Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1987. ^RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa stöðu forstöðumanns fjármálasviðs fyrirtækisins lausa til umsóknar. Hagfræði- eða viðskiptafræðimenntun er tilskilin. Starfið veitist frá 1. júlí 1987. Umsóknir sendist rafmagnsveitustjóra ríkisins, Lauga- vegi 118, 105 Reykjavík, fyrir 20. maí 1987. FRÁ GRUNNSKÓLANUM í MOSFELLSSVEIT Innritun nýrra nemenda í grunnskóla Mosfellssveitar næsta skólaár fer fram dagana 4. og 5. maí nk. kl. 9-14, í Varmárskóla (6-12 ára) í síma 666154 og gagnfræðaskólanum (13-15 ára) í síma 666186. Skólastjórar BORGARA FLOKKURim Skrifstofa Skeifunni 7 Símar: 68-98-28 68-98-29 68-98-35 Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9-17, laugardag kl. 13-17 BORGARA FLOKKURim Sólbaðsstofa Astu B. Vilhjálms, Grettisgötu 18, sími 28705 Aftur er komið að okkarvinsæla tilboði sem allir bekkja. 24 tímará aoeins 1600 krónur. VERIÐ VELKOMIN ÁVALLT HEITT Á KÖNNUNNI íþróttir DV Amor skoraði með skalla - Andeiiecht enn í efsta sæti í belgísku deildinni Kristján Bemburg, DV, Belgiu; Anderlecht átti ekki i teljandi vand- ræðum með Standard Liege. Leik- menn Standard virtust úti á þekju lengst af og náðu því aldréi að sýna sitt rétta andlit. Vercauteren, miðjukóngur And- erlecht, fór hins vegar á kostum. Hann var óstöðvandi og lék vamarmenn Standardliðsins margsinnis grátt. Krencevic gerði þó fyrsta mark And- erlecht í leiknum eftir laglegan undirbúning Amórs og Vercauteren. Sjálfur skoraði síðan Vercauteren næsta mai'k og var það nokkuð sögu- legt. Lék hann með boltann upp kantinn og hugðist senda hann fyrir markið. Það er sjálfsagt táknrænt fyr- ir ógæfu Standardpilta í þessum leik að boltinn hrökk af einum þeirra og í opið markið, framhjá lánlausum markverðinum sem stefndi annað. Arnór okkar Guðjohnsen varð síðan næstur til að skora. Kom hann á hraðri siglingu inn i markteiginn og Bikarkeppni KRA: Þór sigraði Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri: Þór og KA léku til úrslita í bikar- keppni KRA nú um helgina. Reynir, Árskógsströnd, og Vaskur tóku einnig þátt í keppninni. Leikurinn var nokkuð kaia* skiptur - KA réð lögum og lofum í fyrri hálfleik en Þór í þeim seinni og þá skoraði Hlynur Bírgisson sigurmark Þórs. Bæði liðin höfðu unnið keppnina íjórum sirrnum fram að þessu þannig að Þór vann bikarirtn til eignar núna. -SMJ ísland í neðsta sæti Unglingalandslið íslands í körfú- knattleik tók þátt í Norðurlanda- móti unglinga nú um helgina og er skemmst frá því að segja að ís- lenska liðið tapaði öllum leikjum sínum og hafiiaði í neðsta sæti. Danir sigruðu í mótínu en þeir urðu efstir ásamt Finnlandi og Noregi en með betra stigaskor. -SMJ Allen bestur Clive Allen hjá Tottenham var nú um helgina valinn leíkmaður ársins í Englandi. Voru það bresk- ir blaðamenn sem stóðu að valinu en áður hafði Clive Allen verið valinn á svipaðan hátt af samtök- um knattspymumanna í Englandi. Allen fékk 50% atkvæða en hann hefur skorað 47 mörk það sem af er keppnistímabilinu. Glen Hoddle varð annar en Ian Rush, sem sigraði í fyrra, þriðji. ' -SMJ skallaði boltann í netmöskvana. Send- inguna átti Vercauteren. Arnór átti síðan á næstu mínútum þrjú þokkaleg langskot sem fóm að vísu framhjá markinu. Síðasta mark leiksins skor- aði Krencevic rétt undir lokin. Lauk þvi viðureigninni með sigri And- erlecht, 4-0. Eftir leikinn bmtust út mikil ólæti og stóð lögreglan í ströngu. Steyttu stuðningsmenn Standardliðsins skapi sínu á nærliggjandi andvana hlutum eins og bifreiðum og hvers kyns lausa- munum. Ekki hafa þó áhangendur Anderlecht setið auðum höndum því einn stuðningsmaður Standardpilt- anna var fluttur á sjúkrahús þungt haldinn. Önnur úrslit: Ghent-FC Liege...............1-1 Berchem-Antwerpen.............0-5 Seraing-Waregem...............0-0 Kortrijk-Mechelen.............0-1 Charleroi-Lokeren.............3-1 Club Brugge-Beerschot.........5-2 Beveren-Cercle Brugge.........2-0 -JÖG • Arnór Guðjohnsen enn marka hæstur í Belgíu. • Centi frá Como hefst á loft af hrifningu yfir snilld Maradona sem hér sækir að markverði Como Paradisi. Símamynd Reuter Vænkast hagur NapolipiKa -gerðu jafntefli á meðan Inter beið lægri hlut Þótt Maradona og garpar hans í Napoli hafi aðeins náð jafntefli í dag vænkaðist engu að síður hagur liðsins á tindi ítölsku deildarinnar. Óvæntur sigur Ascoli á Inter Milan færði neínilega toppliðin í sundur og nú hefur Napoli þriggja stiga forskot á Inter þegar tvær umferðir em óleikn- ar. Napoli lék í gær við Como á útivelli og skildu liðin jöfn, 1-1. Maradona var ekki á skotskónum í þetta sinn, átti rólegan dag. Mark Napoli gerði hins vegar Andrea Camevale en Salvatore Giunta hafði ' tekið skammvinna foiystu fyrir heima- menn. Inter tapaði Sigurmark Ascoli í rimmunni við Inter Milan gerði tvítugur piltur, Domenico Agostini. Með því marki forðaði hann liði sínu úr fallsæti en rétti nánast um leið Napoli lands- bikarinn í hendur. Rómverjar steinlágu AC Milan burstaði Roma með íjór- um mörkum gegn einu á heimavelli sínum í Mílanó. Pólski landsliðsmað- urinn Sbigniew Boniek tók þó foryst- una fyrir Rómverja en allt kom fyrir ekki. Heimamenn fóru hamförum og unnu öruggan sigur. Mörk þeirra gerðu Pietro Paolo Virdis, þrjú, og Roberto Donaboni, eitt. Juventus marði sigur Juventus vann Sampdoria á heima- velli sínum í Torino með tveimur mörkum gegn einu. Lionello Manfre- donia og Aldo Serena gerðu mörk „Æskunnar" en Gianluca Vialli svar- aði fyrir Sampdoria. Úrslit á Ítalíu Ascoli-Inter.................1-0 Avellino-Atalanta..............2-1 Como-Napoli...................1-1 F iorentina-Torino.............0-0 Juventus-Sampdoria.............2-1 AC Milan-Roma..................4-1 Udinese-Empoli.................3-0 V erona-Brescia.............. 4-1 Staðan á italíu Napoli.......28 15 10 3 39 19 40 Inter Milan....28 15 7 6 32 19 37 Juventus.......28 13 10 5 38 24 36 -JÖG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.