Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1987, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1987, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1987. 5 Fréttir Tíu kflóa dvergkálfur Jón G. Haukssan, DV, Akureyii Dvergkálfur fæddist að bænum Litlu Hámundarstöðum á Árskógsströnd á dögunum og vó hann aðeins 10 kíló við fæðingu. Kálfur af eðlilegri stærð vegur um 30 kíló. Dvergkálfurinn er kvíga og lölluð Lilja í höfuðið á bóndakonu á einum nágrannabænum. En það var einmitt frá þeim bæ sem tuddi kom og gerði usla í kvíguhópnum á Litlu Hámundarstöðum. Móðir kálfsins er ung kvíga sem ekki stóð til að fengi strax. Um helgina, i hreint frábæru veðri, 15 til 20 stiga hita, má segja að hafi ríkt sannkölluð karnivalstemning í Eyjum. Meðal annars brugðu Hrekkjalóm- ar og félagar úr leikfélagi Vestmannaeyja á leik i göngugötunni og kepptu í knattþraut. Keppnin var tvisýn en lauk með vafasömum sigri Hrekkjalóma. DV-mynd Ómar Spomað gegn eftir- spumarþenslu Hækkað lausafjárhlutfall, háir raunvextir „Að undanfömu hafa peningamagn og útlán aukist mikið sem stafar með- al annars af greiðsluhalla ríkissjóðs og erlendum lánum. Bankastjóm Seðlabankans telur brýnt að sporna gegn þeirri eftirspumarþenslu, sem af þessu hlýst,“ segir í tilkynningu frá Seðlabankanum. Af slíkum aðgerðum er talið mikilvægast að raunvextir verði enn um sinn háir og gripið verði til annarra aðgerða í peningamálum, einkum er varðar aðhald að útlána- getu innlánsstofnana. Bankastjóm Seðlabankans hefur ákveðið að hækka lausaijárhlutfall innlánsstofnana úr 7% í 8% af ráðstöf- unarfé og kemur hækkunin fram að hálfu leyti í júlí en að fúllu frá og með 1. ágúst. Jafhframt þessu em gerðar lítils háttar breytingar á reglum um lausafjárhlutfall i ljósi reynslunnar þar sem bankar og sparisjóðir hafa með fáum undantekningum haldið lausafé sínu ofan lágmarksins. -JFJ Fyrsti flugulax þing- mannsins „Þetta var fyrsti flugulaxinn sem ég hef veitt en maður hefúr fengið nokkra laxa og fiskurinn tók þingeying, túbu,“ sagði Guðmundur Ágústsson, þing- maður Borgaraflokksins, í samtali við DV í gærkvöldi en hann veiddi fyrir skömmu fyrsta flugulaxinn sinn, 11 punda, í Munaðamesinu í Norðurá. „Ég var ekkert að flýta mér að landa laxinum því maður er ekkert vanur að veiða á fluguna og þetta stóð yfir í 45 mínútur og hörkubarátta. Það er miklu skemmtilegra að veiða lax á flugu en samt rauk ég út í nótt þegar fór að rigna til að tína maðk, maður tekur maðkinn allavega með í næstu veiðitúra og það eru Norðurá og Gljú- furá sem renna á í næst, en það verður eki fyrr en í ágúst. Ég keypti mér flu- gustöng í vetur og hún verður reynd í næstu veiðitúrum eftir þetta," sagði Guðmundur ennfremur. -G.Bender philips sjónvttP Guðmundur Agústsson, þingmaður Borgaraflokksins, meö fyrsta flugulax- inn, 11 punda, veiddan á Munaðar- nessvæðinu í Norðurá. DV-mynd Þórólfur Halldórsson 20” með þráðlausrt fjarstýringu skríMng á skjáá ölluni stiHingum. oil. o1l. Litir-.Svartoggrátt. VERÐ AÐEINS KR. 20” án fjarstýringar öllum stillingum, ofl. ofl. Litir: Hnota og grátt. VERÐ AÐEINS KR. 16” ferðasjónvarp an fjarstýringar . K i •^^d^olöstöðvaminni.Stunga iSB=, Lir heyrnartól. Innbyggt loftnet, ofl. oB. Litir: svart og gratt. VERÐ AÐEINS KR. SiíSSSptó-aNnn Tengist með straumbreyti stöðva ofl. Litur: svart og grátt. VERÐ AÐEINS KR. MEÐ SPENNUBREYTIAÐEINSKR. 31.980.- Heimiiistækihf SÆTÚNIB-SÍMI'691515 & HAFNARSTRÆTI BIRGIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.