Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Síða 48
F R TTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað i DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MANUDAGUR 4. MAI 1987. Sjómaður dmkknaði Sjómaður af bátnum Lýtingi NS-250 drukknaði er hann tók út af bátnum á laugardagsmorguninn. _«_» Báturinn var staddur norður af Vopnafirði og voru skipveijar að leggja út net. Mun maðurinn hafa fest í einu netanna og farið út með því. Er hann náðist inn aftur var hann látinn. Blíðskaparveður var er þetta gerðist. Sjómaðurinn hét Viðar Ólafsson og lætur hann eftir sig eiginkonu og tvö böm. -FRI Helgarskákmót á Akureyri: Dan Hanson sigraði r Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Dan Hanson, Reykjavík, sigraði á helgarskákmóti sem haldið var um helgina á Akureyri. Hlaut hann 6 vinninga af 7 mögulegum. í 2-3. sæti urðu Elvar Guðmundsson, Reykjavík, og Ólafur Kristjánsson, Akureyri, með 5,5 vinninga hvor. Næstir komu fjórir skákmenn með 5 vinninga, þeirra á meðal Sævar Bjamason og Hannes Hlífar Stef- ánsson en Hannes sigraði í ungl- ingaflokki. Mót þetta var ekki eitt af hinum eiginlegu helgarskákmótum heldur minningarmót um Halldór Jónsson, kunnan skákmann á Akureyri, sem féll frá í fyrra, tæplega fimmtugur. Enginn stórmeistara okkar tók þátt í mótinu en alls vom þátttak- endur 46 talsins. Þetta mun vera sterkasta skákmót sem haldið hefur verið á Akureyri. Svifdrekaslys Svifdrekaslys varð við Úlfarsfell síðdegis í gær er ungur maður hrap- aði í dreka sínum niður úr íjallinu og lenti á túni fyrir neðan það. Maðurinn, sem er vanur svidreka- flugmaður, mun hafa lent í misvindi skömmu eftir flugtak með fyrr- greindum afleiðingum. Hann mun hafa axlarbrotnað í lendingunni en slapp að öðm leyti ómeiddur. -FRI LOKI Eru þetta ekki fóstur- skemmdir hjá Davíð? Fóstnir drógu uppsagnir sínar til baka: Játum okkur sigraðar - en holdum baráttunni áfram, segir Sesselja Hauksdóttir „Við játum okkur sigraðar í þess- ari orrustu en baráttan mun halda áfram,“ sagði Sesselja Hauksdóttir í viðræðunefrid Reykjavíkurfóstra í samtali við DV í morgun. Á fundi í gærkveldi ákvað meirihluti fóstra að draga uppsagnir sínar til baka og snúa aftur til starfa. Á fundinum sögðust rúmlega 100 fóstrur vilja halda áfram störfum en rúmlega 50 vom því andvígar. Sesselja sagði í morgun að hún ætti von á því að fóstrur myndú flestar snúa aftur til vinnu en þó væri vitað um einhverj- ar sem myndu ekki gera það og hefðu ekki gert það undir neinum kring- umstæðum. Eins sagðist hún óttast að margar myndu gefast upp fljót- lega. Ástæðan fyrir því að fóstrur á- kváðu að snúa aftur var sú að þær fengu ádrátt um að nafn deildar- fóstru yrði viðurkennt en það hefur verið eitt af aðalbaráttumálum jxiirra. Dagheimilin em deildarskipt í reynd en deildarstjórar hafa ekki verið til eins og hjá öllum öðrum stéttum. Sesselja sagði að ákaflega erfitt væri orðið að manna dagheimilin og hún sagðist ekki eiga von á því að það kaup sem samið var um nú, 37.300 króna lágmarkslaun a mán- uði, myndi laða fólk til starfa, þannig að það yrðu sömu erfiðleikamir áfram. „Við höfum dregist aftur úr í launum og það verður að leiðrétta ef daghcimilin eiga að geta starfað með eðlilegum hætti. Það rót sem er á starfsfólki stöðvast ekki með öðrum hætti,“ sagði Sesselja Hauks- dóttir. -S.dór Fyrsti hluti hjólreiðakeppni grunnskólanna var i Reykjavík á sunnudaginn. Þama vom mættir til leiks 73 keppendur af öllu landinu og var um spennandi og tvísýna keppni að ræða. Axel Axelsson, Ölduselsskóla, hafði þó vinninginn og lenti í fyrsta sæti. í öðru sæti lenti Heiðar Gottskálksson, einnig úr Ölduselsskóla, og í þriðja varð Valdimar Guðbjartsson, Viðistaðaskóla, Hafnarfirði. Á myndinni er Ólafur Páll Ólafsson, Hvassaleitisskóla, að spreyta sig í einni þrautinni, einbeittur á svip. MDE/DV-mynd Brynjar Gauti Spenna í hjólreiðakeppni Unglingagengi í innbrotum Rannsóknarlögreglan í Keflavík hefur nú upplýst nokkur innbrot sem framin voru í bænum um páskahelg- ina. Reyndist þar vera á ferðinni gengi sjö unglinga, flestra á aldrinum 14 ára en sá elsti var 15 ára. Alls brutust unglingamir inn á sex stöðum þar á meðal í myndbandaleigu og radíóverslunina Stúdíó. Ekki var miklu stolið af hverjum stað. Ungling- amir eru allir strákar, sumir í skóla en aðrir ekki. -FRI Veðrið á morgun: Vestan- og suðvestanátt á landinu Á þriðjudaginn verður vestan- og suðvestanátt á landinu. Smáskúrir verða vestanlands en víða léttskýjað austantil. Hiti 4-8 stig vestanlands en allt að 12 stiga hiti eystra. Stjómarmyndun: Allir bíða eftir öllum Viðtöl bak við tjöldin um myndun nýrrar ríkisstjómar hafa legið að mestu niðri um helgina. Nú er meðal annars beðið eftir því að forseti Is- lands kalli flokksforingja til viðræðna og feli síðan einhverjum þeirra form- lega tilraun til stjórnarmyndunar. Það verður ekki í dag. Kvennalistinn hélt maraþonfund í gær og fyrradag um áherslur í viðræð- um við hina flokkana. Þar mættu konur af öllu landinu. Þingmenn list- ans og fleiri konur ganga fró óskalista strax og þeim berast upplýsingar um stöðu ríkisfjármála og ástand efna- hagsmála almennt. Vegna þessa kvennafundar hafa aðr- ir flokkar haft hægt um sig enda svara konumar engu til fyrr en eftir fund með forsetanum. Helst hefur heyrst af fofvitnum sjálfstæðismönnum sem hafa rætt við einstaka A-flokkamenn um samstarf, nýja nýsköpunarstjóm. Flokksforysta sjálfstæðismanna kann- ast ekkert við þessa menn sem fulltrúa sína en sver ekki fyrir að þeir gangi með flokksskírteini upp á vasann. -HERB Þama sígur hann niður af þaki Laug- ardalshallarinnar eins og ekkert hafi i skorist. Þó var hann buinn að hafast við þar uppi í heilar 300 klukkustundir á meðan almennir borgarar skoðuðu sýninguna Sum- arið 78 undir iljum hans. Pétri Ásbjarnarsyni, manninum á þakinu eins og hann hefur verið nefndur, tókst næstum þvi ætlunarverk sitt, að safna einni milljón króna handa Krýsuvíkursamtökunum. Það vant- aði aðeins nokkrar krónur þegar hann lét sig siga niður á jörðina í gærkvöldi. Hann var kátur og hress og nú ætlar hann að ganga á Esjuna til að liðka sig eftir leguna á þakinu. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.