakonur í Köln
fylktu liði um miðbæinn og kröfðust
þær jafhréttis innan kirkjunnar. I
Köln kveiktu brennuvargar í kirkju
og brann hún til kaldra kola. Ekki er
vitað hver ber ábyrgð á því athæfi.
Sérstaða Quebec-
fylkis viðurkennd
Guðnin Hjartardóttir, DV, Ottawa:
Forsætisróðherrar hinna tíu fylkja
Kanada hafa nóð samkomulagi um
grundvöll að endurbættri stjómar-
skrá fyrir Kanada. Samkomulag
þetta er merkilegt fyrir þá sök að
Quebecfylki hefur fram til þessa ekki
verið aðili að kanadísku stjómar-
skránni.
Þessi tíðindi virtust koma flestum
á óvart hér. í hartnær fjörutíu ár
hafa forsætisráðherrar Kanada
reynt hver ó fætur öðrum að fá Qu-
ebec til að undirrita stjómarskrána
en án órangurs. Ástæðan fyrir því
er sú að Quebecfylkið hefúr ávallt
gert kröfur um sérstöðu sem hin
fylkin hafa ekki getað sætt sig við.
Fyrir fundinn á fimmtudagskvöld-
ið, er samkomulagið náðist, hafði
forsætisráðherra Quebec, Robert
Bourassa, sett fram fimm skilyrði
fyrir því að Quebec gerðist aðili að
stjómarskránni. Neitunarvald á
frekari breytingum ó stjómar-
skránni, viðurkenningu sem sérstakt
samfélag í Kanada með tilliti til
tungumáls og menningar, takmörk-
un á rétti alríkisstjómarinnar til
ráðstöfunar á almannafé sem fellur
undir valdsvið fylkjanna, aukin völd
yfir innflytjendamálum og sérstakt
hlutverk við útnefhingu hæstarétt-
ardómara.
I aðalatriðum felur samkomulagið
í sér að sérstaða Quebecfylkis er við-
urkennd og gengið er til móts við
kröfur þess. En öll fylkin, ekki að-
eins Quebec, fá neitunarvald og
aukin áhrif yfir innflytjendamálum
og við útnefhingu hæstaréttardóm-
ara. Er neitunarvaldið sérstaklega
þýðingarmikið þar sem fram til þessa
hefur nægt samþykki sjö fylkja með
samtals fimmtíu prósent íbúafjölda
landsins til að samþykkja þau mál
sem varða fylkin og alríkisstjómina.
En nú mun hvert fylki geta beitt
neitunarvaldi án tillits til fólks-
fjölda.
Auk þess er í samkomulaginu
kveðið á um endurskipulagningu á
öldungadeild kanadíska þingsins.
Meðlimir þess em nú skipaðir beint
af forsætisráðherra Kanada en ef
hugmyndir forsætisáðherra Alberta-
fylkis ná fram að ganga verða
öldungardeildarþingmenn kjömir en
ekki skipaðir og jafhmargir frá
hverju fylki.
Fari svo munu áhrif öldungadeild-
arinnar aukast mjög og jafriræði
með fylkjum einnig en þingsætum
er nú mjög misskipt eftir fylkjum.
Aðeins eru fimm ár síðan öll fylkin,
að undanskildu Quebecfylki, undir-
rituðu þá stjómarskrá sem nú er í
gildi. Á þessum skamma tíma hafa
menn þó merkt ýmsa vankanta sem
á henni em. Verður tækifærið því
eflaust notað nú til að bæta úr þeim.
Þrátt fyrir samkomulagið er enn
langur vegur framundan þar til öll
fylkin munu undirrita nýja stjómar-
skrá. Það gæti í fyrsta lagi gerst síðla
þessa árs og hugsanlega tafist enn
lengur. Samkomulagið í síðustu viku
var aðeins í grófum dráttum þannig
að enn em samningaviðræður fyrir
höndum. En það dregur ekki úr
bjartsýni manna hér. Eða eins og
Brian Mulroney, forsætisráðherra
Kanada, sagði. „Þetta var góður
dagur fyrir Kanada og Kanada-
menn. Það sem við höfum nú er
heilstæð þjóð og það er mikill munpr
frá því sem áður var.“